Fréttablaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 32
[ ]
Reynsluakstur Volvo S80.
Á morgun frumsýnir Brimborg
nýjan Volvo S80. Við fyrstu sýn
virðist sem hann hafi aðeins feng-
ið smá andlitslyftingu, en við nán-
ari athugun kemur í ljós að um
alveg nýjan bíl er að ræða sem að
mestu leyti er byggður á Ford.
Meginbygging bílsins er byggð á
hönnun Ford, sem kölluð er EUCD,
sem eru einingar sem jafnframt
eru notaðar í meðalstóra Ford-bíla
í Evrópu og hinn nýja Land Rover
LR2. Í stuttu máli má segja að
bestu hlutar Volvo S40/V50/C70,
Ford Focus og Mazda 3 hafi verið
stækkaðir og styrktir þar sem
þurfa þótti, og utan um þá sett skel
sem er jafnstór og BMW 5 línan.
Í bílnum sem var reynsluekinn er
ný 6 þrepa dísilvél sem malar eins
og köttur á veginum og hefur
skemmtilegt upptak, enda togar
bíllinn 400 Nm. Fyrir vikið er bíll-
inn afar snarpur og jaðrar við að
þessi bíll sem er hæglátur á að
líta, sé nettur sportbíll inn við
beinið. Það leynir sér sérstaklega
ekki þegar teknar eru snarpar beygjur og bíllinn liggur þétt á
veginum, eins og kappaksturbíll.
Stýrissvörun er mjög góð, sem
veldur því að maður hefur það á
tilfinningunni að maður hafi mjög
gott vald á bílnum. Bremsubúnað-
urinn er eins og best verður á
kosið og þegar hemlað er snögg-
lega stöðvast hann hratt og örugg-
lega, en svo mjúklega að maður
finnur varla fyrir því.
Volvo hefur ætíð verið tákn um
öryggi og er þessi bíll þar engin
undantekning, enda búinn fyrsta
flokks öryggisbúnaði. Öryggistil-
finning hríslast um ökumanninn
um leið og hann sest undir stýri
þar sem bíllinn er stór að innan og
vegahljóð er í lágmarki. Sætið er
notalegt, en kemur þó á óvart að
það sé ekki rýmra um ökumann í
svona stórum bíl. Rúðurnar liggja
þannig að notaleg stemning mynd-
ast í bílnum, en gallinn er sá að
manni finnst að maður ætti að
geta séð aðeins betur út. Það á sér-
staklega við þegar bílnum er bakk-
að, en þá kemur sér vel að hafa
bakkvörn í bílnum, sem hægt er
að fá í bílinn sem aukabúnað.
Þar sem S80 er fyrst og fremst
lúxusbíll þá er staðalbúnaður hans
mjög kræsilegur, en heilmikið er
fáanlegt af spennandi aukabúnaði,
til dæmis árekstrarvörn og þjófa-
vörn sem skynjar hjartslátt inni í
bílnum. Spurning er þó hversu
nauðsynleg slík vörn er, þar sem
bíllinn er þannig úr garði gerður
að mjög erfitt á að vera fyrir
óboðna gesti að komast inn í hann.
Ekki er á allra færi að aka um á
lúxusbíl sem þessum og kannski
of fáir sem íhuga hann sem fjöl-
skyldubíl. En eins og Volvo er von
og vísa er fyrst og fremst hugsað
fyrir öryggi fjölskyldunnar og
bæði rýmis- og farangursþörfum
þeirra mætt. Bíllinn er því ekki
einungis sniðinn fyrir ráðherra,
stórstjörnur og bankastjóra, held-
ur hentar hann öllum. Og það sem
kemur manni mest á óvart við
hann er hvað hann virðist fær á
mörgum sviðum og getur brugðið
sér í ólík hlutverk.
Volvo S80 er kraftmikill og
snarpur bíll sem leggur alúð í að
koma farþegum sínum á milli
staða á sem öruggastan og þægi-
legastan máta.
kristineva@frettabladid.is
Kraftmikill og snarpur
Mælarnir eru einfaldir og smekklegir í
útliti.
Volvo S80 hefur verið breytt mikið og má því segja að um alveg nýjan bíl sé að
ræða.
Volvo S80 hefur fengið smá andlits-
lyftingu, sem má sérstaklega sjá á
framljósunum.
Þægilegt er að ná til allra takka sem eru
í hurðinni, sem stýra rúðum o.fl.
Vel fer um farþega í aftursætinu, auk
þess sem þau eru hönnuð fyrir barna-
bílstóla. Hægt er að fá hita í aftursætin
sem aukabúnað.
Mælaborðið er sérstaklega vel hannað,
þar sem það er einfalt í notkun og afar
smekklegt. Tvískipt og vel rúmt geymslu-
pláss er á milli framsætanna með av
innstungu og 12V tengi.
Vetrardekkin eru nú farin að iða af spenningi að komast undir
bílana. Enn er mánuður þar til slíkt er leyfilegt en gott er þó að
kanna ástand þeirra áður en fyrsti hálkudagurinn rennur upp.
REYNSLUAKSTUR
VOLVO S80
Vél: 2.4i D5 Turbo dísil
185 hestöfl/400 Nm
Eyðsla bl. akstur: 7,3 l/100 km
0-100 km/klst: 9,5 sek
Farangursrými: 480 l
PLÚS:
Dísilvélin er hljóðlát en kraftmikil
Mælaborð er fallegt og einfalt í
notkun
Vegahljóð í lágmarki
MÍNUS:
Skyggni mætti vera betra
Verð: 5.190.000 kr.
Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400
Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum
bila vegna hitavandamála?
Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni.
Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir.
HÆTTIÐ AÐ PRÍLA
RAFSTÍRÐAR YFIRBREIÐSLUR
FYRIR VÖRUBÍLA, VAGNA OG GÁMA
G.T. ÓSK ARS SON EHF
VEST UR VÖR 23, 200 KÓPA VOG UR
Sími 554 6000 • www.islandia.is/scania