Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 15
SUNNUDAGUR 10. september 2006 15 Líbanon og hún var lengi vel vatns- laus og rafmagnslaus og án allra þæginda. Í minningunni fylgir þessum svæðum ákveðið hljóð og þefur; drunur í rafmótorum, sem menn reyna að koma sér upp til að hafa rafmagn, og hljóðið sem kemur þegar gengið er á glerbrot- um. „Maður virðist vera að labba á glerbrotum allan daginn. Miklum hamfara- og styrjaldarsvæðum fylgir líka oft nálykt sem hvílir yfir öllu, mikill hiti, sviti, stress og ljósleysi.“ Jón telur að maðurinn sé að grunni til góður en lendi stundum í þannig kringumstæðum í lífinu að hann verður verkfæri í höndum annarra eða breytist í aðra persónu en hann lagði upp með í lífið. Hann veltir stundum fyrir sér hversu mikinn tilgang hjálparstarf hafi. „Það hefur kannski þann tilgang að sýna samúð, gefa fólki von um að lífið geti tekið aðra stefnu og hjálpa því að sjá leiðir út úr vand- anum. Mikið af þessu hjálparstarfi hér er til þess að sýna fólki að heiminum stendur ekki á sama um afdrif þess og gefa því von um að það séu til aðrar undankomuleiðir en að taka upp vopn og halda áfram að berjast,“ segir hann. Palestínumönnum er alls staðar útskúfað sem þjóð, þeir hafa alist upp sem flóttamenn í hernumdu landi og geta litla björg sér veitt. „Við slíkar kringumstæður skap- ast kynslóð af ofbeldisfólki sem reynir að finna einhverja leið út úr vandanum þegar vonin er ekki lengur til staðar. Alheimurinn sýnir þessu fólki gegnum hjálparstarfið að það sé enn von, lífið verði ein- hvern tímann annað en barátta, eilíf styrjöld og hryðjuverk.“ Hittir helstu leiðtoga heims Jón segir áhugavert að geta fylgst með heimsviðburðunum „beint“ og hitta helstu leiðtoga heims. Í Líbanon hefur hann til dæmis hitt forseta landsins, forsætisráðherra og forseta þingsins. Fróðlegt sé að fylgjast með heimsviðburðum í beinum tengslum við þá sem séu leikarar í þessu sjónarspili. Í Morgunblaðinu birtist nýlega grein þar sem myndatökumenn voru sakaðir um að falsa myndir úr stríðinu til að breyta almenn- ingsáliti heimsins. Jón var í þess- um hópi. Sérstaklega var nefnd fréttamynd hans af sjúkrabíl „með gapandi sár á þaki sjúkrabílsins“, eins og það var orðað í greininni. Jón man eftir myndinni og kann- ast við umræðuna sem hefur verið um allan heim. Hann hafnar þessu algjörlega. „Það er þekkt staðreynd að sannleikurinn er fyrsta fórnar- lambið í öllum styrjöldum og því þurfa fréttamenn að gæta sín meira á þeim vettvangi en hvar- vetna annars staðar. Fréttamanns- starfið hefur kennt mér að trúa aldrei neinu nema ég sjái það berum augum og ég virði almenn- ing sem tekur öllum fréttaflutningi með varúð. Árásin á sjúkrabílinn var hvorki fyrsta né síðasta árásin sem gerð var á sjúkrabíl í þessu stríði. Það hefði því ekki haft neinn tilgang að falsa árás á þennan til- tekna sjúkrabíl. Þar að auki ræddi ég lengi við sjúkraflutningamenn- ina og eins sérfræðinga í hernaðar- aðgerðum áður en þessi mynd var send til dreifingar á BBC. Ég er ekki í minnsta vafa um að þessi atburður átti sér stað. Þar að auki kom afsökun frá Ísraelsmönnum út af þessu.“ Ekki hægt að vinna stríð Stundum er deilt á fréttamenn fyrir að taka afstöðu í fréttaflutn- ingi. Hlutleysið er Jóni eðlislægt og því getur hann myndað og sagt frá því sem hann upplifir í starfi sínu eins og hann sér það. Hann bendir þó á að hann hafi verið Líb- anons-megin í stríðinu og segi því frá lífinu þeim megin en reiknar með að Ísraelar hafi upplifað þján- ingar sín megin. „Ég get ekki lokað augunum fyrir því að almennir borgarar urðu verst úti í átökunum og það er erfitt að sjá hvað vannst með þeim. Það vannst ekkert með þessu stríði. Styrjaldir síðustu ára hafa sýnt að það er erfitt að vinna nútímastríð með vöðvaafli. Ég sé ekki að nokkuð hafi áunnist fyrir málstað Ísraelsmanna í þessu stríði nema síður sé,“ segir hann. Jólagjöf frá Saddam Hussein Jón hefur lent í mörgu og kann ýmsar sögur úr starfi sínu. Hann slær á létta strengi og kveðst ekki alltaf vera í góðum félagsskap. Um jólin hafi hann til dæmis feng- ið þrjár jólagjafir, eina frá systur sinni og tvær frá fjölskyldu Sadd- ams Hussein, en þá var hann nýkominn frá Tígris í Írak, þar sem fjölskylda Saddams býr, og Jemen, þar sem hluti fjölskyld- unnar er í útlegð. „Ég ætlaði að taka viðtal við bróðurdóttur Saddams. Faðir hennar er fyrrverandi innanríkis- ráðherra og er í næsta klefa við hlið Saddams. Hann verður næst- ur þegar réttarhöldunum yfir Saddam lýkur. Hún vildi ekki gefa viðtal en leysti mig út með tveim- ur jólagjöfum þannig að ég segi að ég hafi fengið eina gjöf frá Sadd- am og aðra frá henni. Ég vona að það komi mér ekki á svartan lista hjá Ameríkönum.“ Bin Laden I, bin Laden II... Jón segir aðra sögu af vandræðum sem hann lenti í þegar hann fór í gegnum öryggisgæslu fyrir ára- mótin. Hann var með spólur sem á stóð: Bin Laden I, bin Laden II, bin Laden III og bin Laden IV. „Það fór allt í gang og kallaður til sér- stakur ráðgjafi í öryggismálum áður en ég gat útskýrt að ég hefði nú ekki verið að taka viðtal við Osama heldur Carmen, mágkonu hans. Það var Carmen bin Laden sem var á spólunum, ekki Osama bin Laden. Maður lendir í ýmsu,“ segir hann. Jón hefur þvælst víða um heim- inn. Áður en hann fór til Líbanons var hann í Sómalíu að gera heim- ildarmynd fyrir breskan framleið- anda. Myndin fjallar um konu sem var að ná í heimanmund sinn, hundrað kameldýr, tvo hesta og einn riffil. „Maður fer ekki um Sómalíu án þess að vera með lífverði með sér. Ég var með sjö lífverði með mér. Tveir þeirra hafa fallið í átökum frá því við vorum á ferð þannig að það eru bara fimm eftir.“ ÖRYGGIÐ OFAR ÖLLU Í starfi sínu fer Jón um sum hættulegustu svæði heimsins og þá skiptir máli að hafa lífverði með í för. MEÐ LÍFVÖRÐUNUM Á BÍLPALLI Jón Björgvinsson kvikmyndagerðarmaður með lífvörðum sínum á bílpalli í Sómalíu. Hann var á ferð þar í landi til að gera heim- ildarmynd fyrir breskan framleiðanda. Myndin fjallaði um konu sem var að ná í heimanmund sinn, hundrað kameldýr, tvo hesta og einn riffil. Jón hafði sjö lífverði, tveir þeirra eru nú fallnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.