Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.09.2006, Qupperneq 78

Fréttablaðið - 03.09.2006, Qupperneq 78
 3. september 2006 SUNNUDAGUR38 HRÓSIÐ FÆR … FRÉTTIR AF FÓLKI FRÉTTIR AF FÓLKI Hvað er að frétta? Allt gott. Ég er að fara að taka upp plötu á Jazzhátíð Reykjavíkur og er að semja eigin tónlist. Augnlitur: Blágrænn. Grænn í rigningu. Starf: Söngkona og söngkennari hjá FÍH. Fjölskylduhagir: Einhleyp með þriggja og hálfs árs dóttur. Hvaðan ertu? Frá Selfossi, en ég er ættuð frá Eyrar- bakka. Ertu hjátrúarfull? Ég var það, en það er að renna af mér. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Little Britain og breskir sakamála- þættir. Svona tímabundið er það Rock Star. Uppáhaldsmatur: Góður og hollur lífrænn matur. Ég er hrifin af indverskum mat, íslensku lambakjöti og fiski. Fallegasti staður: Þórsmörk. iPod eða geislaspilari? iPod, ég er nýbúin að skipta. Hvað er skemmtilegast? Dóttir mín og tónlist. Hvað er leiðinlegast? Fólk sem hefur enga siðferðiskennd, sem kann sig ekki. Helsti veikleiki: Súkkulaði. Helsti kostur: Jákvæðni og seigla. Helsta afrek: Dóttir mín. Mestu vonbrigðin: Það er of persónulegt til að segja frá. Hver er draumurinn? Að gefa út plötu með mínu eigin efni og eigin útsetningum. Hver er fyndnastur/fyndnust? Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, leikkona og besta vinkona mín. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Óstundvísi. Uppáhaldsbókin? Alkemistinn eftir Paulo Coelho. Hvað er mikilvægast? Heilsa og hamingja. Kvikmyndin Dead Man’s Card var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Edinborg sem lauk nýverið. Þar var hún valin ein af bestu myndum hátíðarinnar en einn þriggja fram- leiðenda myndarinnar er Sigvaldi J. Kárason. Hann á framleiðslu- fyrirtækið Stray Dogs Films ásamt þremur félögum sínum en fyrir- tækið hefur verið á hægri en öruggri siglingu inn í hinn harða heim kvik- myndaiðnaðarins. Þegar Fréttablaðið náði tali af honum var Sigvaldi staddur inni í klippiherbergi í London en hann vinnur við að klippa kvikmyndina Vantage Point í leikstjórn Peters Travis ásamt Valdísi Óskarsdóttur. Myndin skartar Sigourney Weaver, Dennis Quaid og Forest Whitaker í aðalhlutverkum. „Við sitjum bara hérna hvort í sínu herberginu og reytum hárið hvort af öðru,“ segir Sigvaldi og hlær en leynir ekki aðdáun sinni á því sem fyrir augun hefur borið. „Þetta er ótrúlega flott mynd sem segir sömu söguna frá sjónarhóli ólíkra einstaklinga,“ útskýrir Sigvaldi en fyrir vikið er verkefnið fyrir klipparana mjög erfitt. „Þetta eru margar kvik- myndatökuvélar í einu þannig að herbergið er útkrotað af alls kyns pælingum,“ segir Sigvaldi. Þeir félagar í Stray Dogs Films fengu góð viðbrögð við Dead Man’s Card og þeim bárust tilboð frá bandarískum stórfyrirtækjum sem vildu ýmist dreifa myndinni eða endurgera hana. Sigvaldi segir að þeir séu bara rólegir í tíðinni og bíði eftir rétta tilboðinu enda þýði ekki að vera með neinn æðibunu- gang, slíkt kalli bara á mistök. Stray Dogs Films hefur þegar hafið undirbúning að næstu mynd, Carver Up, sem fjallar um hvernig mafían stjórnar á bak við tjöldin í nýrri bardagaíþrótt sem ber heitið „Mixed Martial Arts“. „Við erum í viðræðum við nokkrar mjög fræg- ar kvikmyndastjörnur um að taka að sér hlutverk í myndinni en það tekur alltaf sinn tíma,“ segir Sig- valdi en upplýsir þó að viðræður standi yfir við Ingvar E. Sigurðs- son um lítið aukahlutverk í mynd- inni. „Ég vil að sjálfsögðu fá sem flesta Íslendinga til vinnu við myndina enda var það upphaflega hugmyndin með þessu öllu saman,“ segir Sigvaldi en reiknað er með að Curver Up fari í tökur í byrjun næsta árs. - fgg SIGVALDI KÁRASON: KLIPPIR MEÐ VALDÍSI ÓSKARSDÓTTUR Framleiðir mafíumynd með stjörnuleikurum SIGVALDI J. KÁRASON Er að klippa stjörnum prýdda Hollywood-mynd ásamt Valdísi Óskarsdóttur og hefur mörg járn í eldinum. LEIKUR HANN MAFÍÓSA? Ingvar E. Sigurðs- son er í viðræðum við Sigvalda og félaga um hlutverk í myndinni Curver Up. HIN HLIÐIN KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR DJASSSÖNGKONA Guðlaug Elísabet fyndnust 25.05.1968 HRÓSIÐ FÆR... ...Borgarholtsskóli fyrir að hafa það að leiðarljósi að skóli sé fyrir alla og stuðla að uppbygg- ingu skólastarfs í Pakistan. Helgi Seljan skildi eftir sig stórt skarð hjá NFS sem verður vandfyllt. Helgi hefur verið ein aðaldriffjöð- urinn í dægurmála- þættinum Ísland í dag og ljóst að hans verður sárlega saknað. Herma heim- ildir Fréttablaðsins að Ásgeir Kolbeinsson muni taka við en hann hefur haft hægt um sig að undanförnu eftir að hnakkabyltingunni var hrundið á Sirkus. - bs Hinir virðulegu gestir IFF -kvik- myndahátíðarinnar, Marisa Tomei og Matt Dillon, hafa spókað sig á landinu síðan þau lentu hér á miðvikudagskvöld- inu. Marisa Tomei er þekkt fyrir áhuga sinn á hvers kyns útivist og hefur meðal annars brugðið sér á hestbak. Hún lenti þó í ógöng- um þegar hún ætlaði að gera sér dagamun og kíkja á Hótel Búðir, sem er vinsæll viðkomustaður stjarnanna hér á landi. Þegar Óskarsverðlauna- hafinn var rétt ókominn sprakk á bílnum hjá henni og unnusta hennar og erfiðlega gekk að gera við dekkið. Stjörnurn- ar dóu ekki ráða- lausar heldur röltu á næstu bóndabæ og fengu inni hjá vingjarnlegum bónda sem var meira en lítið tilbúinn til að aðstoða Tomei. Segir sagan að leikkonan hafi haft mjög gaman af þessari uppákomu og segi söguna við hvert tækifæri. Sannkallað stórskotalið hélt hópinn í miðborg Reykjavíkur á föstudags- kvöldinu. Þau Patti Smith, Matt Dillon, Marisa Tomei og Gerard Butler gerður sér glaðan dag og fóru út að borða á Skólabrú. Lengi vel var talið að Brandon Routh, sem leikur Ofurmennið, myndi bætast í hópinn og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins lét hann sér duga að borða kvöldmat með hópnum en dreif sig síðan heim því frá Skólabrú var haldið niður á Rex þar sem þeir Dillon og Butler létu fara vel um sig og er greinilegt að leikararnir tveir njóta mikillar kvenhylli hér á landi því ungar íslenskar stelpur áttu erfitt með að láta þá félaga í friði. Marisa Tomei lét sig hins vegar hverfa fljótlega og sinnti unnusta sínum og Patti Smith þótti nóg komið eftir kvöldmatinn. Þeir Butler og Dillon máluðu hins vegar bæinn rauðan og höfðu á orði að hingað ætluðu þeir að koma sem oftast. - fgg Fjórar af vinsælustu tónlistar- sjónvarpsstöðvum Bretlands; The Box, Hits, Chart Show og B4 hafa sett nýjasta myndband stúlkna- sveitarinnar Nylon í spilun. Myndbandið er við lagið Clos- er, sem er önnur smáskífa Nylon. Sú fyrsta, Losing a Friend, náði 29. sæti breska vinsældalistans og fór fram úr björtustu vonum. Vonir eru nú bundar við að Closer, sem kemur út í byrjun október, muni endurtaka leikinn. „Það tók okkur margar vikur og allt upp í mánuði að fá svona spilun síðast en að fara með þetta inn á skrifstofu og beint í spilun er alveg meiriháttar,“ segir Einar Bárðarson, umboðsmaður Nylon. Myndbandið var tekið upp á herragarði rétt fyrir utan Liver- pool og þykir vel úr garði gert. Er það væntanlegt í spilun hér heima í næstu viku. „Það þykir styrk- leikamerki að vera kominn með aðra smáskífu og búinn að fara á topp 40. Þá átta menn sig á því að þetta er komið til að vera,“ segir Einar. Stúlkurnar í Nylon eru nú komnar til Bretlands til að undir- búa sig fyrir tónleikaferð með hljómsveitinni McFly sem hefst 17. september. McFly er ein heit- asta strákasveitin í Bretlandi. Hafa þeir sent frá sér vinsæl lög á borð við Obviously, All About You og I Wanna Hold Your Hand sem hafa öll komist í efsta sæti breska vinsældarlistans. Tvennir tónleik- ar verða haldnir á Wembley og verður það í fjórða og fimmta sinn sem stelpurnar í Nylon koma þar fram á þessu ári. ■ Beint í spilun á fjórum stöðvum NYLON Stúlknasveitin Nylon er á leiðinni í enn eina tónleikaferðina um Bretland. Róbert Marshall, framkvæmda- legum forstöðumanni NFS (eða er það öfugt?), er margt til lista lagt og hefur meðal annars sannað að hann er jafnvel enginn eftirbátur Árna Johnsen á söngsviðinu. Svo bar við að á dögunum taldi Róbert að kona nokkur hefði borið kennsl á sig vegna sönghæfileika sinna. Konan mun hafa gert sér dælt við hann á öldurhúsi í borginni og meðal annars hrósað honum fyrir fagran söng. Róbert var að vonum upp með sér en þegar hann spurði hvort hún hefði séð sig troða upp í brekkusöngnum á Þjóðhátíð um árið varð konan sposk á svip og spurði: „Heitirðu ekki Magni?“ 1 dálkur 9.9.2005 15:19 Page 6 Eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni leitar nú Reykjavik Casting, með þær Söru Guðmundsdóttur og Alexíu Björg Jóhannesdóttur í fararbroddi, að fjögur hundruð manns til að leika í einni viða- mestu auglýsingu sem gerð hefur verið á Íslandi. Þegar hafa hundrað manns skráð sig til leiks en þátttakendur þurfa flest allir að vera hálfnaktir fyrir utan hundrað manns, sem þurfa að vera allsberir. Síðasti tökustað- urinn verður á Akureyri og því geta norðanmenn látið til sín taka í auglýs- ingunni, sem leikstýrt er af hinum heimsfræga auglýsingaleikstjóra Ivan Zacharias. Þeim sem hafa áhuga á að striplast úti í guðsgrænni náttúrunni fyrir vænan skilding skal bent á póstfangið reykjavik- casting@gmail.com.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.