Fréttablaðið - 03.09.2006, Page 22
ATVINNA
3. september 2006 SUNNUDAGUR2
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
A
LC
3
39
98
09
/2
00
6
Búðareyri 3
730 Reyðarfjörður
Sími 470 7700
www.alcoa.is
Spennandi sérfræðistörf
hjá Alcoa Fjarðaáli
Umsækjendur eru
vinsamlega beðnir að sækja
um störfin á heimasíðu IMG
Mannafls-Liðsauka,
www.mannafl.is og láta
ferilskrá fylgja með.
Frekari upplýsingar fást á
www.alcoa.is og hjá
Sigurlaugu Þorsteinsdóttur
(sigurlaug@img.is) og Helgu
S. Guðmundsdóttur
(helgas@img.is) hjá IMG
Mannafli-Liðsauka.
Almennar kröfur
sem gerðar eru
til allra starfsmanna:
•Færni í mannlegum
samskiptum
•Vilji til að starfa í teymum
með jafningjum
•Jákvæðni og virðing fyrir
öðrum
•Vilji til að leita stöðugra
endurbóta
•Frumkvæði og sjálfstæði
í vinnubrögðum
•Vilji til að takast á við
fjölbreytt og krefjandi
verkefni
Við leitum að verkfræðingi, efnafræðingi eða eðlisfræðingi til starfa við álframleiðsluferli Alcoa
Fjarðaáls. Sérfræðingurinn mun hafa umsjón með hönnun og innleiðingu aðferða sem eiga að
hámarka magn og gæði álframleiðslunnar og lágmarka orkunotkun og mengun. Hann mun stýra
mælingum og rannsóknum sem eiga að tryggja stöðugleika í framleiðslunni og stuðla að endur-
bótum. Sérfræðingurinn verður leiðandi í daglegum rekstri og mun vinna við þróun verkferla
framleiðslunnar. Starfið krefst náinnar samvinnu með öðrum starfsmönnum fyrirtækisins.
Sérfræðingur í álframleiðslu
Við leitum að verkfræðingi, efnafræðingi eða eðlisfræðingi til að hafa umsjón með hönnun,
innleiðingu og þróun verkferla í málmvinnslu (metallurgical engineer). Starfið felst meðal annars
í því að hanna ferli fyrir málmsteypu með hliðsjón af eiginleikum og gæðum afurða. Viðkomandi
á að tryggja að gæðastöðlum Alcoa sé fylgt og vinna að stöðugum endurbótum með sér-
fræðingum Alcoa og viðskiptavina um allan heim. Alcoa Fjarðaál mun framleiða fjölbreyttar
og verðmætar vörur sem gerir starfið krefjandi og um leið mjög áhugavert.
Sérfræðingur í málmvinnslu
Nánari upplýsingar um launakjör á heimasíðu Alcoa Fjarðaáls, www.alcoa.is – undir starfsmannamál.
Viðkomandi þurfa að geta hafið störf í október 2006 eða síðar.
Umsóknarfrestur er til og með 17. september.
Störfin henta jafnt konum sem körlum
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá Alcoa Fjarðaáli.
Starfsumhverfi er hannað þannig að öll störf henta jafnt báðum kynjum og stefnt er að
góðri aldursdreifingu starfsmanna.