Fréttablaðið - 10.09.2006, Page 78

Fréttablaðið - 10.09.2006, Page 78
 10. september 2006 SUNNUDAGUR38 HRÓSIÐ FÆR … Það vantar: Starfsfólk í sal. - Kvöldvinna Kokk - Dag- og kvöldvinna Starfsmann í útkeyrslu á eiginn bíl Góð Laun í boði Banthai Uppl. 896 3536 Hvað er að frétta? Bara allt fínt að frétta. Er á fullu í tökum fyrir Stundina okkar þessa dagana. Augnlitur: Blár Starf: Leikari Fjölskylduhagir: Bara í góðu lagi. Hvaðan ertu? Vesturbænum. Ertu hjátrúarfull? Ó, já!! Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Ég á ekki sjónvarp þannig að ég er ekkert voðalega vel að mér í sjónvarpsþáttunum. En ég hef alltaf haldið upp á Friends og svo sá ég 24 um daginn og var rosalega spennt. Annars er Rockstar það eina sem ég reyni að kom- ast í sjónvarp til að sjá... fylgjast með Magna standa sig svona vel. Uppáhaldsmatur: Ég get ekki valið, þannig að ég segi bara taílenskur, indverskur, mex- íkóskur og ítalskur matur. Fallegasti staður: Fyrir utan Ísland verð ég að segja Taíland. Ég var þar í sumar og kolféll fyrir landi og þjóð. IPod eða geislaspilari? IPod. Hvað er skemmtilegast? Að ferðast. Hvað er leiðinlegast? Að vera veikur. Helsti veikleiki: Fresta því sem mér finnst leiðinlegt. Helsti kostur: Æ, ég veit það ekki. Helsta afrek: Setja upp leikritið Saumastof- an - 30 árum síðar með Gunnhildi systur minni. Mestu vonbrigðin: Ætli það sé ekki eitt hlutverk úti í London sem ég fór í prufu fyrir og fékk ekki. Hver er draumurinn? Að vera heilsuhraust fram á gamals aldur og oftar hamingjusöm heldur en ekki. Hver er fyndnastur/fyndn- ust? Eddie Murphy í Raw og Delirious. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Leti. Uppáhaldsbókin? Alkem- istinn. Hvað er mikilvægast? Fjölskyldan. HIN HLIÐIN ÍSGERÐUR ELFA GUNNARSDÓTTIR LEIKKONA OG STJÓRNANDI STUNDARINNAR OKKAR Fjölskyldan er mikilvægust FRÉTTIR AF FÓLKI Páll Magnússon sjónvarpsstjóri hefur lagt allt undir og veðjar á að fá HáEffun á Ríkissjónvarpið fljótlega eftir að þing kemur saman. Á meðan er í limbói hvort Brynja Þorgeirsdóttir sé á leið til að gera heimildarmynd eftir áramót eins og til stendur auk þess sem eitt og annað er í deiglunni. Heyrist innan úr útvarpshúsi að nokkur lunti sé í gömlum hundum inni á fréttastofu sem þykir Páll beina of mikl- um fjármunum af takmörkuðu fé í Kastljós og til þeirra sem hann hefur vélað yfir af NFS meðan fréttastofan býr við rýran kost. En þó Páll Magnússon horfi til betri tíðar með blómum í haga er ólíklegt að honum verði að ósk sinni að HáEffun fylgi sjálfkrafa aukin innspýting af almannafé til reksturs. Páll mun verða að finna aukið fé með hagræðingu. Og víst er að í Ríkissjónvarpinu má finna fé með ýmsum skipulagsbreytingum en til að Páll geti staðið við það að hækka launin þeirra sem þykjast eiga inni leiðréttingu, þeirra á meðal hann sjálfur, þarf hann að standa blóðugur upp að öxlum við niðurskurð. - jbg FRÉTTIR AF FÓLKI Ragnar Bragason frumsýndi í gær mynd sína Börn við mikinn fögnuð viðstaddra. Þykir Gísli Örn Garðars- son fara á kostum í hlutverki hand- rukkara. Gísli Örn er þeirrar gerðar að setja sig vandlega inn í hlutverk sín og meðal viðmælenda hans og ráðgjafa þegar heimur handrukk- ara er annars vegar var listneminn Símon Birgisson. Símon er reyndar ekki handrukkari heldur fyrrver- andi blaðamaður á DV. Sem slíkur óð hann í vélarnar af miklum móð og kynntist á skömmum en litrík- um ferli ýmsum skúmaskotum samfélagsins. Bubbi Morthens er gestur Sigríðar Arnardóttur í Örlagadeginum á Stöð 2 og NFS í kvöld eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Talað er um að þátturinn verði athygl- isverður fyrir margar sakir, enda þykir Bubbi sjaldnast tala neina tæpitungu. Eitt af því sem hvíslað er um að kóngurinn ræði opinskátt er risvandamál sem farið sé að hrjá hann. Að sögn þeirra sem séð hafa þáttinn segir Bubbi þetta ekkert feimnismál fyrir sér, þetta sé einfaldlega eitthvað sem algengt sé hjá körlum þegar þeir eldast. Og þá sé einfaldlega hægt að grínast með þetta og ræða saman. Sjónvarpskokkurinn Völundur Snær Völundarson er á leið út til Los Angeles til að hitta Magna Ásgeirs- son og aðra þátttakendur í Rock Star-þáttunum. Völundur hefur fengið það verkefni að elda íslenskan mat fyrir Magna og félaga í kvöld þegar þátturinn verður tekinn upp. Ekki liggur fyrir hvort sýnt verður frá matarveislu íslenska kokksins í úrslitaþætt- inum. -jbg/hdm Margrét Jónasdóttir, förðunar- fræðingur og Nonni Quest, hár- greiðslumaður gerðu góða ferð til Svíþjóðar á dögunum til að taka þátt í stórri sýningu í tilefni af tíu ára afmæli Make up Store, sem er mjög þekkt og stórt snyrtivöru- merki í Skandinavíu. „Mér var boðið að taka þátt í þessari sýn- ingu af því ég er að fara að opna fyrstu Make up Store-verslunina hér á Íslandi síðar í mánuðinum,“ segir Margrét, sem fékk Nonna, frænda sinn til þess að fara með sér og sjá um hárgreiðsluna á fyr- irsætunni sem hún farðaði. „Þetta var mjög stór sýning og það mættu yfir 2000 manns til að horfa á hana en baksviðs voru um 900 manns sem unnu við sýninguna. Sýning- arpallurinn var 60 metra langur og það var alveg ótrúleg tilfinning að þurfa að ganga eftir honum öllum með fyrirsætunum í lok sýningarinnar, fyrir framan 2000 manns og helling af ljósmyndur- um,“ segir Margrét. Nonni bætir því við að hann hafi aldrei farið á svo vel undirbúna sýningu. „Þarna kom vel í ljós hversu skipulagðir Svíarnir eru,“ segir hann og gefur þeim góða einkunn fyrir. Í sýningunni voru tuttugu mis- munandi þemu og má þar nefna postulínsdúkkuþema, englaþema og Abbaþema, auk þess sem ýmsir mismunandi menningarheimar voru teknir fyrir. „Við völdum okkur að vinna með þema, sem átti að sýna japanska framtíðar- sýn og það gekk alveg rosalega vel enda fengum við mikið hrós fyrir módelið okkar,“ segir Margrét ánægð. Margrét og Nonni fengu mikla viðurkenningu fyrir störf sín þegar dönsk blaðakona valdi þau til þess að farða hana og greiða á sama hátt og fyrirsætan þeirra var förðuð og greidd á sýningunni. „Þessi blaðakona setur sig í ýmis hlutverk og var þarna að setja sig í spor fyrirsætu. Hún hafði sungið með Madonnu vikuna áður og eldað með Jamie Oliver þar á undan. Síðan skrifar hún um reynsluna og gefur einkunnir,“ segir Margrét. Blaðakonan er sögð gríðarlega dómhörð í einkunna- gjöfum sínum sem sést meðal ann- ars á því að hún gefur einkunnir í býflugum, frá einni upp í fimm. Hún var samt mjög hrifin af að vinna með Margréti og Nonna enda fengu þau fullt hús býflugna frá henni. Þá hafði hún fögur orð um þau í grein sinni og kallar Mar- gréti íslenska súpersminku og hælir henni á hvert reipi. „Þetta var rosalega skemmtileg upplifun og það kom okkur skemmtilega á óvart að vera valin í þetta verk- efni,“ segir Nonni og Margrét samsinnir því. MARGRÉT JÓNASDÓTTIR OG NONNI QUEST: SLÓGU Í GEGN Í SVÍÞJÓÐ Fengu toppeinkunn í Svíþjóð GOTT TEYMI Margrét og Nonni eru systkinabörn og vinna vel saman en hún er förð- unarfræðingur og hann er hárgreiðslumaður. FENGU MIKIÐ HRÓS Margrét og Nonni fengu góða umfjöllun í Extrabladet í Svíþjóð. HRÓSIÐ FÆR ...Guðjón Arnar Kristjánsson alþingismaður fyrir að gefa sér tíma frá önnum sínum og synda reglulega sér til heilsubótar. Feðgarnir Reynir Traustaon og Jón Trausti Reynisson eru komnir á fullt í undirbúningi nýs tímarits sem þeir munu ritstýra í samein- ingu. Í samtali við Fréttablaðið sagði Reynir að stefnt væri að útgáfu fyrsta tölublaðsins í lok októbermánaðar. Vinnuheiti tíma- ritsins, sem kemur út mánaðar- lega til að byrja með, er Ísafold. „Ég get ekki sagt að við höfum tekið formlega ákvörðun um að Ísafold verði nafnið, en það er hljómmikið nafn og gæti allt eins orðið fyrir valinu,“ segir Reynir. Þeir feðgar hafa unnið saman á nokkrum fjölmiðlum áður, DV, Fréttablaðinu og síðast á Mannlífi. Fram að þessu hefur Reynir verið yfirmaður sonar síns en nú vekur athygli að þeir verða báðir titlaðir ritstjórar. „Strákurinn er bara orð- inn fullnuma,“ segir Reynir. „Hann er annar tveggja ritstjóra og getur sagt nei við mínum hugmyndum. Það hefur líka alltaf ríkt gagn- kvæm virðing okkar á milli í starf- inu og við umgöngumst miklu meira eins og starfsbræður held- ur en feðgar.“ Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum verður Reynir einn eig- enda tímaritsins, og annarra miðla sem kann að verða ráðist í útgáfu á. Hann fæst þó ekki til að gefa upp hverjir koma að útgáfunni með honum, þó það verði gert áður en fyrsta blaðið kemur út. „Þetta eru fjársterkir aðilar sem eru fullfær- ir um að halda úti svona útgáfu og efla hana. Og já, það á eftir að koma á óvart hverjir þetta eru.“ - hdm Feðgarnir mættir til starfa FEÐGAR OG RITSTJÓRAR Jón Trausti og Reynir eru ánægðir með að vinna sé hafin við nýtt tímarit sem kemur út í lok október. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 Göngum til góðs 1 Morgunblaðshúsið í Kringlunni 1 Atlantis

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.