Fréttablaðið - 30.09.2006, Page 86

Fréttablaðið - 30.09.2006, Page 86
 30. september 2006 LAUGARDAGUR50 Einn mest notaði litur í heim-inum er tvímænalaust svart-ur. Liturinn fyllir fataskáp hverra konu enda liturinn bæði grennandi og fer hvaða húðgerð sem hárlit vel. Það geta sem sagt allir klæðst svörtu, en það er ekki hægt að segja um aðra liti litrófs- ins. Svartur passar einnig við alla aðra liti og því mjög öruggt að kaupa sér svarta flík. Ég þekki margar konur sem vilja helst ekki klæðast öðru en svörtu og verða óöruggar ef þær eru ekki klæddar í neitt svart. Sem betur fer fyrir kvenþjóð- ina er svartur meginlitur vetrar- tískunnar. Það er í tísku að vera svartklæddur frá toppi til táar sem áður fyrr hefði túlkast sem vanvirðing því svartur er auðvitað einnig litur sorgarinnar. Svartur er dularfullur og seiðandi litur. Háttsettar konur í atvinnulífinu nota mikið svartan lit til að undir- strika vald sitt. Svartur er góður litur sem hægt er að nota og njóta við hvaða tækifæri sem er. alfrun@frettabladid.is Nú er útlitið svart LEÐUR Svört leður kápa frá Yves Saint Laurent fyrir veturinn 2006. NYTSAMLEGT Leðurjakki með blazer-sniði úr Gallerí 17. STUTTUR Jakki frá íslenska hönnuðinum Eygló og fæst í Kronkron. DEMANTAR Þeir hafa ávallt farið vel við svartan klæðnað. Kjóll frá Gallerí 17. FÍNAR Buxur með niðurmjó- um skálmum frá Kronkron. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SLAUFA Svört slaufa um hálsinn. Dömulegt frá Yves Saint Laurent. TASKA Það er nauðsynlegt að eiga svarta tösku sem gengur við allt. Þessi er frá Gallerí 17. HÁLSMEN Svartar perl- ur frá Rokki og rósum. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM LAKK Dömulegir skór frá Rokki og rósum úr svörtu lakki. ÖKKLASTÍGVÉL Öðruvísi stígvél franska hönnuðar- ins Eley Kishimoto, fást í Kronkron. SÆTUR Lítill hattur með slaufu að framan frá Rokki og rósum. LEÐURPILS Seiðandi pils úr leðri frá Rokki og rósum. KOKTEILTASKA Frábær taska úr Kronkron. BELTI Mitt- isbelti með teygju og lakki. Frá Rokki og rósum. Spáir þú mikið í tískuna? Já, ég geri það. Ég er samt enginn þræll tískunnar og eltist ekki við hvað sem er. Það er svo gaman að sjá hvernig myndlist hefur áhrif á tísku og svo öfugt. Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Hann er bara frekar persónulegur og breytilegur. Allt frá rómantík til furðulegra hugmyndaríkra flíka. Það fer bara eftir skapi hverju sinni. Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki? Emma Cook, 3as four, Undercover, Peter Jensen, Bernhard Will- helm, Alexander McQueen og Preen. Flottustu litirnir? Svartur er alltaf góður með en svo er ég alltaf mjög veik fyrir öllum bláum litum alveg frá ljósbláum til fjólublárra og grænblárra lita. Hverju ertu veikust/veikastur fyrir? Kjólum, ég verð alltaf svo hamingjusöm þegar ég klæðist fal- legum kjól. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Ég keypti mér mjög fallega, svarta, rómantíska kápu i Zöru. Hvað finnst þér flottast í tískunni núna? Ég er mjög ánægð með það hversu frjálsleg tískan er í dag. Flíkur eru líka orðnar að meiri gripum sem hafa sjálfstæð form og nálgast það jafnvel að vera skúlptúrar. Hvað ætlarðu að kaupa þér fyrir veturinn? Ég er að fara til Bandaríkjanna núna í vikunni og þar ætla ég að reyna að finna mér góðan jakka. Uppáhaldsverslun? Kron Kron og Trilogia eru fal- legustu búðirnar á Íslandi í dag. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði? Það er mjög misjafnt, alveg frá 0 kr. upp í svona 30.000 kr. Ég kýs frekar gæði en magn. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Svörtu þröngu gallabuxnanna minna, ég nota þær örugglega mest af öllu sem ég á. Uppáhaldsflík? Það er líklega kjóll eftir Peter Jensen sem ég fékk í Lakkrísbúðinni sem var og hét. Hvert myndir þú fara í verslunarferð? Til New York eða Berlínar. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Í fyrrasumar keypti ég mér jakka í Kolaport- inu með svona Star Trek-prenti á. Hann er rauðleitur og úr einhvernvegin svona plast-pappírs efni, mjög sérstakur. SMEKKURINN ÁSLAUG ÍRIS KATRÍN FRIÐJÓNSDÓTTIR MYNDLISTARMAÐUR Kýs gæði fram yfir magn > Mælum með ... legghlífum. Eru til í öllum stærðum og gerðum í verslunum borgarinnar. Hent- ugar yfir skó og stígvél, við buxur sem og pils. Góð fjárfesting fyrir veturinn. utlit@frettabladid.is Ég tel mig í hóp miðbæjarrottanna. Flutti þangað fyrir rúmum þremur árum og losnaði þar með úr viðjum úthverfanna, sem einkennast af klíku- myndunum og sjoppuhangsi. Það var mikil uppljómun fyrir mig að kom- ast í miðbæ Reykjavíkurborgar sem er með eindæmum sjarmerandi og fallegur með gömlum byggingum og sérstöku samfélagi. Undanfarið hefur einnig verið í tísku að búa í miðbænum og ætli það hafi ekki spilað eilítið inn í ákvörðun mína um búferlaflutning sem og hin stutta vega- lengd á skemmtistaðina. Röltfæri á barinn er góður kostur fyrir mann- eskju á mínum aldri. Þess vegna var ég með eindæmum glöð þegar ég rölti niður Laugaveginn fyrr í vikunni og sá að fjórar nýjar búðir höfðu opnað í þessari hringiðu menningarinnar. Hingað til hefur meira verið af því að búðir hverfi úr miðborginni og flytji sig í verslunarmusterin tvö. Ég tek ofan fyrir búðareigendum sem staðsettir eru á Laugaveginum enda veit ég af eigin raun að búðarlífið á Laugaveginum er ekki auðvelt. Hið ótrausta veðurfar klakans spilar mjög stóran þátt í því að ekki er auðvelt að fá viðskiptavini til að vaða slabb og himinháa skafla til að kaupa sér einn bol. Miðbærinn morar einnig í stöðumælavörðum sem gera ekki annað en að gera fólki lífið leitt með því að spreða himinháum sektum út um allt. Ofangreindar búðir eru hins vegar keimlíkar í alla staði. Allar selja þær rándýran hátískufatnað sem flestir geta aðeins látið sig dreyma um og það er mjög gaman að skoða og fá að þreifa á fallegum fatnaði sem búð- irnar hafa upp á að bjóða. Ætli Laugavegurinn og nágrenni sé að verða að „fínu hverfi“ eins og fyrirfinnst í næstum öllum stórborgum heims? Í þeim hverfum eru glæsivagnarnir á hverju strái og Chanel-búðir fylla hver götuhorn. Sjáum hvað setur, en ég vona innilega að þessar búðir haldist á Lauga- veginum og fleiri búðareigendur fari að fordæmi þeirra og opni þar búðir. Það er nauðsynlegt til þess að verslunargatan haldi sessi sínum sem miðpunktur Reykjavíkurborgar. Miðbæjarmambó MÓÐUR VIKUNNAR Álfrún fer yfir málin 9 HVER VIN NU R ! SENDU SMS SKEYT IÐ JA TNF Á NÚME RIÐ 19 00 OG ÞÚ GÆTIR UNNI Ð MIÐ A FYR IR TVO ! VINNIN GAR E RU BÍÓ MIÐAR FYRIR TVO, DVD M YNDIR OG M ARGT FLEIR A! FRUM SÝND 29//09 //06 V in n in g ar verð a afh en d ir h já BT Sm áralin d . K ó p avo g i. M eð þ ví að taka þ átt ertu ko m in n í SM S klú b b. 99 kr/skeytið. MOBILE

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.