Fréttablaðið - 30.09.2006, Blaðsíða 90
54 30. september 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
SEPTEMBER
27 28 29 30 1 2 3
Fimmtudagur
■ ■ LEIKIR
14.00 KR og Keflavík mætast í
úrslitum VISA-bikars karla.
14.00 Stjarnan og HK mætast í
DHL-deild kvenna í handbolta.
15.00 Fram og Grótta mætast í
DHL-deild kvenna í handbolta.
16.00 FH og Haukar mætast í DHL
deild kvenna í handbolta.
16.00 ÍBV og Valur mætast í DHL-
deild kvenna í handbolta.
16.00 HK og Fylkir mætast í DHL-
deild karla í handbolta.
16.00 Valur og Akureyri mætast í
DHL-deild karla í handbolta.
FÓTBOLTI KR og Keflavík mætast í
dag á Laugardalsvelli í úrslitaleik
VISA-bikarkeppni karla í knatt-
spyrnu.Gengi liðanna hefur verið
ólíkt í síðustu umferðum Lands-
bankadeildarinnar í sumar. KR
hefur gengið allt í haginn og ekki
tapað leik frá 17. júlí þegar liðið lá
fyrir ÍA á heimavelli en síðan þá
hafa KR-ingar leikið sjö leiki,
unnið fimm og gert tvö jafntefli.
Keflvíkingar hafa hins vegar ekki
unnið fjóra síðustu leiki sína í
deildinni. Síðasti sigurleikur Kefl-
víkinga var 2-1 sigur á Íslands-
meisturum FH í Keflavík en síðan
þá hafa Keflvíkingar gert tvö
jafntefli og tapað tveimur leikj-
um.
Keflvíkingar hafa haft gott tak
á KR undanfarin ár og það var
engin breyting þar á í leikjum lið-
anna í deildinni í sumar. Fyrri
leikurinn í Keflavík endaði með 3-
0 sigri heimamanna en síðari leik-
urinn á KR-vellinum fór 2-2.
En bikarkeppni hefur allt
annan brag á sér en deildarkeppni.
Þar kemur ekkert annað til greina
en sigur og þjálfarar liðanna, þeir
Teitur Þórðarson, þjálfari KR, og
Kristján Guðmundsson, þjálfari
Keflavíkur, sögðu að það væri
ekki flókið verkefni að undirbúa
leikmenn andlega fyrir þennan
leik.
„Það er ekkert vandamál hjá
okkur hvað það snertir. Margir af
okkar strákum hafa áður spilað
úrslitaleiki og þeir vita hvernig
tilfinning það er og það er engin
spurning að menn koma klárir í
þennan leik,“ sagði Teitur Þórðar-
son, þjálfari KR.
„Það er nú þegar komin mjög
góð stemning í okkar hóp og við
höfum líka stráka sem hafa spilað
úrslitaleik áður og unnið bikarinn,
þannig að við vitum alveg hvað
þarf til að sigra,“ sagði Kristján
Guðmundsson, þjálfari Keflavík-
ur, og hann var ekki í vafa um að
þetta góða tak sem Keflavík hefur
haft á KR myndi hafa sitt að segja
í þessum leik.
Teitur Þórðarson sagði að undir-
búningurinn fyrir þennan leik
væri á hefðbundnum nótum,
æfingar væru ekkert öðruvísi, en
KR-ingar ætla þó að vera saman
síðasta sólarhringinn fyrir leik-
inn. Kristján, þjálfari Keflvík-
inga, sagði hins vegar að breyting
hefði verið gerð á undirbúningi
liðsins fyrir þennan leik. „Við
breyttum aðeins þjálfunaráhersl-
um fyrir þrem vikum síðan, bæði
með tilliti til þessa leiks og stöð-
unnar í deildinni á þeim tíma, en
okkur finnst samt best að sofa
heima,“ sagði Kristján.
Stuðningsmenn liðanna ætla að
sjálfsögðu að gera sér glaðan dag
í tilefni leiksins. Keflvíkingar
ætla að koma saman í anddyri
Laugardalshallarinnar og vera
með ýmsar uppákomur og KR-
ingar ætla að hittast í KR-heimil-
inu, en í dag fer fram uppskeru-
hátíð hjá yngri flokkum
félagsins. dagur@frettabladid.is
Ekkert mál að búa leik-
menn undir úrslitaleikinn
Úrslitaleikur VISA-bikarkeppni karla fer fram í dag þegar KR og Keflavík mæt-
ast. KR-ingar hafa tíu sinnum unnið bikarinn en Keflvíkingar þrisvar.
FYRIRLIÐAR LIÐANNA Guðmundur Steinarsson, fyrirliði Keflvíkinga, og Gunnlaugur
Jónsson, fyrirliði KR-inga, berjast hér um bikarinn en það verður hart barist á Laugar-
dalsvellinum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FÓTBOLTI Bikarkeppni karla hefur
verið leikin allar götur frá árinu
1960 og KR-ingar hafa oftast allra
liða hampað bikarnum, eða tíu
sinnum, en þeir hafa þrettán sinn-
um leikið til úrslita. Síðast unnu
KR-ingar bikarinn árið 1999 þegar
liðið lagði ÍA að velli 3-1.
Keflvíkingar hafa átta sinnum
leikið til úrslita og þrisvar sinnum
hefur liðið endað með því að lyfta
bikarnum, nú síðast fyrir tveimur
árum þegar Keflavík lagði KA í
úrslitum, 3-0.
KR-ingar leika í dag í sínum
hefðbundnu búningum en Keflvík-
ingar leika í sínum rauðu varabún-
ingum. - dsd
Saga liðanna í úrslitum:
KR-ingar
sigursælastir
HVERJIR LYFTA BIKARNUM Í DAG?
Keflvíkingar unnu síðast bikarinn fyrir
tveimur árum en KR-ingar fyrir sjö árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
FÓTBOLTI Sjálft Rauða ljónið,
Bjarni Felixson, mun lýsa leik KR
og Keflavíkur í Útvarpi KR 98,3 í
dag og honum til aðstoðar verður
Kristinn Kjærnested.
Það hefur lengi verið draumur
útvarpsmanna að fá Bjarna til að
lýsa fyrir KR og spurning hvort
hann verði jafn hlutdrægur og
fyrri lýsendur útvarpsins en það
er nánast skylda að vera hlut-
drægur á þessum fjölmiðli.
Útvarp KR 98,3:
Bjarni Fel lýsir
leiknum
BJARNI FELIXSON Klár í slaginn.
LEIÐ LIÐANNA Í ÚRSLITIN:
KR:
Njarðvík-KR 0-1
Bjarnólfur Lárusson, víti
KR-ÍBV 1-1 (v. 4-2)
Björgólfur Takefusa
Þróttur-KR 0-1
Skúli Jón Friðgeirsson
Keflavík:
Leiknir-Keflavík 0-3
Stefán Örn Arnarson 2, Guðmundur
steinarsson.
ÍA-Keflavík 3-4
Guðmundur Steinarsson 2, Simun
Samuelsen, Þórarinn Kristjánsson.
Víkingur-Keflavík 0-4
Guðmundur Steinarsson 2, Jónas
Sævarsson, Þórarinn Kristjánsson.
Lið ÍR hefur gengið í gegnum miklar mannabreytingar síðustu
tvö ár og uppistaðan í liðinu í dag er kornungir heimamenn.
Þurfti því ekki að koma á óvart að þeim væri spáð neðsta sæti
DHL-deildarinnar fyrir mótið. ÍR-strákarnir blésu rækilega á allar
hrakspár þegar stórlið Hauka kom í heimsókn í Austurbergið.
Þeir rúlluðu yfir Hafnfirðingana og unnu sex marka sigur, 36-
30. Mesta athygli vakti leikur þeirra Björgvins Hólmgeirs-
sonar og Davíðs Georgssonar, sem báðir eru nítján ára
og eru því leikmenn með 2. flokki félagsins. Björgvin
skoraði 12 mörk úr 16 skotum en Davíð skoraði 11 mörk
úr 12 skotum.
Björgvin á ekki langt að sækja hæfileikana en bróðir
hans er stórskyttan og landsliðsmaðurinn Einar Hólm-
geirsson sem leikur með Grosswallstadt í Þýskalandi.
„Þessi sigur kom okkur ekkert á óvart. Við sögðum við
alla í skólanum að við myndum vinna þennan leik
með átta til tíu mörkum,“ sagði Björgvin kokhraustur.
„Það var frábær stemning líka í okkar liði. Það býst
enginn við neinu af okkur þannig að við verðum
að spila með hjartanu, sem var eitthvað annað en
Haukarnir, sem virtust líta á það sem skylduverk að klára leikinn og
svo var greinilegt að þeir vanmátu okkur líka. Það mun ekkert lið
gera eftir þennan sigur. Liðin verða frekar hrædd við okkur.“
Það mátti glöggt sjá í leiknum gegn Haukum að Björgvin hefur
styrkt sig mikið á síðustu misserum.
„Ég er búinn að þyngja mig um 4-5 kíló. Þetta er allt að koma en
ég er samt ekkert fluttur í lyftingasalinn. Annars æfðum við eins
og skepnur í sumar og allt upp í tíu sinnum á viku. Það skilaði
sér strax í fyrsta leik og við munum græða á því,“ sagði Björgvin,
sem er greinilega með sjáfstraustið í lagi enda skaut hann sextán
sinnum að marki í leiknum. „Maður hatar nú ekki að skjóta.“
Menn eru þegar byrjaðir að bera Björgvin saman við bróð-
ur hans Einar en það fer ekkert í taugarnar á
Björgvini. „Við erum gerólíkir leikmenn. Hann
hefur mun meiri styrk en ég og svo er hann
örvhentur. Hann hefur alltaf verið þessi mass-
aði en ég var mjóa týpan. Þess vegna er ég að
bæta á mig núna. Ég er annars alltaf að bæta mig
og þarf helst að bæta mig í vörninni og línuspilið,“ sagði
þessi stórefnilegi leikmaður.
HIÐ UNGA LIÐ ÍR SLÓ Í GEGN Á MÓTI HAUKUM: VORU ALLTAF VISSIR UM STÓRSIGUR
Það mun ekkert lið vanmeta okkur eftir þennan sigur
FÓTBOLTI Eyjólfur Gjafar Sverris-
son, landsliðsþjálfari í knatt-
spyrnu, hefur tilkynnt 20 manna
hóp sem mætir Lettum og Svíum í
undankeppni Evrópumótsins.
Fyrri leikurinn er gegn Lettum á
útivelli 8. október en leikurinn
gegn Svíum er hér heima 11.
október.
Fjórar breytingar eru á
hópnum frá leikjunum gegn
Dönum og N-Írum fyrr í þessum
mánuði. Inn í hópinn koma Marel
Baldvinsson, Daði Lárusson, Emil
Hallfreðsson og Pétur Hafliði
Marteinsson en fyrir þeim víkja
þeir Ólafur Örn Bjarnason,
Gunnar Heiðar Þorvaldsson,
Heiðar Helguson og Kristján
Finnbogason. Gunnar Heiðar er
meiddur og Heiðar Helguson fær
frí í þessum leikju út af persónu-
legum ástæðum
„Ég tók Pétur inn með það í
huga að hann getur spilað á
miðjunni, en tveir miðjumenn hjá
okkur eru með gult spjald á
bakinu og því gætum við misst þá
í bann í seinni leiknum,“ sagði
Eyjólfur Sverrisson og bætti því
við að hann sættir sig við eitt stig
á útivelli gegn Lettum.
„Ég sá leik Letta og Svía og
þar voru Lettarnir bara óheppnir
að vinna ekki. Þeir eru eins og
hálfgert félagslið. Leikmennirnir
eru búnir að spila lengi saman,
þetta er nánast sami hópur og lék
á EM í Portúgal og það er
greinilegt að þeir þekkja hvorn
annan mjög vel.“ - dsd
Breytingar á landsliðinu:
Fjórir nýir inn
Landsliðshópurinn:
ÁRNI GAUTUR ARASON VÅLERENGA IF
DAÐI LÁRUSSON FH
HERMANN HREIÐARSSON CHARLTON
BRYNJAR BJÖRN GUNNARSSON READING
ÍVAR INGIMARSSON READING
ARNAR ÞÓR VIÐARSSON TWENTE
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN BARCELONA
PÉTUR H. MARTEINSSON HAMMARBY
INDRIÐI SIGURÐSSON LYN
STEFÁN GÍSLASON LYN
JÓHANNES K. GUÐJÓNSSON AZ ALKMAAR
GRÉTAR RAFN STEINSSON AZ ALKMAAR
KRISTJÁN ÖRN SIGURÐSSON BRANN
MAREL JÓHANN BALDVINSSON MOLDE
VEIGAR PÁLL GUNNARSSON STABÆK
HJÁLMAR JÓNSSON IFK GÖTEBORG
KÁRI ÁRNASON DJURGÅRDEN IF
HANNES Þ. SIGURÐSSON BRÖNDBY IF
HELGI VALUR DANÍELSSON ÖSTER IF
EMIL HALLFREÐSSON MALMÖ FF
FÓTBOLTI Kamerúnski framherj-
inn Samuel Eto´o, leikmaður Bar-
celona, getur ekki leikið með lið-
inu næstu fimm mánuðina en
hann meiddist mjög illa á hné á
miðvikudag þegar liðið lék gegn
Werder Bremen í Meistaradeild-
inni.
Spænskir sparkspekingar
virðast flestir sammála um að
eðlilegast sé að Eiður Smári Guð-
johnsen taki sæti hans í byrjun-
arliði Evrópumeistarann. Eiður
hefur enn ekki leikið leik með lið-
inu sem byrjunarliðsmaður en
hefur átt góðar innkomur.
Í íþróttablaðinu Marca í gær
segir að áður hafi Svíinn Henrik
Larsson ekki brugðist þegar
hann þurfti að fylla skarð Eto´o á
sínum tíma, nú sé hins vegar tími
fyrir Eið Smára að sýna að hann
geti einnig staðið undir slíkri
ábyrgð. Valið virðist standa á
milli Eiðs Smára og Argentinu-
mannsins Javiers Saviola og
spænskir fjölmiðlar eru flestir á
því að tími Eiðs Smára sé runn-
inn upp.
Fleiri ólíklegri möguleikar
hafa einnig verið nefndir svo það
verður spennandi að sjá hvað
Frank Rijkaard, þjálfari Barce-
lona, gerir í dag þegar liðið mætir
Athletic Bilbao í spænsku deild-
inni. - jse
Meiðsli Samuel Eto´o gætu opnað dyrnar fyrir Eið Smára Guðjohnsen:
Eðlilegast að Eiður leysi Etó o af
TÆKIFÆRIÐ KOMIÐ? Eiður Smári hefur
beðið þolinmóður á bekknum og
spurning hvort hans tími sé kominn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
GOLF Heiðar Davíð Bragason,
kylfingur úr Kili, lék gríðarlega
vel á fyrsta stigi úrtökumótsins
fyrir evrópsku áskorendamóta-
röðina en hann lék lokadaginn í
gær á sjö höggum undir pari.
Samtals fór Heiðar Davíð
hringina fjóra á níu höggum
undir pari og endaði í áttunda til
tíunda sæti á mótinu.
Þessi árangur þýðir að Heiðar
Davíð hefur nú tryggt sér
þátttökurétt á öðru stigi úrtöku-
mótsins. - dsd
Heiðar Davíð Bragason:
Fékk sjö fugla
og komst áfram
> Enginn að þjálfa ÍA?
Þó að Guðjón Þórðarson sé búinn að skrifa undir samning
við ÍA er ekki enn búið að uppfæra heimasíðu knattspyrnu-
deildarinnar og greina frá nýja þjálfaranum. Það tók aftur á
móti skamman tíma að uppfæra heimasíðuna þegar skipt
var um stjórn en stjórnarskiptin þykja kannski
merkilegri en þjálfaraskiptin? Á spjallborði
félagsins skiptast menn á skoðunum um nýja
þjálfarann og er misgott hljóðið í fólki þó
að flestir séu jákvæðir. Bræðurnir fengu
þó mun fleiri atkvæði en Guðjón í
kosningunni á síðunni.