Fréttablaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 104
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
19. HOLAN!
����������
���������
���������������
60 02 .V .B
s
met sy S
AEKI
re tn I
©
Njóttu þess
að breyta til
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is
195,-
NYTTJA rammi 21x30 cm
ýmsir litir
490,-
Kryddbakaður lax
með graslaukssósu, kartöflum
og grænmeti
SMYCKA gerviblóm
H46 cm 395,-
FJÄRRAN skál m/standi
Ø21, H9 cm 495,-
ARRAK blómapottur
Ø14, H13 cm 295,-
RIBBA rammi
50x23 cm ýmsir litir 995,-
FRAGIL glerdiskur
37x37 cm
BRANÄS karfa
23x25x15 cm 695,-
BRANÄS karfa
23x25x23 cm 895,-
BRANÄS karfa
32x35x16 cm 895,-
KORT póstkort 5 stk.
ýmsar tegundir 295,-
FRAGIL blómavasi
H21 cm ýmsir litir 295,-
FLER kertasett
4 kertastjakar/8 kerti
ýmsir litir
FEJKA gervipottablóm
H28 cm 395,-
HULTET diskur
Ø30 cm bambus 495,-
FLER kertasett 16 stk.
1 kertadiskur, 2 kertastjakar, 4 kerti
1 kubbakerti, 8 sprittkerti
495,-
250,-
895,-
Segjum sem svo að ég væri með 17 milljón krónur í tekjur á
mánuði. Það er auðvitað óskhyggja
og fjarri lagi að ég sé svona vel
settur í raunveruleikanum. Segj-
um líka að meginhlutinn af þess-
um tekjum væri ekki laun heldur
fjármagnstekjur. Ég væri með
öðrum orðum nokkuð lunkinn í að
kaupa og selja. Naskur fjársýslu-
maður. Ég væri jafnframt forstjóri
í eigin fyrirtæki.
SEM forstjóri fengi ég milljón á
mánuði í venjuleg laun frá fyrir-
tækinu. Það yrði ágæt summa og
vel ásættanleg. Af þessari milljón
myndi ég borga minn skatt og fá
minn persónuafslátt og allt það.
Alls yrði skatturinn sem ég greiddi
í staðgreiðslu til samfélagsins af
milljóninni, eftir að hafa greitt í
lífeyrissjóð, um 320 þúsund krón-
ur, eða 32 prósent.
EFTIR stæðu litlar sextán milljón-
ir. Það væri hagnaður af sölu bréfa,
greiddur arður, vextir af banka-
innistæðum og þess háttar. Af
þeirri summu myndi ég einungis
greiða tíu prósent skatt, eða eina
milljón og sex hundruð þúsund. Af
öllum sautján milljónunum myndi
ég því greiða alls í skatt til samfé-
lagsins um eina milljón, níu hundr-
uð og tuttugu þúsund krónur.
KANNSKI finnst einhverjum það
vera dágóð fjárhæð. Það er ekki
lítið að greiða tæpar tvær milljón-
ir á mánuði í ríkissjóð. En eftir
stendur nú samt hin átakanlega
staðreynd að þessum tiltekna
hátekjumanni − einum af mörgum
í sístækkandi hópi − er með þessu
móti einungis gert að greiða ellefu
prósent í skatt af heildartekjum
sínum, þegar allt er reiknað. Ég
endurtek: Ellefu prósent. Í tölu-
stöfum: 11%.
ÞETTA er ellefu prósent fólkið. Á
sama tíma greiðir sá sem fær 350
þúsund krónur í laun á mánuði
fyrir að vinna sem venjulegur
launamaður, án þess að eiga hluta-
bréf, kaupréttarsamninga eða
summur inni á banka, 27 prósent
af tekjum sínum í skatt.
ÞETTA er ekki réttlátt. Þetta er
ósanngjarnt. Svona viljum við
ekki hafa það. Eitt stærsta verk-
efnið í stjórnmálum á Íslandi er að
leiðrétta þetta kerfi sem beinlínis
býr til ójöfnuð. Við erum orðin
verri en Bandaríkjamenn hvað
varðar ójöfnuð. Ellefu prósent
fólkið er að stinga aðra af. Tekjur
þeirra og eignir aukast jafnt og
þétt. Auður skapar auð. Þorri
almennings situr á meðan fastur í
verðtryggðum skuldum og safnar
litlum eignum. Hvað jöfnuð og
réttlæti varðar ber allt að sama
brunni. Hér ríkir ein öfgafyllsta
hægristefna í heimi. Það er ekki
hægt að orða þetta öðruvísi: Ísland
er á hægri niðurleið.
ÞAÐ þarf enga öfga til þess að
leiðrétta þetta óréttlæti, bara
sanngirni. Forsætisráðherra hefur
lýst því yfir á Alþingi að hann
missi ekki svefn út af þessu. Þar
er ráðherranum rétt lýst. Hann
sefur vært á meðan þjóðfélagið
setur hvert metið á fætur öðru í
misskiptingu auðs í skjóli kerfis
sem hann hefur engan áhuga á að
breyta. Góða nótt, Geir.
Ójöfnuður