Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.09.2006, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 10.09.2006, Qupperneq 6
6 10. september 2006 SUNNUDAGUR ������������������������������������������������������ ������ ��������������������������������������������� ������������ ������������������������������������������������������ ���������������� ������������������������ ���������������������������������� �������������������������� �������������������������������������������������������� ������������������ ���������������� ������������������� ���������������������� �������������������������������� ���������������������������������� ���� ������������������������ ������������� ������ ���������������� ��������������� ��������������������������������� ��������������� ���������������������������� ���������������������� ������������� ��� ����� ������������������ ��������� ��������� ��������������� ������������������������� ��� ������������ ���������������� ����� ���������������������� ��� ��������������� ��� ���������������������� ���������������������������� ���������� ������������������� FÍKNIEFNI Fjórtán ára gömul börn sem neytt hafa fíkniefna daglega um nokkurt skeið hafa reglulega leitað eftir að komast í meðferð á meðferðarheimilum SÁÁ. Þetta segir Þórarinn Tyrfings- son, forstöðumaður SÁÁ, en hann segir þess háttar tilfelli oft erfið viðureignar. „Við sjáum fólk hjá okkur sem er í kringum fjórtán ára aldur sem hefur verið í dag- legri neyslu fíkniefna um nokkurt skeið. Það eru undantekningar en þetta kemur reglulega upp, því miður,“ segir Þórarinn. „Það eru misjafnar ástæður að baki hverju atviki fyrir sig en þegar börn eru byrjuð að leita í vímugjafa þetta ung er oftar en ekki mikill vímu- efnavandi í fjölskyldu viðkom- andi. En svo geta einnig verið fleiri og flóknari ástæður að baki.“ Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af ellefu ára gömlum dreng í byrjun mánaðarins en hann hafði í fórum sínum kanna- bisefni og töflur sem ætlaðar voru til neyslu. Lögreglan vinnur að rannsókn málsins ásamt barna- verndaryfirvöldum en drengurinn er einn sá yngsti sem komið hefur við sögu lögreglu vegna fíkniefna- mála. Afar fátítt er að fíkniefna- mál barna undir fimmtán ára aldri komi til kasta lögreglu. Bragi Guðbrandsson, forstöðu- maður Barnaverndarstofu, segir tilvik eins og þetta gefa tilefni til þess að fara heildstætt yfir stöðu fíkniefnamála innan grunnskól- anna en að sögn Braga hefur for- varnarstarf skilað góðum árangri. „Eins og við lítum á þetta atvik þá er alltaf ástæða til þess að staldra við þegar börn koma við sögu í fíkniefnamálum. Þetta er samt nánast einsdæmi að ellefu ára gamall drengur sé tekinn með fíkniefni. Við höfum fengið nokkur svipuð tilvik inn á okkar borð en þau eru afar fá. Allt okkar eftir- litskerfi með neyslu barna á grunn- skólaaldri segir okkur það að ástandið í þessum efnum hafi farið batnandi á síðustu árum. Kannanir á meðal skólabarna sýna okkur að neysla hefur minnkað og ég þakka því ekki síst hækkun á sjálfræði- saldri sem gerði það að verkum að foreldrar fóru að geta gripið með áhrifaríkari hætti inn í atburða- rásina í fleiri tilfellum.“ magnush@frettabladid.is Fjórtán ára daglegir neytendur fíkniefna Fjórtán ára gömul börn, sem eru daglegir neytendur fíkniefna, hafa reglulega leitað sér lækninga á meðferðarheimilum. Forstöðumaður Barnaverndarstofu segir árangur af forvarnarstarfi meðal grunnskólabarna vera ótvíræðan. FÍKNIEFNI GERÐ UPPTÆK Að sögn forstöðumanns Barnaverndarstofu hefur góður árangur náðst í baráttunni gegn fíkniefnavandanum í grunnskólum landsins. Hér sjást lögreglumenn gera fíkniefni upptæk í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ÞÓRARINN TYRFINGSSON Nauðsyn- legt að vinna stöðugt að upprætingu vandans. BRAGI GUÐBRANDSSON Segir forvarnar- starf hafa skilað góðum árangri. SVÍÞJÓÐ Læknir í Umeå í Svíþjóð gerði þau hrapallegu mistök nýlega að skera upp fjórtán ára stúlku til að fjarlægja eistu hennar. Í uppskurðinum fundust engin eistu í líkamanum. Sjúk- lingurinn reyndist ósköp venjuleg stúlka, að sögn vefútgáfu Dagens Nyheter. Mistök urðu með niðurstöðu blóðprófa á sjúkrahúsinu og varð ruglingur með sýni stúlkunnar og drengs með sama eftirnafn sem fæddur var sama ár og til heimilis í sama bæ. Í stað þess að senda stúlkuna til rannsókna á öðru sjúkrahúsi var hún skorin upp. - ghs Sænskir læknar gera mistök: Fundu ekki eistu í stúlku TÖLVULEIKIR Útgáfu leikjatölvunn- ar PlayStation 3 í Evrópu hefur verið frestað fram í mars á næsta ári. Tölvan verður gefin út í Bandaríkjunum og Japan í nóvember, en þá átti hún líka að koma út í Evrópu. Sony kennir vandræðum í fjöldaframleiðslu Blu-Ray geisladrifanna um seinkunina. Seinkunin hefur í för með sér að Microsoft og Nintendo, keppinautar Sony sem framleiða leikjatölvurnar Xbox 360 og Wii, sitja einir að jólakökunni í Evrópu í ár á meðan Sony situr úti í kuldanum. - sþs PlayStation 3 í Evrópu: Útgáfu seinkað fram í mars STJÓRNMÁL Sex, jafnvel sjö, stjórn- málamenn takast á um efstu sætin á lista sjálfstæðismanna í Suðurkjör- dæmi fyrir alþingiskosningarnar næsta vor. Hörð barátta verður um efsta sætið. Árni Mathiesen fjármálaráð- herra gefur kost á sér í fyrsta sætið og mun takast á við Kjartan Ólafs- son alþingismann sem gefur kost á sér í þrjú efstu sætin. „Ég hef lýst yfir að ég er reiðubúinn til að leiða listann ef ég fæ kjörfylgi til þess,“ segir Kjartan. Kristján Pálsson, fyrrverandi alþingismaður, stefnir á öruggt sæti á listanum og skilgreinir það sem eitthvert þriggja efstu sætanna. Þá er talið að Viktor B. Kjartansson, fyrrverandi vara- þingmaður, stefni að fyrsta sæt- inu. Drífa Hjartardóttir alþingiskona stefnir á annað sætið og Guðjón Hjörleifsson þingmaður á annað til þriðja sæti. Gunnar Örn Örlygsson alþingismaður gefur kost á sér í þriðja til fjórða sæti. Árni Johnsen, fyrrverandi þing- maður, vill ekkert segja um stöðuna í framboðsmálum í kjördæminu eða hvort hann hyggur á framboð í vor. Ákvörðun um prófkjör verður tekin í kjördæmisráði Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi í lok september. - ghs Hörð barátta hjá sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi: Sex takast á um efstu sætin Á ALÞINGI Marga langar á þing úr Suð- urkjördæmi og er ljóst að sex, jafnvel sjö, alþingismenn og fyrrverandi alþing- ismenn munu takast á um þrjú efstu sætin í prófkjöri flokksins í vetur. SAMFÉLAGSMÁL Alls voru 186 rannsóknarviðtöl tekin við börn í Barnahúsi á síðsta ári vegna gruns um að þau hefðu sætt kynferðisofbeldi. Bragi Guðbrandsson forstjóri segir að árin 2004 og 2005 hafi fleiri börn þurft að mæta í dómshús en Barnahús vegna skýrslutöku. „Flestir dómarar í landinu notfæra sér Barnahús en dómarar við Héraðsdóm Reykja- víkur hafa ekki gert það en þar eru flest málin tekin fyrir.“ Bragi segir þetta geta orðið til þess að reykvísk börn þurfi að fara á marga staði vegna skýrslutöku, greiningar og meðferðar. - hs Dómarar nota ekki Barnahús: 186 viðtöl í Barnahúsi BARNAHÚS Fleiri börn mæta til skýrslu- töku í dómshúsi en Barnahúsi. KJÖRKASSINN Tekur þú þátt í Göngum til góðs fyrir Rauða krossinn? Já 26% Nei 74% SPURNING DAGSINS Í DAG Hefurðu lesið ljóð á árinu? Segðu þína skoðun á Vísi.is Lögreglan á Selfossi stöðvaði í gær ungan ökumann á Hellisheiðinni sem ók á 156 kílómetra hraða á klukku- stund. Hann má búast við að verða sviptur ökuleyfi auk þess að fá háa sekt. Hann fékk bílprófið fyrir fjórum dögum. LÖGREGLUFRÉTT Með bílpróf í fjóra daga ATVINNA Starfandi erlendir ríkis- borgarar á Íslandi voru 9.010 í fyrra eða 5,5 prósent af heildar- fjölda starfandi sem er aukning um 3,2 prósent frá árinu 1998 samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Árið 1998 voru 1.870 konur með erlent ríkisfang starfandi á móti 1.530 körlum. Hlutföllin hafa síðan snúist við og voru karlar 5.350 í fyrra á móti 3.650 konum starfandi eða um þriðjungi fleiri. Í fyrra störfuðu 4.420 erlendir ríkisborgarar á höfuðborgar- svæðinu en 4.340 utan þess. Utan höfuðborgarsvæðisins störfuðu flestir erlendir ríkisborgarar á Austurlandi eða 1.790. Af öllum starfandi árið 2005 störfuðu flestir við þjónstugrein- ar eða 72 prósent og næstflestir við iðngreinar eða 23 prósent. Fæstir starfa við frumvinnslu- greinar eða aðeins fimm pró- sent. Innan iðngreinanna starfa flestir erlendir ríkisborgarar við mannvirkjagerð eða 1.890 og hafði þeim fjölgað um 1.770 frá árinu 1998. Flestir voru þeir á Austurlandi eða 1.170. Árið 2005 voru flestir starfandi erlendir ríkisborgarar pólskir eða 1.970. Næst á eftir koma ríkis- borgarar frá Danmörku, Filipps- eyjum, Portúgal og Þýskalandi eða 500 frá hverju landi. - sdg Níu þúsund starfandi erlendir ríkisborgarar á Íslandi í fyrra: Karlmenn um þriðjungi fleiri FJÖLDI STARFANDI ERLENDRA RÍKISBORGARA Á ÍSLANDI Konur Karlar 1998 1.870 1.530 2000 2.730 2.510 2002 3.330 3.030 2005 3.650 5.350 ERLENDAR VERKAKONUR Starfandi konum með erlendan ríkisborgararétt hefur fjölgað um 4 prósent frá árinu 1998 á meðan karlmönnum hefur fjölg- að um 72 prósent á sama tíma.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.