Fréttablaðið - 10.09.2006, Side 70

Fréttablaðið - 10.09.2006, Side 70
30 10. september 2006 SUNNUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Í dag hefst 16. umferð Landsbankadeildar karla með fjórum leikjum. FH getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn ÍBV í Vestmannaeyjum og Ólafur Þórðarson, sem spáir í spilin fyrir Fréttablaðið í dag, býst ekki við öðru. „Þeir tryggja sér tit- ilinn í þessum leik. Ég held að það sé ekki spurning,“ sagði Ólafur. Augu margra munu þó sjálf- sagt beinast að fallbaráttunni sem er gríðarlega spennandi. ÍBV er á botninum og segir Ólafur að örlög liðsins séu nánast ráðin. „ÍBV er svo gott sem fallið. En ég tel að fjögur lið séu svo í mikilli fall- hættu en þetta eru Fylkir, Grinda- vík, Breiðablik og ÍA. Þarna munar ekki nema tveimur stigum á liðun- um.“ Tvö þessara liða munu mætast innbyrðist í dag er Breiðablik tekur á móti gamla liði Ólafs, ÍA. „Þetta er vitaskuld afar mikilvæg- ur leikur fyrir bæði lið. Ég var búinn að spá honum jafntefli og held mér við það.“ Hin liðin, Fylkir og Grindavík, eiga mjög erfiða útileiki fyrir höndum en Fylkir fer til Keflavík- ur í dag og á morgun tekur Valur á móti Grindvíkingum. „Þetta verð- ur mjög erfitt fyrir bæði Fylki og Grindavík. Keflavík hefur staðið sig mjög vel, leikmennirnir eru fullir sjálfstrausts og komnir í bikarúrslit. Valur er á góðu róli og vill sjálfsagt tryggja sér annað sætið í deildinni,“ sagði Ólafur. Þá mætast Víkingur og KR einnig í dag en fyrrnefnda liðið vill sjálfsagt fá nokkur stig til við- bótar til að gulltryggja veru sína í deildinni. „Víkingar eru með mikið baráttulið og bæði lið hafa sjálf- sagt áhuga á að styrkja stöðu sína í efri hluta deildarinnar.“ Ólafur sagði á almennum nótum að botnbaráttan hafi komið sér mest á óvart í sumar. „Ég reiknaði fyrirfram ekki með því að jafn mörg lið og raunin er yrðu í hættu undir lok mótsins. Staðan á toppn- um hefur verið svipuð og búist var við enda FH eina liðið sem hefur verið stöðugt í sumar. Það var fyrst þegar þeir voru nánast búnir að tryggja sér titilinn að þeir fóru að misstíga sig. Þá hefur það einn- ig verið mjög athyglisvert að öðrum liðum sem var spáð í topp- baráttuna hefur ekki tekist að fylgja eftir þeim væntingum,“ sagði Ólafur. Leikir dagsins hefjast kl. 14 en Valur mætir Grindavík kl. 20 annað kvöld og er leikurinn í beinni útsendingu á Sýn. Viður- eign Breiðabliks og ÍA í dag er sömuleiðis í beinni útsendingu á sömu stöð. - esá ÓLÍK HLUTSKIPTI Baldur Aðalsteinsson úr Val tæklar hér Fylkismanninn Arnar Þór Úlfarsson en Kristinn Hafliðason fylgist með. Valur er í baráttu um Evrópusæti en Fylkismenn eru enn í talsverðri fallhættu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ólafur Þórðarson fyrrum þjálfari ÍA spáir því að FH verði Íslandsmeistari í dag: ÍBV fellur og fjögur önnur lið eru í hættu Bestur í Landsbankadeildinni? Bjarnólfur Lárusson. FH er ... frá Hafnarfirði. ÍBV er ... í bullandi fallbaráttu. Landsliðið er ... á réttri leið. Tannlækna eða þjálfa? Þjálfa. Herjólfur eða flug? Flug, ekki spurning. Þjóðhátíð er ... geðveik. Lopasokkur er ... mjúkur, linur, litlaus og lítið spennandi. Besti leikmaður heims? Steven Gerrard. Hverjir verða Englandsmeistarar? Liver- pool. KF Nörd eða Búbbarnir? KF Nörd. Uppáhalds skyndibiti? KFC. Árni Johnsen eða Bubbi? Árni Johnsen. Hvernig fer gegn FH? ÍBV vinnur. MEÐ HEIMI HALLGRÍMSSYNI60 SEKÚNDUR FÓTBOLTI Markadrottningin Mar- grét Lára Viðarsdóttir skoraði þrennu fyrir Val í gær þegar liðið mætti Breiðablik í bikarúrslita- leik kvenna, staðan var 3-3 eftir venjulegan leiktíma og framleng- ingu og því gripið til vítaspyrnu- keppni. Þar voru það Valsstúlkur sem nýttu allar fjórar spyrnur sínar á meðan Blikastúlkur skor- uðu aðeins úr einni og því er Valur tvöfaldur meistari í kvennaflokki 2006. „Þetta er alveg meiriháttar og frábært að ná sigri eftir þennan kaflaskipta leik. Við vildum þetta bara meira held ég og það skilaði sér. Það er alveg klárt mál að bæði lið hefðu hæglega getað unnið þennan leik, Breiðablik átti ekki skilið að tapa en það áttum við ekki heldur. Við fengum ekki að fagna í síðustu viku þegar við urðum Íslandsmeistarar en nú ætlum við heldur betur að bæta upp fyrir það,“ sagði Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, eftir leikinn í gær. „Í svona leik verður allt að vera til staðar. Dóra María er farin til Bandaríkjanna og gat ekki leikið með okkur í þessum leik og þar með misstum við ákveðið bit úr sóknarleiknum. Maður kemur í manns stað og liðið stóð sig frá- bærlega í dag,“ sagði Elísabet. Fyrir tímabilið voru margir sem héldu að Breiðablik myndi einoka titlana þetta tímabil en önnur er raunin. „Þetta er ekki ósvipað og í fyrra þegar allir héldu að við myndum taka þetta, þá unnu þær tvöfalt og það sat í okkur. Það er ekkert gefið í þessu.“ Valur fékk óskabyrjun í leikn- um en Margrét Lára skoraði stór- glæsilegt mark beint úr auka- spyrnu strax á fjórðu mínútu. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir hafði þá brotið á Margréti og var heppin að fá aðeins að líta gula spjaldið frá Einari Erni Daníelssyni, dóm- ara leiksins. Eftir þetta vöknuðu Blikastúlkur og tóku völdin á vell- inum, það skilaði sér í marki á 26. mínútu þegar Elín Anna Steinars- dóttir skoraði skallamark eftir hornspyrnu Gretu Mjallar Samú- elsdóttur. Margrét Lára skaut framhjá úr góðu færi áður en Breiðablik tók forystuna og aftur kom markið eftir hornspyrnu. Boltinn barst úr þvögunni í teignum og út á Ólínu Guðbjörgu Viðarsdóttur fyrirliða sem var ekkert að hika og skoraði gott mark. Breiðablik fékk nokkur mjög góð færi til að komast tveim- ur mörkum yfir en Valur hafði heppnina með sér, Ásta Árnadóttir var til dæmis stálheppin að skora ekki sjálfsmark snemma í seinni hálfleik. Það var svo á 57. mínútu sem Valur jafnaði en þá misreikn- aði vörn Breiðabliks langa send- ingu og Margrét Lára náði að skora. Bæði lið fengu færi á að tryggja sér sigurinn í venjulegum leik- tíma en ekki tókst það. Breiðablik endurheimti forystuna á elleftu mínútu framlengingar en þá átti varamaðurinn Fanndís Friðriks- dóttir fyrirgjöf sem rataði á Ernu Björk Sigurðardóttur sem skor- aði. En í byrjun seinni hluta fram- lengingarinnar slapp Margrét Lára ein í gegn og kláraði vel. Stuttu síðar vildi hún fá víta- spyrnu en ekkert var dæmt. Loka- færið fékk hin reynslumikla Guð- laug Jónsdóttir fyrir Breiðablik en Valur náði að bjarga á síðustu stundu. elvargeir@frettabladid.is Valsstúlkur hömpuðu bikarnum Margrét Lára Viðarsdóttir var svo sannarlega á skotskónum þegar Valur vann Breiðablik í bikarúrslitaleik kvenna á Laugardalsvelli. Leikurinn var æsispennandi og tryggði Valur sér sigurinn í vítaspyrnukeppni. BIKARINN ER OKKAR Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals, heldur fast um bikarinn eftir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI BIKARMEISTARA 2006 Valsstúlkur tóku báða stóru bikarana á tímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GANGUR VÍTAKEPPNINNAR: 1-0 MARGRÉT VIÐARSDÓTTIR SKORAR 1-0 EDDA GARÐASDÓTTIR VARIÐ 2-0 MÁLFRÍÐUR SIGURÐARD. SKORAR 2-1 GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR SKORAR 3-1 RAKEL LOGADÓTTIR SKORAR 3-1 ERNA SIGURÐARDÓTTIR SKÝTUR YFIR 4-1 GUÐNÝ BJÖRK ÓÐINSDÓTTIR SKORAR FÓTBOLTI „Þetta er súrt, það er ekki hægt að neita því,“ sagði Guðmundur Magnússon, þjálfari Breiðabliks. „Mér fannst við hafa undirtökin í venjulegum leiktíma og áttum að gera út um leikinn í byrjun seinni hálfleiks. Þegar líða fór á varð þetta jafn baráttuleik- ur. Hörkugaman fyrir áhorfendur en hundleiðinlegt fyrir okkur. Það er klárt mál að þetta tímabil er mikil vonbrigði fyrir okkur og ekki það sem við ætluðum okkur. En við verðum bara að bíta í það súra epli,“ sagði Guðmundur, hundsvekktur eftir leikinn. - egm Guðmundur Magnússon: Áttum að gera út um leikinn FÓTBOLTI „Þetta var frábær endir á stórkostlegu tímabili,“ sagði Margrét Lára Viðarsdóttir eftir sigurinn í gær. „Þetta var hörkuleikur, er þetta ekki það sem áhorfendur vilja? Það er alltaf verið að gagnrýna kvenna- boltann en ég held að fólk geti dregið þau orð til baka. Tvö frábær lið mættust í leik sem hefði getað endað á hvorn veginn sem var,“ sagði Margrét en þess má geta að 819 áhorfendur sáu þennan stórskemmtilega leik í Laugardalnum í gær. „Liðið spilaði vel í heild sinni en ég neita því ekki að það er frábær tilfinning að hafa náð að skora þrennu. Við höfum ekkert mjög reynslumikið lið, það eru margar óreyndar stelpur og við lentum í erfiðleikum eftir að hafa komist yfir. En við náðum að rífa okkur upp og klára þetta. Við þurftum ekki að búa til tilfinning- una eftir þennan leik eins og við þurftum þegar við fengum Íslansdmeistarabikarinn og það er allt annað,“ sagði Margrét Lára. - egm Margrét Lára Viðarsdóttir: Náðum að rífa okkur upp MARGRÉTI FAGNAÐ Vatni var hellt yfir Margréti Láru eftir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI > Heiðar endaði í 9. - 12. sæti Heiðar Davíð Bragason, kylfingur úr Kili, hafnaði í 9.-12. sæti á Thermia mótinu í gær en það er hluti af sænsku mótaröðinni. Heiðar lék á höggi undir pari fyrsta keppnisdaginn en lék síðan illa á öðrum degi eða á fimm höggum yfir pari vallarsins. Hann náði hins vegar að laga stöðu sína umtalsvert í gær þegar hann lék á tveimur höggum undir pari. Hann endaði því samtals á tveimur höggum yfir pari en hann fékk þrjá fugla í gær. Joakim Rask sigraði á Thermia- mótinu á samtals sex undir pari en í öðru sæti varð Pelle Edberg sem lék á fimm höggum undir pari. TENNIS Svisslendingurinn Roger Federer tryggði sér í gær sæti í úrslitum einliðaleiks karla á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis. Hann lagði Nikolay Davydenko í undanúrslitum í þremur settum á rétt tæpum tveimur tímum. Hann mætir annað hvort Andy Roddick eða Mikhail Youzhny í úrslitum en þeirri viðureign var ekki lokið í gærkvöldi áður en Fréttablaðið fór í prentun. - esá Opna bandaríska í tennis: Federer í úrslit

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.