Fréttablaðið - 30.09.2006, Side 94
30. september 2006 LAUGARDAGUR58
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT 2 land 6 í röð 8 for 9 sæti 11
slá 12 skordýr 14 nuddast 16 frá 17
áverki 18 glaumgosi 20 kusk 21
auma.
LÓÐRÉTT 1 gáski 3 guð 4 nískupúki 5
knæpa 7 seinfarinn 10 traust 13 fram-
koma 15 traðkaði 16 temja 19 ryk.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 írak, 6 rs, 8 aur, 9 set, 11 rá,
12 lirfa, 14 núast, 16 af, 17 sár, 18 gæi,
20 ló, 21 arma.
LÓÐRÉTT: 1 ærsl, 3 ra, 4 aurasál, 5
krá, 7 seinfær, 10 trú, 13 fas, 15 tróð,
16 aga, 19 im.
„Ég er að taka þátt í annað sinn,“
segir Ásdís Leifsdóttir, sveitar-
stjóri Strandabyggðar, en í kvöld
fer fram undankeppnin í karókí
vinnustaða á Ströndum á skemmti-
staðnum Bragganum. „Við héldum
þetta í fyrsta skipti á Café Riis í
fyrra en þá sprengdi staðurinn
utan af sér á undankvöldinu og við
fluttum úrslitakvöldið á Bragg-
ann. Núna verða bæði kvöldin þar
enda mikil stemning fyrir
þessu,“ segir Ásdís sem bregð-
ur sér í líki hins veiklulega
Thom Yorke úr Radiohead og
syngur lagið Creep. „Þetta er
verðugt verkefni og það er
gaman að taka eitthvað sem
fólk býst ekki við,“ segir
hún og hlær.
Ásdís segir að mik-
ill metnaður sé hjá
Strandamönnum fyrir
þessari keppni enda hafi þegar
þrettán manns skráð sig til leiks,
þar á meðal Sigurður Atlason
frá Strandagaldri á Strönd-
um en hann ætlar að
töfra fram lagið Man I
feel like a Woman
eftir Shaniu Twain.
„Dómnefnd velur
síðan sjö sem
keppa á
úrslita-
kvöld-
inu
eftir
hálfan
mánuð
en áhorf-
endur fá
að velja
einn,“ segir sveitarstjórinn, sem
komst í úrslit í fyrra með laginu
Heartbreak Tonight með Eag-
les. Hún söng síðan Simply
the Best með Tinu Turner og
New York, New York með
Frank Sinatra á úrslitakvöld-
inu en varð að lúta í lægra
haldi fyrir Stefáni Jóns-
syni. „Þetta er bara
alveg rosalega
skemmtilegt og það
er mikil tilhlökkun
fyrir keppninni
meðal íbúanna.“ -fgg
Rokkaður sveitarstjóri á Ströndum
ÁSDÍS LEIFSDÓTTIR Syngur
Creep eftir Radiohead
á árlegri karókí keppni
vinnustaða á Ströndum.
THOM YORKE Hvort Ásdís
eigi eftir slá hinum veiklu-
lega söngvara Radiohead
við verður að koma í ljós.
SIGURÐUR ATLASON Syngur
lag Shaniu Twain, Man I
feel like a Woman.
„Ég er alls ekki hættur í hljóm-
sveitinni og Trabant er ekki hætt,
hananú,“ segir Ragnar Kjartans-
son söngvari í hljómsveitinni en
sögusagnir hafa verið uppi þess
efnis að hann væri búinn að
segja skilið við hljómsveitina
góðkunnu. Til að mynda birtist
moli þess efnis í Blaðinu í
gær en hann mun vera
alls ósannur. Þorvaldur
Gröndal trommuleikari
hljómsveitarinnar hætti
fyrir stuttu, eins og
Fréttablaðið hefur
greint frá, til að sinna
föðurhlutverkinu og
út frá því hafa sprottið upp sögur
um hvort hljómsveitin væri að líða
undir lok.
Viðar Hákon Gíslason,
gítarleikari Trabant, blæs
einnig á þessar sögusagnir
og segir hljómsveitina vera í
góðum gír um þessar mundir.
„Stemningin í hópnum
hefur ekki verið betri
í langan tíma. Vissu-
lega er erfitt þegar
einn meðlimur hættir
en við hinir höldum
ótrauðir áfram,“
segir Viðar.
Trabant mun
ekki koma fram á
Airwaves-hátíðinni
en næstu tónleikar
hljómsveitarinnar
eru í Amsterdam í október. Félag-
arnir útiloka þó ekki að Íslending-
ar fái að njóta tónlistar þeirra
innan skamms. -áp
Allir sáttir og glaðir í Trabant
TRABANT Sögusagnir hafa verið uppi um
að hljómsveitin sé að hætta en með-
limir bandsins neita því alfarið. Næstu
tónleikar sveitarinnar eru í Amsterdam í
október.
RAGNAR KJARTANSSON
Söngvari Trabants er ekki
hættur í bandinu.
Ingvi Hrafn Jónsson, meistari ljós-
vakans, er nú í því sem hann kallar
„long weekend“ í London. Þar ætlar
hann í leikhús og í golf á meðan
hann hugleiðir hvar og hvernig
Hrafnaþingi hans verður best fyrir
komið á skjánum. Komið
hafa fram hugmyndir
um að hann færi sig
að hluta inn í
Ísland í dag með
sína hnífskörpu
umræðu.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson fréttastjóri
NFS hugleiðir þetta
sama og Ingvi - einnig
á erlendri grundu.
Hann er, ásamt fleiri
fjölmiðlungum, á
leið utan í þekkt
fyrirbæri innan fjöl-
miðlageirans sem eru NATÓ-ferðir.
Nató býður valinkunnum fjölmiðla-
mönnum í lúxusferð, og hefur
lengi gert, til að skoða starfsemina
og njóta jafnframt lífsins í
Brussel. Meðal ferðalanga
er Eyrún Magnúsdóttir
og kemur það á óvart því
hún er hætt í Kastljós-
inu. En boðið hefur
væntanlega komið
áður en hún hætti
þar á bæ.
Reynir Traustason er
góður með sig þessa dagana sem
jafnan og nýtur þess að geta dregið
menn á svörum við því hvaða
milljónamenn standa á bak við
útgáfuna hinar Fögru dyr og tímarit-
ið Ísafold. Þó hefur heyrst að sjálfur
Geir R. Andersen, goðsagna-
persóna af eldgamla DV, muni
hafa umsjón með lesendabréfum
Ísafoldar. Þeir sem þekkja stíl Geirs
og skoðanir telja hann hafa farið
mikinn á kjaftavefnum malefnin.
com sem „Lyon“. Afköst hans á DV
voru mikil en þó mörgum hulin því
haft er fyrir satt að hann
hafi brugðið sér í allra
kvikinda líki og ritað
lungann af lesenda-
bréfum DV sjálfur.
-jbg
... fær Sigurður G. Tómasson fyrir
að grafa stríðsöxina og snúa
aftur í faðm Arnþrúðar Karls-
dóttur á Útvarpi Sögu.
Vasa
línan
Fer vel í veski
Auglýsingar, merki og búningar
fyrir íslenskan her eru áberandi
í Fítonblaðinu sem kemur út um
helgina. Þetta er fimmta árið í röð
sem auglýsingastofan Fíton gefur
blaðið út og samkvæmt venju birt-
ast þar greinar um hugmynda-
vinnu og sköpunarferli, hagsveifl-
ur í auglýsingastofulandslaginu,
uppbyggingu vörumerkja og
virðismat þeirra ásamt viðtölum
við fagfólk og umfjöllun um
helstu auglýsingaherferðir
stofunnar síðustu
misserin.
Starfsfólk aug-
lýsingastofunnar
fær einnig gott pláss
til þess að bregða á
leik og að þessu sinni
var ákveðið að hanna
útlit og ásýnd
íslenska hersins.
Því er haldið
vandlega til haga
í blaðinu að enginn
hafi beðið Fíton um
að hanna þessi her-
gögn enda sé íslenskur
her ekki til.
Guðmundur Oddur Magnússon,
prófessor í grafískri hönnun við
Listaháskóla Íslands, skrifar grein
í blaðið um „hönnun valdsins“ þar
sem hann segir að vald sé „fyrst
og fremst gert sýnilegt af hönnuð-
um og arkitektum.
„Það er fyrst og fremst gefið til
kynna á myndrænan hátt – ímynd-
ið ykkur valdsmenn án bygginga,
án leikvanga og leikmynda, án
farartækja, án verkfæra og vopna,
án merkja, án búninga, án myntar
og peningaseðla sem auðvitað eru
upphaflega verk teiknara.“
Stefán Snær Grétarsson birtir
hugmyndir sínar um einkennis-
búninga æðstu manna hersins í
blaðinu og taldi liggja beinast við
að teikna búningana á Björn
Bjarnason, dómsmálaráðherra.
„Það lá nokkuð ljóst fyrir að ég
myndi nota Björn sem módel enda
er hann í mínum huga persónu-
gervingur þjóðfélagsumræðunnar
um íslenskan her,“ segir Stefán
Snær.
„Við fengum algert frelsi í
þessu tiltekna dæmi,“ segir
Stefán sem leitaði víða hug-
mynda þegar hann hannaði
foringjabúningana. „Þessu
er stolið héðan og þaðan.
Húfan er til dæmis byggð á
bandarískri lögregluhúfu
og svo er
maður undir
sterkum áhrif-
um frá Tinna-
bókunum.“
Stefán Snær
segir þetta allt
gert í hálfkæringi
og hann geti ekki
skrifað upp á
það að mikil
alvara hafi
legið að baki en
þess er þó getið í
grein í blaðinu að
hugmyndir og hönnun
séu sérsvið stofunnar og
það muni því ekki standa á Fíton
„þegar ákvörðun um stofnun hers
verður tekin.“
Helga Valdís Árnadóttir vinnur
með ímynd hersins, gefur honum
slagorðið „Það er betra að deyja
standandi en á hnjánum“ og segir
herinn vera kaldan og sterkan. „Það
duga engin vettlingatök þegar verja
þarf landið gegn veiðiþjófum,
fuglaflensu og Vítisenglum. Hinn
illskeytti og baneitraði Miðgarðs-
ormur er táknmynd hersins og hefur
hann fengið að láni arnarvængi til að
auka styrk sinn enn frekar.“
thorarinn@frettabladid.is
FÍTON: HANNAR ÚTLIT OG ÍMYND ÍSLENSKS HERS
Betra að deyja standandi
en á hnjánum
DÓMSMÁLARÁÐHERRANN
Einkennisbúningur hershöfðingja
í Flugher lýðveldisins var teikn-
aður á Björn Bjarnason. Hrafn
Gunnarsson hannaði vígalegt
skjaldarmerki hersins.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
1. Árni Johnsen
2. The Guardian
3. 6-0 fyrir Íslandi