Fréttablaðið - 10.09.2006, Side 80

Fréttablaðið - 10.09.2006, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� � Meðal þeirra hlunninda sem fylgja starfi blaðamanns er að fá tækifæri til að tala við fræga fólkið á Íslandi. Eitt sinn bar ég til þess gæfu að fá að taka viðtal við forsprakka einnar dáðustu hljóm- sveitar landsins. „Geturðu hringt í mig eftir hálftíma, ég er að afgreiða,“ svaraði stjarnan þegar ég sló á þráðinn. Sem var auðvitað ekkert mál af minni hálfu. Það sem fræga fólkið vill, fær það. MEÐ semingi skal ég viðurkenna að stundum óska ég þess að ég að ég væri frægur; alltaf í sjónvarp- inu og kokteilboðum, boðið á landsleiki, vera þéraður á póst- húsinu og þurfa aldrei að borga fyrir snúðana í bakaríinu. Svo ekki sé minnst á að vera hleypt fram fyrir raðir við skemmtistaði borgarinnar. Slíkt verður ekki metið til fjár. JÚ, vissulega þarf sterk bein og breiðar axlir til að láta þetta allt saman ekki stíga manni til höf- uðs. Ég er hins vegar sannfærður um að ég myndi standast þá raun. Ég geri mér fulla grein fyrir að stjörnur bera meiri samfélags- legri ábyrgð en við hin. Ég myndi ekki skorast undan að leika í aug- lýsingum fyrir líknarsamtök, ganga til styrktar góðu málefni og sitja fyrir á plakati til að hvetja fólk til að nota smokkinn. Enginn verður frægur að ástæðulausu og þegar einhver frægur tekur til máls, staldra aðrir við og hlusta. AF og til hef ég látið undan þess- ari þrá minni og gert ýmislegt eins og fræga fólkið. Fengið mér leyninúmer, gengið með sólgler- augu innandyra og spurt afgreiðslufólk hvort það viti ekki hver ég er? Allt strandar þetta hins vegar á því að ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætti að vera frægur fyrir. Ég get ekki sungið, kann ekki á hljóðfæri og er vita- vonlaus leikari. Mamma hefur alltaf sagt að gæti ég verið módel en mér finnst það eitthvað svo hégómlegt starf. LÍKLEGA verð ég aldrei frægur og verð að sætta mig við það næstbesta. Og get svo sem ekki kvartað. Ég hef hitt nokkra fræg- ustu leikara þjóðarinnar í eigin persónu. Þetta er yfirleitt ágætis fólk, jafnvel ekkert svo frábrugð- ið okkur hinum. Sumir þeirra muna meira segja eftir mér þegar þeir mæta mér á Laugaveginum, kinka kolli og segja kannski: „Sæll, Bergsveinn.“ Veistu ekki hver ég er? ����������������������� ����������

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.