Fréttablaðið - 03.09.2006, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 03.09.2006, Blaðsíða 18
 3. september 2006 SUNNUDAGUR18 Konur eru talsvert svart- sýnni en karlar á efna- hagshorfurnar. Þá eru þéttbýlingar bjartsýnni en landsbyggðarfólk. Þetta kemur fram í nýrri könnun Fréttablaðsins. Munur milli kynjanna er sígilt viðfangs- efni og hér er spurt hvort konur séu svartsýnni að eðlisfari eða að niðurstöður könnunarinnar leiði í ljós ábyrgðarleysi karla, nema hvoru tveggja sé. Karlar eru talsvert bjartsýnni en konur á að efnahagur fjölskyldunn- ar fari batnandi á næsta ári. Reynd- ar telja konur að fremur muni halla undan fæti en hitt meðan karlar líta björtum augum til framtíðar. Þetta kemur fram í nýrri könnun Frétta- blaðsins. Í könnuninni var spurt: „Telur þú að efnahagur fjölskyldu þinnar batni, versni eða standi í stað næstu 12 mánuði?“ Hringt var í 800 manns og tóku 95 prósent afstöðu. Könnun- in má því heita vel marktæk. Greint var annars vegar á milli kynja og svo búsetu: Landsbyggð/þéttbýli. Í ljós kemur að tæp 25 prósent karla telja að kjör fjölskyldu sinnar muni batna á komandi ári meðan 17 prósent kvenna telja að svo verði. 15 prósent karla telja að þau muni versna en 26 prósent kvenna eru þeirrar skoðunar. Reyndar er meiri- hluti aðspurðra þeirrar skoðunar að kjörin muni standa í stað en sé aðeins litið til þeirra sem taka afstöðu til batnandi eða versnandi kjara eru tölurnar afgerandi: 62 prósent karla telja kjörin batna en 56 prósent kvenna telja þau versna. Fréttablaðið hafði samband við nokkra valinkunna einstaklinga og spurði hvernig mætti leggja út af þessum niðurstöðum: Hvort verið geti að konur séu svart- sýnni en karlar? Vangaveltur viðmælenda eru athyglisverðar en þar koma meðal annars fram þær hugmyndir að konur séu varkárari, skynsamari, tilfinningaríkari og jafnvel óttaslegnari en karlarnir, sem eru miklum mun ýktari í væntingum sínum: Jafnvel svo að gefa má þeim einkunn- ina ábyrgðarlausir galgopar. jakob@frettabladid.is Svartsýnar konur & kátir karlar ÖRN Ætli þetta sé ekki svipað og verið hefur. „Er þetta ekki bara raunsæi?“ spyr séra Jóna Hrönn Bolladóttir miðborgarprestur þegar henni eru kynntar niðurstöður könnunarinn- ar. Hún hefur reyndar sínar skýringar á þess- um afdráttarlausu niðurstöðum. „Ég hugsa að konur taki meira mark á því sem þær heyra sagt í fréttum og allri þjóð- félagsumræðu. Og þar er stöðugt verið að hræða okkur og hóta því að allt sé að fara norður og niður. Eins og einhver undirliggj- andi sátt sé um það að stöðugt eigi að hrella okkur. Fyrir ári fuglaflensan og nú er það verðbólgan. Alltaf er fundið eitthvað upp til að halda okkur í ótta. Þess vegna er svo mikil- vægt að hafa kirkjuna að hjálpa okkur út úr svona fjötrum. Löngu þreytt á því. Þetta er einhver aðferð til að halda þjóðinni niðri.“ Jóna Hrönn vill þó, að þessu sögðu, ekki kvitta undir að þar með megi segja að konur séu trúgjarnari en karlar. „Neeeei, við erum svona miklar tilfinn- ingaverur. Þessar stöðugu upplýsingar ná meiri tökum á sálarlífi kvenna. Upp- eldis okkar vegna er auðveldara að nísta hjarta okkar með einhverj- um tilfinningum. Í þessu tilfelli að óttast,“ segir Jóna Hrönn. Karlarnir eiga að mati Jónu miklum mun auðveldara með að búa sér til varnir gegn uggvænlegum tíðindum. Hún vill meina að kynin geti ýmislegt hvort af öðru lært í þessum efnum en hún hefur meðal ann- ars staðið fyrir hjóna- námskeiðum. Jóna Hrönn nefnir dæmi af sjálfri sér en hún fer hvergi í grafgötur með að hafa á tímabili verið nánast hugsjúk vegna stöðugra fregna af fuglaflensu. „Dæmigert í þessu sambandi má heita að maðurinn minn hló þegar ég vildi fara að fylla kjallarann af þurrmat vegna fugla- flensunnar.“ Og miðborgarpresturinn snjalli klykkir út með því að segja fulla ástæðu til að vera raun- sæ hvað efnahagsástandið varðar: „En við eigum ekki að fara af límingunum heldur vera skynsöm. Sýna aðhald í fjármálum – hvernig sem okkur nú gengur með það þess- ari gráðugu þjóð.“ „Já, nú skal ég segja þér sögu,“ sagði Örn Clausen hæstaréttarlög- maður eftir að hafa velt stuttlega fyrir sér því hvort eitthvað megi lesa úr niðurstöðum könnunarinn- ar sem hér um ræðir. „Ég man eftir því að sjónvarpið fór alltaf í réttir á hverju hausti og spurði alltaf sömu spurningar: Hvað heldurðu að þú leggir mörg lömb inn í sláturhúsið núna? Karl- arnir óku sér en sögðu alltaf það sama: Ætli það verði ekki svipað Séra Jóna Hrönn Bolladóttir miðborgarprestur: Óttinn á greiðari leið að konunni JÓNA HRÖNN Konur láta óttann frekar ná tökum á sér en karlar. Örn Clausen hæstaréttarlögm aður: Menn blott a sig ekki NIÐURSTÖÐUR KÖNNUNAR Spurt var: Telur þú að efnahagur fjölskyldu þinnar batni, versni eða standi í stað næstu 12 mánuði? Batni Versni Eins Alls Karlar 25% 15% 60% 100% Konur 17,3% 25,5% 57% 100% Landsbyggð 18,3% 20.3% 61,5% 100% Þéttbýli 22,8% 20.2% 57,8% 100% KK Dreifarar svala fólkið KVK 25% 60% 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.