Fréttablaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 7. október 2006 7
Sögulegt yfirlit náttúrulækn-
inga
Faðir náttúrulækningastefnunnar
er gríski læknirinn Hippókrates,
sem jafnframt er talinn faðir
læknisfræðinnar og var uppi á 5.
öld fyrir Krists burð. Hippókrates
lagði megináherslu á að koma í
veg fyrir sjúkdóma með réttum
lifnaðarháttum.
Upphafsmaður náttúrulækninga-
stefnunnar hér á landi, Jónas
Kristjánsson læknir, vildi auka
lífsgæði þjóðarinnar með heil-
brigðari lífsháttum. Hann hvatti
fólk til að bera ábyrgð á eigin
heilsu og kappkostaði að miðla
þeirri þekkingu og fróðleik sem
sönnust var og réttust á hverjum
tíma. Hann stóð ætíð traustum
fótum í þekkingarheimi vís-
indanna.
Heilsustofnun Náttúrulækninga-
félagsins í Hveragerði hefur starf-
að í áratugi og byggir á heildræn-
um lækningum. Þar er heilsuvandi
einstaklinganna skoðaður með það
í huga að líta þurfi á andlegt, líkam-
legt og félagslegt ástand í sam-
hengi. Fræðsla og fagleg ráðgjöf
er stór þáttur í starfinu og er þar
lögð mest áhersla á heilsuvernd
og bætta lífshætti. Náttúrulækn-
ingastefna Heilsustofnunar NLFÍ
er í fullu samræmi við markmið
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
um bætt heilbrigði og heilsu-
vernd.
Í dag hafa fjölmargir bæst í hóp
þeirra sem starfa í anda náttúru-
lækningastefnunnar og sinna
heildrænni heilsufræði. Matthild-
ur Þorláksdóttir náttúrulæknir er
þeirra á meðal en hún rekur nátt-
úrulækningastofu og matstofu í
Grafarvogi. Matthildur greinir
fæðuóþol og orkustíflur af öðrum
völdum og ráðleggur fólki með
fæðuval og lífsstíl. Hún vinnur
líka með „colon“ eða ristilhreins-
anir og smáskammtalyf.
Frá Hippó-
kratesi til
Matthildar
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR ER EIN ÞEIRRA FJÖLMÖRGU SEM ÞAKKA
MATTHILDI HEILSU SÍNA OG HAMINGJU. HÉR ER HENNAR SAGA.
Ég varð ófrísk í ágúst 2004. Strax í september var ég byrjuð að æla.
Hélt að þetta yrði bara fyrstu vikurnar en þetta hélt bara áfram alla
meðgönguna. Var látin prófa alls kyns lyf til að stoppa ógleðina. Ekkert
gerðist. Var lögð inn í desember til að fá næringu í æð. Ég ældi stund-
um tuttugu sinnum á dag. Læknarnir sendu mig í einhverjar rannsókn-
ir, en ekkert kom út úr þeim.
Þessi meðganga endaði með tíu daga innlögn á sjúkrahúsi. Próteinið
var farið að hækka hjá mér og blóðþrýstingur. Fæðingin var sett af stað
í 38. viku og gekk hún vel. En þremur dögum eftir fæðingu fór ég að
kippast til, var komin með meðgöngueitrun. Var sett á gjörgæslu í þrjá
daga. Þetta var allt frekar leiðinlegt.
Ég hélt að ógleðin og uppköstin myndu hætta eftir fæðingu, en svo
var aldeilis ekki. Var alltaf í skoðun hjá læknum. Fór í magaspeglun en
ekkert sást. Læknarnir gáfust upp á mér.
Það endaði með því að ég fór til Matthildar og hún greindi hjá mér
mikið fæðuóþol. Það voru sextán fæðutegundir sem hún bað mig að
taka út, og viti menn, ég hætti að æla og líf mitt varð aftur eins og
það átti að vera. Ristillinn í mér var líka orðin stíflaður. Hún setti mig í
colon. Það losaði um ristilinn og kom kerfinu aftur í gang.
Dæmi um fæðu sem ég má ekki borða: Lamba- og svínakjöt. Sykur,
hveiti, ger. Appelsínur, áfengi, kaffi, bananar, vínber. Mygluostar.
Djúpsteiktur matur og fleira. Ef ég passa mig á að borða ekki þessar
fæðutegundir líður mér rosalega vel. Skapið er allt annað og hvernig
mér líður í dag! Fyrir utan það var svo rosalegt hvað ég safnaði á mig
bjúg. Þó að ég hafi ekki borðað neitt á meðgöngunni þyngdist ég
um 21 kíló. Ég var afmynduð af bjúg. Augun sokkin, fæturnir eins og
blöðrur. Eftir að ég breytti mataræðinu missti ég átta kíló í hvelli.
Litli strákurinn minn byrjaði að fá magakveisu níu mánaða. Þá byrjaði
ég að gefa honum sojajógúrt og graut. Hafði bara fengið brjóstamjólk,
ávexti og grænmeti fram að því. Honum leið skelfilega, kúkaði blóði og
grenjaði marga tíma á dag. Fór með hann til læknis en þeir fundu ekk-
ert. Leitaði ráða hjá Möttu. Hann var þá með glútenóþol og sojaóþol.
Maðurinn minn fór til Möttu núna í ágúst. Hann hefur alltaf verið að
drepast í hálsinum. Hann var eins og gamall karl á hverjum morgni.
Hrækjandi upp úr sér slími og óþvera. Hann hefur alltaf verið svona. Ég
pantaði tíma hjá Möttu og sagði honum að fara. Hann var ekki æstur
fyrst en sér ekki eftir því. Hann var með svo mikla sýrumyndun í líkam-
anum. Hún sagði honum að hætta í öllum mjólkurmat og drekka bara
hrísgrjónamjólk í staðin. Ekkert hveiti, sykur og ger. Hann er nýr maður.
Reynslusaga: Á gjörgæslu vegna fæðuóþols
Litli rauðhærði drengurinn hennar Valgerðar var með glúten- og
sojaóþol.
Gríski læknirinn Hippókrates
www.rumogsofi.is
Með hverju keyptu sófasetti eða
rúmi fylgir „sexy“ stóll á meðan
birgðir endast…
Allt næstum því ókeypis!
- Nánast á kostnaðarverði!
Geggt kúl, marr ;-)
AMERICAN
ANTARES
(Hinn sívinsæli Framsóknarsófi á kosningatilboði)
LINEA CLEAN
40-70%
afslát
tur AF
ÖLLU
Ódýrasta fellihýsið á markaðnum!
Sérstakt tilboð fyrir „unga“
eldri borgara á rúmum.
Unglingavandamálin
leyst í eitt skipti fyrir öll!
Opnunartími 12–18, um helgar 11–17