Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 71

Fréttablaðið - 10.09.2006, Blaðsíða 71
SUNNUDAGUR 10. september 2006 31 2. deild karla VÖLSUNGUR-KS/LEIFTUR 1-0 ÍR-SELFOSS 2-0 SINDRI-AFTURELDING 1-0 REYNIR-FJARÐABYGGÐ 1-2 HUGINN-NJARÐVÍK 1-3 LOKASTAÐAN FJARÐABYGGÐ 18 14 2 2 39-12 44 NJARÐVÍK 18 13 4 1 46-13 43 REYNIR S. 18 9 5 4 37-18 32 SELFOSS 18 7 6 5 26-18 27 ÍR 18 8 3 7 36-32 27 VÖLSUNGUR 18 6 4 8 24-32 22 AFTURELDING 18 5 3 10 27-41 18 KS/LEIFTUR 18 4 4 10 24-34 16 SINDRI 18 3 3 12 19-60 12 HUGINN 18 2 4 12 25-43 10 3. deild karla HÖTTUR-MAGNI 3-2 0-1 Hreggviður Gunnarsson (5.), 0-2 Stefán Gunn- arsson, 1-2 Hallur Ásgeirsson (45.), 2-2 Stefán Eyj- ólfsson (54.), Hallur Ásgeirsson (56.). ÍH-KÁRI 5-0 Höttur, Magni og ÍH leika í 2. deild að ári. Enska úrvalsdeildin EVERTON-LIVERPOOL 3-0 1-0 Tim Cahill (24.), 2-0 Andy Johnson (36.), 3-0 Andy Johnson (90.). ARSENAL-MIDDLESBROUGH 1-1 0-1 James Morrison (22.), 1-1 Thierry Henry, víti (67.). Rautt: George Boateng, Boro (62.). BOLTON-WATFORD 1-0 1-0 Gary Speed, víti (90.). CHELSEA-CHARLTON 2-1 1-0 Didier Drogba (6.), 1-1 Jimmy Floyd Hasselba- ink (54.), 2-1 Ricardo Carvalho (63.). NEWCASTLE-FULHAM 1-2 1-0 Scott Parker (54.), 1-1 Brian McBride (82.), 1-2 Carlos Bocanegra (89.). PORTSMOUTH-WIGAN 1-0 1-0 Benjani Mwaruwari (69.). SHEFFIELD UNITED-BLACKBURN 0-0 MANCHESTER UNITED-TOTTENHAM 1-0 1-0 Ryan Giggs (9.). STAÐAN MAN. UTD. 4 4 0 0 11-2 12 PORTSMOUTH 4 3 1 0 8-0 10 EVERTON 4 3 1 0 10-2 10 CHELSEA 4 3 0 1 8-3 9 ASTON VILLA 3 2 1 0 5-2 7 BOLTON 4 2 1 1 4-3 7 FULHAM 4 2 1 1 5-7 7 WEST HAM 3 1 1 1 5-4 4 LIVERPOOL 3 1 1 1 3-5 4 MAN. CITY 3 1 1 1 1-3 4 M’BORO 4 1 1 2 5-9 4 READING 3 1 0 2 4-5 3 WIGAN 3 1 0 2 2-3 3 NEWCASTLE 3 1 0 2 3-5 3 TOTTENHAM 4 1 0 3 2-5 3 CHARLTON 4 1 0 3 4-8 3 ARSENAL 3 0 2 1 2-3 2 SHEFF. UTD. 4 0 2 2 1-4 2 BLACKBURN 4 0 2 2 1-6 2 WATFORD 4 0 1 3 3-6 1 ÚRSLIT LEIKJA Visa-bikarkeppni kvenna: VALUR-BREIÐABLIK 3-3 (4-1) 1-0 Margrét Lára Viðarsdóttir (4.), 1-1 Elín Anna Steinarsdóttir (26.), 1-2 Ólína G. Viðarsdóttir (38.), 2-2 Margrét Lára Viðarsdóttir (57.), 2-3 Erna B. Sigurðardóttir (100.), 3-3 Margrét Lára Viðarsdóttir (107.). Valur vann, 4-1, í vítarspyrnukeppni. 1. deild karla HK-VÍKINGUR Ó. 0-1 0-1 Sivko Aljosa (38.). ÞÓR-FRAM 1-0 1-0 Lárus Orri Sigurðsson (25.). FJÖLNIR-LEIKNIR R. 0-0 HAUKAR-STJARNAN 1-2 1-0 Ómar Karl Sigurðsson (16.), 1-1 Valdimar Tryggvi Kristófersson (50.), 2-1 Valdimar Tryggvi Kristófersson (84.). ÞRÓTTUR-KA 1-0 1-0 Arnljótur Ástvaldsson (49.). STAÐAN FRAM 17 12 2 2 31-14 38 HK 17 10 2 5 30-17 32 FJÖLNIR 17 8 5 4 23-14 29 ÞRÓTTUR 17 9 1 7 19-16 28 STJARNAN 17 6 5 6 24-21 23 LEIKNIR 17 4 6 7 20-23 17 KA 17 5 3 9 21-25 18 VÍKINGUR Ó. 17 4 6 7 15-21 18 HAUKAR 17 4 4 9 19-28 16 ÞÓR 17 4 4 9 14-37 16 ÚRSLIT LEIKJA Championship - England BARNSLEY-STOKE CITY 2-2 COVENTRY-NORWICH 3-0 DERBY-SUNDERLAND 1-2 Leikurinn var sá fyrsti hjá Sunderland undir stjórn Roy Keane. BIRMINGHAM-HULL CITY 2-1 IPSWICH-SOUTHAMPTON 2-1 WBA-LEICESTER 2-0 LUTON-CRYSTAL PALACE 2-1 BURNLEY-COLCHESTER UNITED 1-2 PRESTON NORTH END-CARDIFF 2-1 SOUTHEND-SHEFFIELD WEDNESDAY 0-0 PLYMOUTH-QPR 1-1 League One - England LEYTON ORIENT-BRENTFORD 1-1 Ólafur Ingi Skúlason var ekki í liði Brentford. Danska úrvalsdeildin ESBJERG-FC KAUPMANNAHÖFN 2-2 AALBORG-BRÖNDBY IF 1-1 Hannes Þ. Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Brönd- by. Hann lék vinstra megin í þriggja manna sókn- arlínu. Þýska bikarkeppnin DYNAMO DRESDEN-HANNOVER 96 2-3 Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom ekki við sögu í liði Hannover. FK PIRMASENS-WERDER BREMEN 1-1 Pirmasens vann í vítaspyrnukeppni, 4-2. STUTTGART KICKERS-HAMBURGER SV 4-3 Ítalska úrvalsdeildin AS ROMA-AS LIVORNO 2-0 1-0 De Rossi (45.), 2-0 Mancini (55.). FIORENTINA-INTER 2-3 0-1 Cambiasso (11.), 0-2 Cambiasso (41.), 0-3 Ibrahimovic (61.), 1-3 Luca Toni (68.), 2-3 Luca Toni (79.). Skoska úrvalsdeildin ABERDEEN-CELTIC 0-1 HEARTS-ST. MIRREN 0-1 MOTHERWELL-INVERNESS 1-4 DUNFERMLINE-KILMARNOCK 3-2 RANGERS-FALKIRK 4-0 Spænska úrvalsdeildin BARCELONA-OSASUNA 3-0 1-0 Samuel Eto’o (1.), 2-0 Samuel Eto’o (27.), 3-0 Lionel Messi (37.). FÓTBOLTI Það mun ekki ráðast fyrr en í lokaumferðinni í 1. deild karla hvaða lið mun fylgja Fram upp í Landsbankadeildina en næstsíð- asta umferðin fór fram í gær. HK- ingum hefði nægt jafntefli gegn Víkingi Ólafsvík á heimavelli sínum til að tryggja sér annað sætið þar sem Fjölnir og Leiknir gerðu markalaust jafntefli í Graf- arvoginum. Víkingar eru í harðri fallbaráttu og náðu í öll stigin þrjú en það var mark Aljosa Sivko í fyrri hálfleik sem réði úrslitum á Kópavogsvelli. „Ég er ekki nægilega sáttur. Hins vegar gerðum við oft á tíðum ágætis hluti og náðum að skapa okkur fín færi en tókst ekki að skora. Víkingur verst mjög vel og erfitt að brjóta liðið á bak aftur, eftir að við lentum undir varð þetta enn erfiðara. Það vantaði herslumuninn hjá okkur,“ sagði Gunnar Guðmundsson, þjálfari HK, eftir leikinn. Davíð Magnússon átti skot í slá fyrir HK snemma leiks og þá mis- notaði Finnur Ólafsson dauðafæri til að koma liðinu yfir áður en gestirnir skoruðu á 38. mínútu. Einar Hjörleifsson átti stórleik í marki Víkinga og hélt markinu hreinu. „Það var svekkjandi að ná ekki að tryggja okkur upp í þessum leik en þetta er ekki búið og við eigum möguleika á að klára þetta sjálfir. Það ætlum við að gera,“ sagði Gunnar. HK heimsækir Fram á Laugardalsvöllinn í loka- umferðinni um næstu helgi en Framarar hafa tryggt sér fyrsta sætið þrátt fyrir að hafa tapað fyrir Þór í gær. Fjölnir á enn möguleika á öðru sætinu en liðið er þremur stigum á eftir HK og leikur gegn KA á útivelli í lokaum- ferðinni. HK-ingar eru með betri marka- tölu, hafa þrettán mörk í plús en Fjölnir er með níu. HK-ingar er því í talsvert betri stöðu og með þetta í sínum höndum, Fjölnir getur þó komist upp fyrir þá með því að vinna KA 3-0 ef Fram vinn- ur HK 2-0 svo dæmi sé tekið. Vegna fjölgunar í 1. deild fellur aðeins eitt lið úr deildinni í ár en það sæti kemur í hlut Þórs Akur- eyri, Víkings Ólafsvíkur eða Hauka sem töpuðu í gær fyrir Stjörnunni. „Fyrirfram hefðum við verið sáttir við eitt stig enda er HK með betri mannskap en við. Strákarnir spiluðu þó megnið af leiknum rosalega vel og börðust vel. Fyrir einhverjum fjórum umferðum var fólk farið að bóka fall hjá okkur en nú er þetta eiginlega í okkar hönd- um, með sigri í lokaumferðinni höldum við okkur uppi,“ sagði Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvíkur, eftir leikinn í gær. Víkingur tekur á móti Haukum í lokaumferðinn en bæði lið eru í fallhættu. Þar sem þessi lið mæt- ast innbyrðis er Þór eina liðið til viðbótar sem er í fallhættu en Þórsarar heimsækja Leiknismenn í lokaumferðinni. Það er í höndum allra þeirra þriggja liða sem eru í fallhættu að bjarga sér, staðan er þannig ef þau vinna sína leiki bjarga þau sér frá falli óháð því hvernig fer í öðrum leikjum. Það er því mikil spenna fyrir lokaum- ferð 1. deildarinnar sem fram fer næsta laugardag. elvargeir@frettabladid.is SPENNA Gunnleifur Gunnleifsson og félagar í HK fylgjast spenntir með stöðunni í leiks Fjölnis og Leiknis á textavarpinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FAGNAÐ Í BÚNINGSKLEFANUM Víkingar frá Ólafsvík fögnuðu sigrinum vel og inni- lega. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL HK mistókst ætlunarverkið Eftir úrslit gærdagsins í 1. deild karla er ljóst að Fjölnir á enn von um að komast upp í Landsbankadeildina. Þegar ein umferð er eftir eru þrjú lið í fallhættu en þrátt fyrir tap í gær tryggði Fram sér sigur í deildinni. Handbolti SK Århus tapaði öðrum leik sínum í röð í dönsku úrvals- deildinni í handbolta kvenna í gær. Liðið tapaði fyrir Team Esbjerg, 29-22, á útivelli. Hrafn- hildur Skúladóttir skoraði fimm mörk fyrir Århus en markvörður- inn Berglind Íris Hansdóttir leikur einnig með liðinu. - esá Danski handboltinn: Århus tapaði aftur KÖRFUBOLTI Í gær lék íslenska körfuboltalandslið kvenna sinn fyrsta leik í Evrópukeppninni og tapaði honum naumlega fyrir liði Hollands, 66-61, en leikið var í Rotterdam. Ísland hafði undirtök- in í leiknum þar til Holland komst í fyrsta sinn yfir í leiknum, er rúmar þrjár mínútur voru til leiks- loka. „Því miður, á síðustu mínútun- um misstum við þetta úr höndun- um. Við klikkuðum á fráköstunum og leyfðum þeim að taka þrista í restina sem þær nýttu. En ég er afskaplega stoltur af stelpunum, þær spiluðu mjög vel í leiknum. Ég held að Holland og aðrir hafi ætlað að þetta yrði bara léttur leikur.“ Ísland komst í 16-7 forystu strax í fyrsta leikhluta en staðan í hálfleik var 33-31, Íslandi í vil. Liðið var enn í forystu eftir þriðja leikhluta en í stöðunni 59-56 skor- aði Holland níu stig í röð og íslensku leikmennirnir misstu leikinn frá sér. Helena Sverrisdóttir var stiga- hæst Íslendinganna með 25 stig, tók átta fráköst og fiskaði þrettán villur. Birna Valgarðsdóttir var með sextán stig, Signý Hermanns- dóttir skoraði átta stig, tók ellefu fráköst, stal fimm boltum og varði fimm bolta. Kristrún Sigurjóns- dóttir skoraði átta stig, Hildur Sig- urðardóttir tvö stig sem og María Ben Erlingsdóttir . esá HELENA SVERRISDÓTTIR Skoraði 25 stig í Hollandi og var stigahæst í íslenska liðinu. FRÉTTABLAÐIÐ Naumur sigur Hollands á Íslandi í fyrsta leik liðanna í B-deild Evrópumótsins: Svekkjandi tap í fyrsta leik Íslands FORMÚLA Finninn Kimi Raikkönen stal senunni á Monza í tímatökun- um í gær er hann klófesti ráspólinn úr greipum Michael Schumacher með því að koma í mark 0,002 sekúndum á undan Þjóðverjanum. Fernando Alonso náði fimmta besta tímanum en ræsir tíundi í röðinni sem refsingu fyrir að hindra Felipe Massa. Nick Heidfeld verður þriðji á ráspól. - esá Formúla 1: Kimi á ráspól FÓTBOLTI Juventus lagaði stöðu sína í Seríu B á Ítalíu í gær er það gerði 1-1 jafntefli við Rimini. Þetta var reyndar fyrsti leikur tímabilsins en Juventus byrjar með sautján stig í mínus. Varnarmaðurinn Matteo Para skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Juve og leikmaður Rimini var svo vikið af velli fyrir tæklingu á Pavel Nedved. En misskilningur hjá Robert Kovac og Jean-Alain Boumsong varð til þess að heimamenn jöfnuðu metin. Var þetta fyrsti leikur Juventus utan Seríu A í sögu liðsins. - esá Juventus í Seríu B: Jafntefli í fyrsta leik á Rimini FÓTBOLTI Knattspyrnumaður að nafni Matt Gadsby lést í miðjum leik í gær. Gadsby var varnar- maður í neðrideildarliðinu Hinkley United og tók þátt í deildarleik gegn Harrogate Town á útivelli en liðin leika í norður- hluta Englands. Leiknum var þegar í stað aflýst. - esá Fótboltamaður á Englandi: Leikmaður lést í miðjum leik HANDBOLTI Það var sannkallaður toppslagur í þýsku úrvalsdeildinni í gær er Flensburg tók á móti Gum- mersbach en bæði lið eru þjálfuð að Íslendingum. Viggó Sigurðsson, fyrrum landsliðsþjálfari, stýrir Flensburg tímabundið og núver- andi landsliðsþjálfari, Alfreð Gísla- son, er stjóri Gummersbach. Leiknum lauk með 36-29 sigri Flensburg eftir að lærisveinar Viggós stungu af í upphafi síðari hálfleiks og náðu mest átta marka forystu. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Gum- mersbach, Róbert Gunnarsson þrjú og Sverre Jakobsson lék í vörn liðsins. Einar Hólmgeirsson skoraði fimm mörk fyrir Grosswallstadt og Alexander Petersson fjögur er liðið bar sigurorð af Lübbecke. Þórir Ólafsson skoraði tvö mörk fyrir síðarnefnda liðið og Birkir Ívar Guðmundsson stóð á milli stanganna. Minden átti skelfilegan dag er það tapaði á heimavelli, 16-28, fyrir Hamburg. Snorri Guðjónsson skor- aði fimm mörk og Einar Örn Jóns- son eitt fyrir Minden. Gylfi Gylfa- son skoraði tvö mörk fyrir Wilhelmshavener sem tapaði 31-41 fyrir Lemgo. Logi Geirsson skor- aði sex fyrir Lemgo en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað. Í Danmörku hófst deildarkeppn- in á föstudagskvöldið er Arnór Atlason og félagar í FCK Håndbold lögðu Lemvig á útivelli, 32-25. Arnór átti góðan leik, var marka- hæstur með sjö mörk, þar af eitt úr víti. Í gær lék svo Íslendingaliðið Skjern sinn fyrsta leik á tímabilinu er það tapaði á útivelli fyrir meist- urum Kolding, 34-29. Vignir Svav- arsson skoraði fimm mörk fyrir Skjern en hvorki Vilhjálmur Hall- dórsson né Jón Þorbjörn Jóhanns- son komust á blað. Aron Kristjáns- son er þjálfari Skjern. Team Tvis, lið Gunnars Bergs Viktorssonar, vann Ringsted, 30-23, á föstudags- kvöldið. Gunnar spilaði í leiknum en skoraði ekki. Hannes Jón Jónsson átti stór- leik og skoraði níu mörk er lið hans, Ajax, tapaði fyrir AaB 28-22 á heimavelli. - esá SVERRE HARÐUR Varnarmaðurinn Sverre Andreas Jakobsson hjá Gummersbach tekur hér hraustlega á Norðmanninum Johnny Jensen, leikmanni Flensburg, í leik liðanna í gær. NORDIC PHOTOS/BONGARTS Íslenskir handboltamenn í eldlínunni víða í Evrópu í gær: Viggó hafði betur gegn Alfreð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.