Fréttablaðið - 10.09.2006, Síða 20

Fréttablaðið - 10.09.2006, Síða 20
 10. september 2006 SUNNUDAGUR20 Dregið úr réttum svörum n.k. fimmtudag kl. 12. - 99 kr. smsið Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ á númerið 1900! Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón. Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON. Leystu kro ssgátuna! Þú gaetir u nnið nýjustu g eislaplötu na með Nelly Furtado, Loo se! ����� ����������� ���� ��� ��� ������ ����� ��� ���� ��� ��������� �������� ���� ����� ������� ����� �������� ���� ������ ������ ������ ���� ������ ���� �������� ������� ���� ������ ���� ������ ����� ��� ���� ���� ��������� ����� ����� ����� ����� ������ ������� ����� ��� ���� ������� �������� ������ �������� ����� ���� ������ ����� ������ ������ ����� ������ �������� ���� ������� ������� �� ����� ������ ������ �� ����� ���� ������� ��� ������ ������ ����� ������ ����� ������� ����� ������� ���� ������ ����� ������ ������ ������� ���� ������� ��� ������ ���� ����� ������ ����� ��������� ������� ������������������������������������������������������������������� �� � ���������� � �� �� � � � � Metnaður í málfari – fyrirtaks hjálpargögn Oft undrast ég þann skort á metnaði hjá opinberum stofnunum, fjölmiðl- um og fyrirtækjum sem birtist marg- sinnis í óvönduðu málfari og sýnir dapurlegt kæruleysi eða hreina van- þekkingu. Texti frá stofnunum og fyr- irtækjum er auðvitað hluti af ímynd, hvernig þau vilja koma almenningi fyrir sjónir. Og satt best að segja eru auglýsingastofurnar ekki barnanna bestar. Nú eigum við sem betur fer ágæt hjálpargögn til að vanda mál- far. Íslensk orðabók er trúlega öllum kunn og Íslensk samheitaorðabók og Mergur málsins eftir Jón G. Frið- jónsson um notkun orðatiltækja. En nýverið hafa komið út tvær stór- merkar bækur. Ég nefni Stafsetning- arorðabókina nýju, sem bætir úr brýnni þörf, og síðast en ekki síst Stóru orðabókina um íslenska mál- notkun eftir Jón Hilmar Jónson. Hún er ekkert annað en einstakt afrek, og ómetanleg hjálparhella. Þessar tvær bækur (og raunar hinar líka) ættu að vera í daglegri notkun hjá öllum íslenskum stofnunum og fyrirtækj- um. Tökum öll þátt í að rækta málfar okkar. Vel að orði komist – og miður Prýði er að því að krydda málfar sitt með vel völdu myndmáli. Hér eru nokkur nýleg dæmi: Steingrímur J. Sigfússon sagði í tilteknu máli að rík- isstjórnin [væri] fundvís á steina til að hnjóta um. Við annað tækifæri líkti hann afstöðu ráðherra við vegg úr járnbentri steinsteypu. Ragna Aðal- steinsdóttir á Laugabóli í Laugardal í Djúpi segist stundum hafa fengið til sín unglinga sem hafa lent í lausamöl lífsins. Kristín Helga Gunnarsdóttir spyr í Fréttablaðinu: „Er nema von að slökkviliðsmenn séu bálreiðir?“ „Hug- myndin um Evrópusambandsaðild hefur verið í pólitískri klakabrynju.“ Birgir Guðmundsson í Fréttablaðinu. En myndmál þarf að eiga sér innri samsvörun. Ekki er heppilegt að kom- ast svo að orði eins og einn þingmað- ur í ræðustóli sem sagði iðnaðarráð- herra „sitja kyrr í því fari sem hún hefur tekið sér fyrir hendur“. Eða þegar talað er um „að skera niður starfsfólk“. Hengdir menn eru skornir niður úr snöru, en starfsfólki er fækk- að. Ekki er fallegt að „skjóta á 55 þús- und manns“ í miðbænum eins og Sif Gunnarsdóttir hafði eftir lögreglu- þjóni á menningarnótt. Vingjarnlegra væri að giska á þann fjölda. Og hvað segja menn um að „hjúkrunarheimili sitji öll við sama borð“ eins og segir í fyrirsögn í Mbl. 20. ágúst. Sjá menn fyrir sér borðhaldið? Skyr með óbragði? Tungumálið getur verið skrítið. Maður sem stuðlar að sölu landbúnaðarvara til Bandaríkjanna talaði um jarðar- berjaskyr og að prófa „óbragðbætt“ skyr. Er það skyr bætt með óbragði? Kannski er hreinlegra að tala um hreint skyr. Gangandi vegfarandi Oft heyrum við og lesum í fréttum að „ekið var á gangandi vegfaranda“. Gallinn við svona orðalag er hversu stofnanalegt það er og ómyndrænt. Hvað er eiginlega vegfarandi? Er það maður, kona eða barn? Gamall maður með göngustaf, kona með inn- kaupapoka, unglingsstúlka á reið- hjóli, strákur á hjólaskautum? Þið takið eftir því að strax er komin ofur- lítil mynd með lítilli breytingu. Frétt er lýsing, að hluta til að minnsta kosti, og því ber almennt að forðast ómynd- rænt, óhlutbundið orðalag, og reyna að láta lesandann sjá hvað býr að baki orðanna. Braghenda Braghenda dagsins varð til í Miðvík inn af Aðalvík: Brönugrasið bregður sínum bleika lit neðar skartar fífa á fit fellur sólargeisli á Rit Mörgum þykir sem jafnaðarstefn- an, hin eina sanna hreina, eigi erf- itt uppdráttar í Samfylkingunni. Því vakti það mikla athygli á Ölstofunni að kvöldi föstudags þegar Jón Bald- vin Hanni- balsson, hinn eini sanni leiðtogi krata, mætti flottari en nokkru sinni á staðinn. Í kónga- bláum jakka úr flaueli og mælskur að vanda. Og ljóst var að hugsjónin sú sem hann stendur og hefur stað- ið fyrir er hvergi nærri dauð. Í kringum Jón Bald- vin safn- aðist svo vel mannaður „læri- sveinahópur“ sem nam hvert orð af vörum meistarans af mikilli athygli. Voru þeir þar mættir Jakob Frímann Magnússon tónlist- armaður, Hallgrímur Helgason rit- höfundur, Ásgeir Friðgeirsson ráð- gjafi auk þess sem Hallur Helgason athafnamaður úr Hafnarfirði slóst í hópinn. Hallur er reyndar flokks- bundinn Sjálfstæðismaður og var í framboði fyrir flokkinn þann í síð- ustu bæjarstjórnarkosningum. Er reyndar aldrei að vita nema hann söðli um, enda sannfæringarkrafti Jóns við brugðið. Var til þess tekið af þeim sem utan stóðu hversu samstilltur hóp- urinn var og þegar Jóni tókst sér- lega vel upp, sagði skemmtilegar sögur, slógu menn sér á lær og skelltu upp úr. - jbg Við fótskör meistarans JÓN BALDVIN HANNIBALSSON Leiftrandi að vanda á Ölstof- unni en á hann hlýddi valinkunn- ur hópur. HLJÓÐFÆRI HUGANS Njörður P. Njarðvík skrifar um íslenskt mál Vilji menn senda mér braghendu eða góðfúslegar ábendingar: npn@vortex.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.