Fréttablaðið - 03.09.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.09.2006, Blaðsíða 10
 3. september 2006 SUNNUDAGUR10 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Á þessum degi árið 1975 fæddist Ferdinand Porsche, vélaverkfræðingur og upphafsmað- ur Porsche-bílanna, sem enn þann dag í dag eru taldir á meðal flottustu bíla jarðar. Porsche fæddist í Maffersdorf í Austurríki. Hann hóf starfsferil sinn hjá Daimler-fyrir- tækinu og varð fljótt nokkuð hátt settur þar. Á endanum ákvað hann þó að yfirgefa fyrir- tækið árið 1931 og fór þess í stað að hanna sína eigin sport- og kappakstursbíla. Eitt frægasta verkefni Porsche er „bíllinn fyrir fólkið” sem hann hannaði fyrir Adolf Hitler, þ.e. Volkswagen. Ásamt syni sínum var Porsche ábyrgur fyrir því að koma Volkswagen á framfæri. Átti þessi hlutdeild hans í verkefninu eftir að koma honum í koll. Eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk var hann handtekinn af Frökkum og þurfti að dúsa í fangelsi í þó nokkur ár þar til honum var loksins sleppt. ÞETTA GERÐIST 3. SEPTEMBER 1875 Ferdinand Porsche fæðist Ingibjörg Björnsdóttir lét af störfum sem ritari fjármálaráðherra í vikunni, en hún hefur starfað við fjármálaráðu- neytið frá 1. febrúar 1972. „Ég vil nú ekki segja að ég hafi verið sérlegur ritari fjármálaráðherra allan þann tíma,“ segir Ingibjörg, „það varð ég ekki fyrr en 1979, fyrir Tómas Árna- son. Fram að þeim tíma var ráðuneytið lítið og allir unnu fyrir alla.“ Ingibjörg er ánægð með þrjátíu og fjögurra ára starfsferil sinn hjá ráðuneytinu. „Þetta er búið að vera mjög gaman og ég hef unnið með fjölbreyttu og skemmtilegu fólki.“ Aðspurð hvort einhver þeirra tólf ráðherra sem hún hefur unnið með sé í sérstöku uppáhaldi skellir hún upp úr. „Ég hef ekkert svar við því,“ segir Ingibjörg. „Þeir hafa verið svo ólíkir persónuleikar og margir mjög eftir- minnilegir.“ Á ferli sínum hefur Ingibjörg orðið vitni að mörgum eftirminnilegum atvikum. „Ég man alltaf eftir ákveðnu atviki frá því að Albert Guðmundsson sat í ráðherrastólnum,“ segir Ingi- björg. „Á þeim tíma var mikil umræða í gangi um hvort leyfa ætti hundahald í Reykjavík. Albert átti hund, Lúsí, og hafði hótað því að flytja úr landi ef Lúsí fengi ekki að vera í Reykjavík. Þetta var umtalað og ráðuneytinu bár- ust ýmis bréf og pakkar í kringum þetta,“ heldur hún áfram. „Við fengum pakka að utan sem á stóð ‚For Lucy Dog Guðmundsson, c/o Albert Guð- mundsson, Ministry of Finance, Ice- land‘. Í honum var mikið af góðum gripum handa Lúsí; hálsband, bein og einhver leikföng. Hún var greinilega víðfrægur hundur,“ segir Ingibjörg hlæjandi. Skömmu eftir þetta var svo stofnað kvenfélag í ráðuneytinu. „Það er enn starfandi undir því skemmti- lega nafni Lúsífer,“ bætir Ingibjörg við. Aðspurð segir hún starfið eðlilega hafa breyst á þessum árum, sérstak- lega hvað tölvuvæðinguna snertir. „Fyrir tölvuvæðinguna voru ritarar að miklu leyti vélritunarstúlkur, þannig að það breyttist mjög mikið.“ Sam- kvæmt Ingibjörgu breyttist eitt þó aldrei: „Þetta hefur aldrei verið leiðinlegt,“ segir hún. Síðastliðið fimmtudagskvöld var haldið kveðjuhóf í ráðherrabústaðnum Ingibjörgu til heiðurs og margir góðir gestir mættu. Hvað ætlar hún svo að taka sér fyrir hendur þegar veislu- höldum er lokið? „Fyrst ætla ég að fara í frí með fjölskyldunni. Svo stefni ég bara á að njóta lífsins með vinum og vandamönnum og hafa það gott í ell- inni,“ segir Ingibjörg. „Þetta hefur verið góður tími, en það er kominn tími til að draga sig í hlé svona áður en maður fer að glata minninu,“ bætir hún hlæjandi við. - sun INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR: KVEÐUR FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ EFTIR 34 ÁR Hefur aldrei leiðst í vinnunni INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR OG ÁRNI M. MATHIESEN FJÁRMÁLARÁÐHERRA Ingibjörg hefur starfað með tólf ráðherrum á 34 ára ferli hjá fjármálaráðuneytinu. FRÉTTABLAÐIÐ/BRINK MERKISATBURÐIR 1919 Flogið er í fyrsta sinn á Íslandi. Atburðurinn á sér stað í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Flugvélin var af Avro-gerð og var flugmað- urinn enskur. 1939 Bretar og Frakkar lýsa yfir stríði gegn Þýskalandi. 1921 Brúin yfir Jökulsá á Sól- heimasandi er vígð. 1988 Brúin yfir ósa Ölfusár er formlega tekin í notkun. Hún er 360 metra löng. 2000 Li Peng, forseti þjóðþings Kína, kemur í þriggja daga opinbera heimsókn til Íslands. Nokkrar deilur urðu um samskipti hópsins við Alþingi og fjölmiðla. 2004 Meira er 200 manns deyja eftir þriggja daga umsátur- sástand í rússneskum skóla. CHARLIE SHEEN FÆDDIST Á ÞESSUM DEGI ÁRIÐ 1965. „Ég veit allt um það núna hvernig ég á ekki að haga mér. Ég veit miklu meira um það en náungi á mínum aldri ætti að vita.“ Leikarinn Charlie Sheen, sem hefur gert ýmislegt af sér í gegnum tíðina, er 41 árs í dag. Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför hjartkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, Jóns Aðalsteins Jónssonar fyrrverandi orðabókastjóra. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 3N, Hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða umönnun. Vilborg Guðjónsdóttir Jón Viðar Jónsson Guðjón Jónsson Elísabet Jóna Sólbergsdóttir Sigríður Sía Jónsdóttir Birgir Karl Knútsson og afabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðríður Erna Óskarsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum fimmtudaginn 31. ágúst. Ólöf S. Jónsdóttir Kjartan Gíslason Þórunn Halldóra Matthíasdóttir Herdís Þ. Jónsdóttir Ingi Jón Sverrisson Halla G. Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar tengdamóður, ömmu og langömmu Ásu Þ. Ottesen Þuríður Hermannsdóttir Þorlákur Hermannsson Alma Ch. Róberts Herdís Hermannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elfa Rún Kristinsdóttir hlaut í gær styrk úr Styrktarsjóði Önnu Karólínu Nordal. Styrkurinn, sem nemur hálfri milljón króna, er veittur árlega og er ætlað að styrkja unga söngvara og fiðluleikara. Elfa Rún tók við styrknum í Salnum í Kópavogi en ný tónleikaskrá Salarins fyrir starfsárið 2006-2007 var einnig kynnt við þetta tækifæri. Í lok dag- skrár lék Elfa Rún nokkur lög en hefð er fyrir því að styrkþegar ljúki dag- skránni. Elfa Rún hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðlegri keppni ungra hljóðfæra- leikara sem haldin var í Leipzig í júlí og kennd er við tónskáldið Johann Sebastian Bach. Þá fékk hún einnig sérstaka viðurkenningu fyrir að vera yngsti keppandinn, 21 árs gömul, sem vinnur til verðlauna. Alls tóku yfir eitt- hundrað fiðluleikarar þátt í keppninni. Keppnin fer fram annað hvert ár en fyrstu verðlaun fyrir fiðluleik voru síðast veitt árið 1992. Síðan þá hafa fiðluleikarar tvisvar keppt um verð- launin. Enginn Íslendingur hefur áður borið sigur úr býtum í keppninni. Ungur fiðluleikari fær styrk ELFA RÚN KRISTINSDÓTTIR Tók við styrkn- um í Salnum í gær og lék nokkur lög fyrir viðstadda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.