Fréttablaðið - 03.09.2006, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 03.09.2006, Blaðsíða 67
SUNNUDAGUR 3. september 2006 27 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 6 5 7 „UNDRABÖRN ERU ANDSTYGGILEG.“ Miðasala 568 8000 www.borgarleikhusid.is AMADEUS EFTIR PETER SHAFFER H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 6 5 7 „APARNIR ERU EKKI ENNÞÁ BÚNIR AÐ STOFNA STÉTTARFÉLÖG.“ Miðasala 568 8000 www.borgarleikhusid.is GRETTIR EFTIR ÓLAF HAUK SÍMONARSON, ÞÓRARIN ELDJÁRN OG EGIL ÓLAFSSON ��������������������������������� ��������������������������������������������������� �� ����������������������������������������� ���������� �������������������������� ����������� �� �������������������� �� �� ����� ������������������������������� �������������� �� ��������������������������������������������������������������������������� ����������������������������������������������������������� ������������ �������������� �� ����������� �������������������������������������������������������������������� ������������ ���������������������������������������� ����������������������������������� ������������������������������� ������������������ ��� ����������•���������������• ������������ ���������������� �������� ������������������ ������������������ �������������������� ������������������ • ��������� • ���������� • ���������������������������������� • �������������������������� • �������������� ���������������������������������������������� ������������������ �� ������� �� ���������������� �� ���������� �� ���������������� Álverið í Straumsvík hýsir óvenju- lega sýningu í dag en í tilefni af „opnum húsum“ álversins í dag ferðast hluti sýningarinnar „Hin blíðu hraun“ úr Hafnarborg til Straumsvíkur. Listamaðurinn Halldór Ásgeirsson hefur undan- farnar vikur fengist við að bræða vígalegan hraunklump með þar til gerðum áhöldum en hann mun nú fá liðsinni starfsmann álversins við verkið. Fjölmargir listamenn munu skemmta gestum á svæðinu sem verður opið allan daginn en þeirra á meðal eru félagarnir Gunni og Felix, Friðrik Ómar og Guðrún Gunnars og Óperukór Hafnar- fjarðar. Boðið verður upp á rútuferðir til Straumsvíkur frá bílaplani Fjarðarkaupa við Bæjarhraun á hálftíma fresti frá kl. 11. Dag- skránni í Straumsvík lýkur kl. 17. FRIÐRIK ÓMAR SÖNGVARI Treður upp í Straumsvík með Guðrúnu Gunnars. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Uppákomur í álveri Nútímamaðurinn reynir stöðugt að gera fleiri og fleiri hluti á sífellt skemmri tíma. Blaðamaðurinn og rit- höfundurinn Carl Honoré er talsmaður hins gagnstæða enda heldur hann því fram í bók sinni Lifum lífinu hæg- ar að hæglætisbylting sé á næsta leiti. Honoré segir að fólk sé að vakna til vitundar um að hraðinn sé ef til vill ekki alltaf af hinu góða. „Sam- félög hafa verið upptekin af hröð- un, áður gerði hún gagn, jók fram- leiðni og framfarir en svo er ekki lengur,“ útskýrir hann og tekur dæmi af stórfyrirtækjum sem nú þurfa að skikka starfsmenn sína til þess að taka sumarfrí - í þeirri vissu sinni að fríið muni fremur stuðla að aukninni framleiðni en stöðugt álag og meiri yfirvinna. „Ef við setjum þetta ástand í kap- ítalískt samhengi þá hefur okkar samfélag fremur snúist um „meira og hraðar“ en „hægar og betur“, segir hann og bætir því við að hröðunina megi ekki aðeins merkja á vinnustöðum heldur líka í einkalífi fólks. „Ég sá grein í tímariti á dögunum sem fjallaði um hvernig fólk getur fengið full- nægingu á þrjátíu sekúndum. Hversu heilbrigt er það?“ Bók hans, Lifum lífinu hægar, er rannsókn á sambandi mannsins við tímann en Honoré hefur ferð- ast víða og kynnt sér hvernig fólk tekst á við kröfur tímans og aðferðir þess við að hægja á. „Þetta er búið að vera mikið ævin- týri en mig óraði ekki við þessum viðtökum. Bókin hefur vakið sterk viðbrögð því hún snertir taug hjá svo mörgum,“ segir hann og árétt- ar að hraðaþörf og hið bókstaflega lífsgæðakapphlaup sé menningar- legt vandamál um allan heim. „Ég var heppinn með tímasetninguna á þessari bók því allir eru tala um þetta núna. Ef þessi bók hefði komið út fyrir 15 árum væri hún ekki að koma út á 26 tungumál- um.“ Bók Honoré kemur víða við enda snertir hraðinn allar hliðar lífsins, allt frá tímasparnaðar- áráttu atvinnulífsins til elda- mennsku, kynlífs og barna- uppeldis. „Þessi bók er ekki sjálfshjálparbók, ég þoli ekki sjálfshjálparbækur því ég vil ekki láta skipa mér fyrir. Þetta er samt bók sem hjálpar fólki að hjálpa sér sjálft, þessi bók breytir hugs- unarhætti en hún er samt ekki alvarleg eða ábúðafull. Mér finnst mikilvægt að hafa húmor fyrir hlutunum þó að þetta sé auðvitað alvarlegt mál,“ segir hann. Honoré segir að ein aðalreglan sé að gera hlutina á réttum hraða. „Ég er fylgjandi hraða en hann á ekki alltaf við. Fólk þarf að vera meðvitað um möguleikann á því að gera hlutina hægar, eða sleppa þeim alveg.“ Hann útskýrir hlæj- andi að allir viðmælendur hans vilji fá ráð eða samanþjappaða útgáfu af leiðbeiningum um hvern- ig sé best að bæta ástandið. „Þá segi ég yfirleitt að það sé best fyrir fólk að byrja að hugsa um hraða sinn utan vinnutímans - þar er meira frelsi og svigrúm. Gerið minna. Það eru ákveðnir hlutir sem fólk þarf ekkert að gera, þarf ekki að gera strax og við höfum öll val um okkar framkvæmdahraða. Fólk þarf að finna jafnvægi í því. Annað sem ég bendi á er tæknin, við höfum alla þessa möguleika, sítengingar og símiðlun en við erum búin að gleyma hvernig á að slökkva. Það er mjög mikilvægt „taka sig úr sambandi“ öðru hverju,“ segir Honoré og bætir við að rannsóknir bendi til þess að stöðugt áreiti hreinlega lækki greindarvísitölu fólks. „Í þriðja lagi legg ég til að fólk finni sér ritúal eða athöfn sem ekki er hægt að „hraða“ á, stundi til dæmis hugleiðslu eða lesa bók, finni sér athöfn sem fær það til að skipta um gír og finna sér annan hraða.“ Hann kveðst mun bjartsýnari nú en fyrir tveimur árum þegar bókin kom fyrst út. „Kaldhæðnin er bara að við viljum flest hægja hratt á okkur. Fólk les bókina og ætlar að breyta öllu á stundinni - sem er alveg fáránleg hugmynd sem mun aldrei virka. Hugmyndin um hæglætið er heldur ekki tengd lífsstíl því slíkar hugmyndir brenna upp á skömmum tíma. Hæglætishreyfingin er komin af stað og eðli málsins samkvæmt mun það taka tíma fyrir fólk að breyta hugsunarhætti sínum,“ segir hann að lokum. Edda útgáfa gefur bókina út hér á landi en þýðandi hennar er Geir Svansson. kristrun@frettabladid.is CARL HONORÉ BLAÐAMAÐUR OG RITHÖFUNDUR Það er mikilvægt að velja rétta hraðann og vera meðvitaður um að hægt sé að gera hlutina hægar - eða hreinlega sleppa þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Góðir hlutir gerast hægt HVAÐ? HVENÆR? HVAR? SEPTEMBER 31 1 2 3 4 5 6 Sunnudagur ■ ■ SÝNINGAR  10.00 Verk mæðgnanna Valgerðar Briem og Valgerðar Bergsdóttur eru til sýnis í Gerðarsafni. Sýningin stendur til 1. október.  13.00 Tumi Magnússon og Aleksandra Signer sýna vídeó og innsetningar í Listasafni ASÍ við Freyjugötu.  14.00 Sigurður Örlygsson leiðir gesti Hafnarhússins um sumarsýningu Listasafns Íslands, Landslagið og þjóðsagan. Sigurður mun fjalla um einstök verk á sýningunni út frá lögmál- um málverksins auk þess að fjalla um sýninguna í heild sinni.  15.00 Sýningarstjóra myndlistarsýning- arinnar Pakkhúss postulanna, Daníel Björnsson og Huginn Þór Arason, leiða gesti Hafnarhússins um sýning- una. Klukkustund síðar fremur Ásdís Sif Gunnarsdóttir gjörning. Sýningin stendur til kl. 22. október. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. Íslendingar og útlendingar fá allar upplýsingar á ensku um allt það sem heimsborgin Reykjavík státar af á hverjum tíma.; menningarviðburðir, tónleikar, skemmtistaðir, veitingastaðir, söfn, gallerí, tíska, verslanir og næturlíf. Líka fyrir þig; lífið, fréttirnar og fjörið á ensku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.