Fréttablaðið - 05.09.2006, Page 12
12 5. september 2006 ÞRIÐJUDAGUR
KARTÚM, AP Stjórnvöld í
Súdan segja að Afríku-
bandalagið hafi ekki
umboð til að framselja
núverandi friðargæslu
bandalagsins til Samein-
uðu þjóðanna. SUNA-
fréttastöðin í Súdan hefur
eftir forseta landsins,
Omar al-Bashir, að súd-
anska stjórnin hafni
alþjóðlegri friðargæslu í
landinu og búi sig undir
átök við hana, komi hún óboðin.
Hann hvatti einnig Afríkubanda-
lagið til að hafa sig á brott úr
landinu fyrir lok mánaðarins, en
þá rennur umboð þess til friðar-
gæslu opinberlega út.
Ríkisstjórn Súdans er talin
hafa sent liðsauka til Darfúr-hér-
aðs nýverið og hefur gefið út
yfirlýsingar um að 10.000 manna
súdanskan her nægi til að tryggja
frið í Darfúr. Magnea Marinós-
dóttir alþjóðastjórnmálafræðing-
ur er ekki sérlega bjartsýn á frið-
arhorfurnar. „Til þess að friður
haldist verða allar stríðandi fylk-
ingar að vera á bandi friðarins.
Sú staðreynd að tveir af þrem
uppreisnarhópum í Darfúr-hér-
aði skrifuðu ekki undir friðar-
samningana í maí 2006 gefur ekki
ástæðu til mikillar bjart-
sýni,“ sagði hún í viðtali
við Fréttablaðið. Magnea
bendir einnig á að ein
ástæða mikillar andstöðu
ríkisstjórnar Súdans sé
hlutskipti bandamanna
ríkisstjórnarinnar í Dar-
fúr.
„Í Darfúr eru um
fimmtíu menn sem settir
hafa verið á lista
Alþjóðasakamáladóm-
stólsins yfir stríðslæpamenn.
Þeir eru hliðhollir ríkisstjórninni
og því vill hún leiða málið til
lykta á sínum eigin forsendum,
frekar en að hleypa að alþjóðleg-
um her Sameinuðu þjóðanna, sem
síðan gæti fært þá fyrir
Alþjóðasakamáladómstólinn.“
Núverandi friðargæsluliði
Afríkusambandsins í Darfúr
hefur ekki tekist að sinna hlut-
verki sínu sem skyldi síðan
nokkrir af deiluaðilum skrifuðu
undir friðarsamkomulagið í maí
2006. Eftir að þrír hópar afrískra
Darfúr-manna gerðu uppreisn
gegn arabískum yfirvöldum í
Kartúm árið 2003 hafa um 200.000
manns látið lífið og liðlega 2,5
milljónir lagt á flótta.
klemens@frettabladid.is.
Enginn frið-
ur í Darfúr
Súdönsk yfirvöld segjast undirbúa átök við friðar-
gæslulið SÞ og hvetja Afríkubandalagið til að hverfa
frá héraðinu. Friðarhorfur eru ekki góðar, að mati
Magneu Marinósdóttur alþjóðastjórnmálafræðings.
FLÓTTADRENGUR Í BÚÐUNUM Í TSJAD Tsjadsmegin við landamærin dveljast nú
minnst 200.000 súdanskir flóttamenn úr Darfúr-héraði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKIPULAGSMÁL Fyrsta áfanga framkvæmdarinn-
ar við nýjan duftgarð í Sóllandi í Fossvogsdal
er lokið, segir Þorgeir Adamsson, garðyrkju-
stjóri kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma.
„Landmótuninni er lokið að stórum hluta til,“
segir Þorgeir. „Það er vonast til að kannski
verði hægt að taka hluta garðsins í notkun árið
2008.“
Garðurinn verður rúmlega þrír hektarar og
mun rúma um 32 þúsund duftker. „Þarna er
gert ráð fyrir að verði til grafarsvæði langt
fram á þessa öld,“ segir Þorgeir.
Að sögn Þorgeirs eykst hlutfall þeirra sem
kjósa bálfarir sífellt. „Þetta eru orðin um eða
yfir 25 prósent í dag.
Það er mjög jákvætt að bálförum fjölgi því
það stuðlar að betri landnýtingu og minni
kostnaði við gerð kirkjugarða.“ Þorgeir bendir
á að á höfuðborgarsvæðum nágrannalanda séu
yfirleitt rúm níutíu prósent sem velja bálför.
Nýi garðurinn var hannaður af Sigríði
Magnúsdóttur og Hans-Olav Andersen á
teiknistofunni Tröð. Þau sigruðu samkeppni
sem efnt var til um hönnun garðsins á síðasta
ári. Í honum verða margir duftreitir, aðskildir
með lækjum. - sh
Framkvæmdir við nýjan duftgarð í Fossvogsdal ganga vel:
Grafir langt fram á þessa öld
DUFTGARÐURINN Á myndinni sést glögglega hvernig
fyrirhugað er að láta tjörnina við hlið garðsins flæða í
lækjum milli reitanna. SÓLLAND Hér mun duftgarðurinn rísa. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
JÓN GENGINN YFIR Allt var með kyrr-
um kjörum þegar þessi mexíkóska
kona gægðist út um dyrnar hjá sér
um helgina eftir að fellibylurinn Jón
gekk yfir. Þó er ekki víst að sand-
pokarnir í dyragættinni hafi dugað til
að halda regnvatninu utan dyra.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Námskeiðið Súperform á fjórum vikum hjá Goran
Kristófer, íþróttafræðingi, er hannað til að koma þér af
stað á mjög árangursríkan og einfaldan hátt. Tilgangur
námskeiðsins er að koma þér á æðra stig hvað varðar
líkamlega og andlega heilsu.
Ef þú vilt:
Léttast
Styrkjast
Efla ónæmiskerfið
Bæta meltinguna
Hormóna jafnvægið
Andlega vellíðan
Auka minni og einbeitinguna
Auka orkuna
Komast í form
Bæta heilbrigði
Þú kynnist nýjum möguleikum í matarvali, mat sem örvar
fitubrennslu, hvernig þú átt að glíma við matar -og
sykurþörfina, hvernig þú ferð a því að brenna meira
og léttast.
Fimm tímar í viku – Brennsla, styrking og liðleiki
Takmarkaður fjöldi
Vikulegar mælingar
Eigið prógramm í tækjasal
Persónuleg næringarráðgjöf
Ráðgjöf við matarinnkaup
Fræðsla og eftirfylgni – 2 fyrirlestrar
Slökun og herðanudd í pottum að æfingu lokinni
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Karlar kl. 7:30
Konur kl. 6:30, 10:00, 16:30 og 18:30
Nýtt námskeið hefst 11. september nk.
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is. Námskeið greiðist við
skráningu – athugið síðast komust færri að en vildu.
Næstu námskeið fram að jólum:
16. október (4 vikur) og 13. nóvember (6 vikur).
MAGNEA
MARINÓSDÓTTIR