Fréttablaðið - 03.09.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 03.09.2006, Blaðsíða 6
6 3. september 2006 SUNNUDAGUR Bíldudælingar Stefnum hugvorum að Bíldudalskirkju 1. sunnudag í aðventu n.k. og fögnum 100 ára afmæli. Sr. Bragi, sr. Flosi, sr. Agnes, sr. Dalla, sr. Sigurpáll, sr. Hörður, sr. Auður Inga, sr. Sveinn og sr. Jakob. A›alfundur 2006 D A G S K R Á 1. Sk‡rsla stjórnar um starfsemi félagsins á li›nu starfsári. 2. Ársreikningur félagsins fyrir li›i› starfsár lag›ur fram til samflykktar ásamt sk‡ringum endursko›anda. 3. fióknun til stjórnar ákve›in. 4. Kosning stjórnar félagsins. 5. Kosning endursko›enda félagsins. 6. Umræ›ur og atkvæ›agrei›slur um önnur mál sem löglega kunna a› ver›a lög› fyrir fundinn e›a fundurinn samflykkir a› taka til me›fer›ar. A›alfundur 2006 A›alfundur Alfesca hf. ver›ur haldinn flri›judaginn 19. september 2006 kl. 17.00 í Gullteigi á Grand Hótel Reykjavík. Fundurinn fer fram á ensku. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á a›alfundinum, skulu hafa borist stjórninni eigi sí›ar en sjö dögum fyrir a›alfundinn. Dagskrá a›alfundarins, ársreikningur félagsins og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til s‡nis, sjö dögum fyrir a›alfundinn. Atkvæ›ase›lar og fundargögn ver›a afhent vi› innganginn og á skrifstofu félagsins a› Fornubú›um 5, Hafnarfir›i, á fundardaginn. Hafnarfir›i 1. september 2006 Stjórn Alfesca hf. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI HEILBRIGÐISMÁL Launagjöld Land- spítalans á fyrstu sex mánuðum ársins eru rúmum 400 milljónum umfram fjárhagsáætlun, eða sem nemur 3,9 prósentum. Heildarhalli spítalans á tímabilinu janúar til júní nam 477 milljónum króna, eða 3,1 prósenti af tekjum. Helstu ástæður framúrkeyrslu launa eru samkvæmt greiningu stjórnenda spítalans aukið álag á starfsemina á sama tíma og mikil spenna er á vinnumarkaði og samkeppni um vinnuafl. Erfitt reyndist að ráða í lausar stöður og til sumarafleys- inga sem olli því að kaupa varð yfirvinnu af starfs- mönnum spítalans og meiri þjónustu verktaka, bæði innlendra og erlendra, en verið hefur undanfarin ár. Jóhannes M. Gunnars- son, lækningaforstjóri og staðgengill Magnúsar Péturssonar forstjóra, segir að miklir erfiðleikar hafi verið á slysa- og bráða- deildum spítalans á þessu ári. „Eftirspurn eftir þjón- ustu eykst jafnt og þétt og við höfum þurft að bregð- ast við með aukinni þjón- ustu sem vegna manneklu hefur þurft að gera með kaupum á yfirvinnu þeirra sem fyrir eru.“ Margrét I. Hallgríms- son, sviðsstjóri hjúkrunar á kvennasviði, segir að kaup á yfirvinnu til langs tíma sé vítahringur. Of mikil vinna valdi því að starfsfólk verði mjög þreytt sem leiðir til veik- inda. Fjarvistir vegna veikinda kalli á aukið álag á þá sem fyrir eru og svo koll af kolli. Yfirvinna er talin hafa kost- að spítalann 150 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins. Manneklan hefur einnig valdið því að nauðsynlegt hefur verið að kaupa þjónustu innlendra og erlendra verktakafyrirtækja. Kaup á slíkri þjónustu námu 77 milljón- um á fyrstu sex mánuðum þessa árs en 41 milljón allt árið í fyrra. For- svarsmenn LSH segja einnig að mikill þrýstingur sé á hækkun launa á LSH vegna launaþróunar annars staðar í samfélaginu, launa- tengd gjöld hafi hækkað og ríkið hafi ekki bætt spítalanum upp auknar greiðsl- ur vegna samningsbundinna launa- hækkana félagsmanna í Eflingu og SFR. Einnig hafði það áhrif á launa- útgjöld spítalans að deildum var ekki lokað á sumarleyfistíma í sama mæli og undanfarin ár. svavar@frettabladid.is Laun 400 milljónum króna yfir áætlunum Mannekla á Landspítalanum er leyst með yfirvinnu og 150 milljónir voru greidd- ar í yfirvinnu- og álagslaun á fyrstu sex mánuðum ársins. Laun hækka vegna samkeppni um vinnuafl og kaup á vinnu frá verktakafyrirtækjum aukast. FÉLAGSMÁL Á sjöunda hundrað manns bíða eftir félagslegu húsnæði í Reykjavík. Á sama tíma bíða rúmlega 360 eldri borgarar eftir þjónustuíbúðum fyrir aldraða. Til að koma til móts við þörfina hefur verið ákveðið að fjölga félagslegum íbúðum um fimm hundruð og þjónustuíbúðum fyrir aldr- aða um 150 fram til ársins 2010. Sigurður Friðriksson, framkvæmdastjóri félagsbústaða, segir sjötíu prósent þeirra sem sækja um félagslegt húsnæði vera að leita að eins til tveggja herbergja íbúðum. „Stór hluti þessa hóps eru einhleypir eldri karlmenn sem flosnað hafa upp úr vinnu og geta ekki séð fyrir sér. Hluti hópsins skuldar meðlög og stendur ekki í skilum. Biðtími eftir félagslegum íbúðum er frá nokkrum mánuðum upp í tvö ár og er meiri- hluti þeirra sem bíða í brýnni þörf.“ Sigurður segir líkamlegt ástand ráða for- gangsröðun eldra fólks sem bíður eftir þjón- ustuíbúðum en ekki sé tekið mið af tekjum og eignum viðkomandi. Sigurður segir þá breytingu fyrirhugaða á kaupum félagslegs húsnæðis að ekki verði keyptar fleiri en ein íbúð í hverjum stiga- gangi. „Nú er staðan þannig að tuttugu pró- sent félagslegs húsnæðis eru staðsett í Efra- Breiðholtinu en við ætlum að selja hluta þeirra eigna og kaupa í staðinn íbúðir í minni fjölbýlishúsum í Grafarholtinu.“ - hs Allt að tveggja ára bið er eftir félagslegu húsnæði og eru fjölmargir aldraðir á biðlista: Um 700 manns bíða eftir félagslegu húsnæði BAKKAHVERFIÐ Í BREIÐHOLTI Tuttugu prósent félagslegs húsnæðis í Reykjavík eru í Efra-Breiðholti. BRETLAND, AP Breska lögreglan handtók á föstudagskvöld og í gær sextán manns í nýjum aðgerðum gegn meintum hryðju- verkamönnum. Mennirnir, sem eru á aldrinum 17 til 48 ára, eru grunaðir um að reyna að safna nýliðum og þjálfa þá til hryðjuverkaárása, að sögn talsmanna lögreglunnar. Tólf mannanna voru handteknir á kínversku veitingahúsi í London á föstudagskvöld, sem vakti mikla athygli enda var veitingahúsið fullt af viðskiptavinum sem tengdust málinu ekki. Óttinn við hryðjuverk skipulögð á breskri grund hefur verið mikill í landinu síðan í fyrra, þegar fjórir menn sprengdu sjálfa sig í loft upp í neðanjarðarlestum London, og ekki bætti úr skák þegar 25 manns voru handteknir í síðasta mánuði, grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk í háloftunum. Að sögn lögreglu eru þessar nýjustu handtökur hvorki tengdar þeim í ágúst, né árásunum í fyrra, sem urðu 52 að bana. Handtökurnar voru gerðar eftir margra mánaða rann- sóknavinnu en lögregla gaf litlar aðrar upplýsingar um málið. Lögregla gerði jafnframt fjölmargar húsleitir, meðal annars í íslömskum gagnfræðaskóla nærri London. - smk Nýjar aðgerðir bresku lögreglunnar gegn meintum hryðjuverkamönnum: Sextán manns handteknir HÚSLEIT Breska lögreglan gerði húsleit í fjölmörgum íbúðarhúsum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KJÖRKASSINN Eiga Íranar að fá að auðga úran? Já 39% Nei 61% SPURNING DAGSINS Í DAG: Finnst þér yfirlýsingar Seðla- bankastjóra um Kárahnjúka- mál viðeigandi? Segðu þína skoðun á visir.is LANDSPÍTALINN Launagjöld fóru rúmum 400 milljónum fram úr áætlunum á fyrstu sex mánuð- um ársins. Ein helsta ástæðan er yfirvinna starfsfólks vegna viðvarandi manneklu hjá spítalanum. Kaup á vinnu frá verktakafyrirtækjum færast einnig stöðugt í vöxt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.