Fréttablaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 102
7. október 2006 LAUGARDAGUR62
HRÓSIÐ …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 óskiptu 6 halló 8 blaður 9 þrá 11
vörumerki 12 fyrirtæki 14 náskyldur
16 skóli 17 klettasprunga 18 for 20
bardagi 21 traðkaði.
LÓÐRÉTT
1 ofneysla 3 í röð 4 ítalskur ofnréttur 5
suss 7 uppnám 10 knæpa 13 pfn. 15
nótt 16 flík 19 kyrrð.
LAUSN
Einhver umdeildasta kvikmyndapersóna
seinni tíma, Kasakinn Borat, gæti hugs-
anlega verið á leiðinni til landsins en
þetta staðfesti Guðmundur Breiðfjörð,
markaðsstjóri hjá Senu. Samkvæmt Guð-
mundi verður Borat í Kaupmannahöfn 2.
nóvember en heldur svo til Sydney.
Mynd hans verður frumsýnd í Reykjavík
3. nóvember og nú er róið að því öllum
árum að fá grínistann til að millilenda
hér á landi enda langt flug frá Kastrup
til andfætlinganna í Ástralíu.
Kvikmyndin Borat: Cultural Learn-
ings of America for Make Benefit Glori-
ous Nation of Kazakhstan hefur vakið
heimsathygli og eru ráðamenn í Kasak-
stan alveg brjálaðir yfir því sem þarna
birtist á hvíta tjaldinu. Meðal þess sem
Borat heldur fram í myndinni er að þjóð-
ardrykkurinn í Kasakstan sé gerjað
hrossahland, þar njóti dýrin meiri rétt-
inda en konur og að áhugamál sem njóti
virðingar meðal þjóðarinnar séu til
dæmis nauðganir og sifjaspell. Ríkis-
stjórnin í Kasakstan sá sér meðal annars
þann kost vænstan að kaupa fjögurra
síðna auglýsingu í New York Times en
þar var landið hreinsað af öllu því sem
birtist í myndinni. Mál Borats var jafn-
framt tekið upp á fundi George W. Bush
og forseta Kasakstans, Nursultan Nazar-
bayev, en landið hefur verið öflugur
stuðningsmaður Bandaríkjanna í stríð-
inu gegn hryðjuverkum.
Fréttamaðurinn Borat er sköpunar-
verk breska gamanleikarans Sasha
Bacha Cohen og birtist fyrst í gaman-
þáttunum um Ali G sem slógu eftirminni-
lega í gegn hér á landi fyrir nokkrum
árum. - fgg
Unnið að komu Borats til Íslands
TIL ÍSLANDS Þessi persóna Sacha Baron Cohen hefur gert allt brjálað um allan heim
og hann gæti verið á leiðinni til Íslands.
FINNST BORAT EKKI
FYNDINN Nursultan
Nazarbayev, forseti
Kasakstans, hefur ekki
húmor fyrir því gríni sem
Borat gerir að landinu.
... fær Valdimar Örnólfsson sem
gerir Müllers-æfingar á hverjum
morgni og segir þær flestra
meina bót.
Leikur KF Nörd og FH vakti mikla
athygli á miðvikudaginn, ekki síst
fyrir þá staðreynd að á völlinn
mættu sjö þúsund manns til
berja augum fótboltalið sem
ekkert getur og Íslandsmeistarana
etja kappi en þess má geta að
„aðeins“ þrjú þúsund
manns mættu á
bikarúrslitaleik
Keflavíkur og KR í
meistaraflokki karla.
Í ljósi þess hversu
vel gekk á nú að
hamra járnið
á meðan það
er eitt og eru
forstöðumenn
sjónvarpsstöðvarinnar Sýn sagðir
róa að því öllum árum að gera
sem mest úr „nördaæðinu“.
Hefur Fréttablaðið heimildir fyrir
því að reynt verði að fá sænska
nördaliðið til að spila vináttuleik
hér á landi og jafnvel koma á fót
Norðurlandamóti nördaliða.
Það var fríður hópur manna sem
spásseraði saman um miðborgina
um hádegisbilið í gær. Þetta
voru þeir Sverrir Þór Sverrisson,
Sveppi; Árni Þór Vigfússon,
forkólfur á sjónvarpsstöðinni Sirkus;
Kristján Ragnar Kristjánsson,
fyrrum samstarfsmaður Árna
á Skjá einum, og
Ingvar Sverrisson,
athafnamaður og
bróðir Sveppa. Ekki
er vitað hvaða
áform þeir
félagar hafa
verið að
ræða en
ekki er
ólíklegt að lagt hafi verið á ráðin
um uppsetningu söngleiks næsta
sumar.
Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir
þykir sjaldan eða aldrei hafa litið
betur út en einmitt nú. Ástæða
þess er sú að Helga hefur tekið
mataræði sitt algerlega í gegn. Nú
borðar Helga ekkert hvítt hveiti,
ekkert ger og alls engan sykur.
Helga borðar
nú eingöngu
grænmetisfæði
og lýsir því
stolt yfir að
hún sé orðin
grænmetisæta.
- fgg/hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT: 2 öllu, 6 hæ, 8 mas, 9 ósk, 11
ss, 12 firma, 14 náinn, 16 fg, 17 gjá, 18
aur, 20 at, 21 tróð.
LÓÐRÉTT: 1 óhóf, 3 lm, 4 lasanja, 5
uss, 7 æsingur, 10 krá, 13 mig, 15 nátt,
16 fat, 19 ró.
Jónína Benediktsdóttir athafna-
kona slær ekki slöku við og hefur
nú tekið að sér að leiðbeina Íslend-
ingum í svokallaðri detox-meðferð
á heilsuhóteli í Póllandi. „Þetta er
alveg ótrúlega gott,“ segir Jónína,
sem hefur farið oft í detox-með-
ferð sjálf. „Þetta tekur tvær vikur.
Fyrstu þrjá til fjóra dagana borðar
fólk bara grænmeti og ávexti. Ef
læknir telur það ráðlegt fastar það
svo í sjö daga. Þannig losar líkam-
inn sig við hin og þessi eiturefni
og fólki líður miklu betur eftir á.
Maður verður klár og skýr í kollin-
um ef maður fastar.“
Jónína starfar fyrir heilsuhót-
elið pólska og sér um að sækja
íslenska gesti þegar þeir koma á
flugvöllinn í Gdansk. „Ég lóðsa þá
um svæðið, þýði og kynni fyrir
þeim meðferðina. Fólk greiðir 90
þúsund krónur og innifalið í því er
húsnæði og fæði í tvær vikur, nudd
í fjögur skipti og ýmislegt fleira.“
Auk þess stendur ýmislegt annað
til boða, allt frá ristilhreinsunum
til balletsýninga. „Stólpípuhreins-
anir eru rosalega vinsælar í dag,“
segir Jónína. „Fólk greiðir sér-
staklega fyrir þær en það er hræ-
ódýrt eins og annað í Póllandi.“
Jónína segist hafa orðið vör við
mikinn áhuga á ferðunum. „Sér-
staklega hjá ungu fólki sem á við
offitu að stríða. En þetta er líka
vinsælt hjá gigtar- og krabba-
meinssjúklingum sem vilja lina
verkina. Þetta er kjörið til þess.“
Jónína ætlar að setja upp heima-
síðuna detox.is í næstu viku en
þangað til geta áhugasamir haft
samband við hana í gegnum net-
fangið joninaben@hotmail.com. -bs
Jónína afeitrar Íslendinga í Póllandi
JÓNÍNA BENEDIKTSDÓTTIR Hefur sjálf farið margoft í detox-meðferð og líður henni
alltaf vel á eftir.
Aðdáendur sjónvarpsþáttarins
Stelpurnar geta tekið gleði sína á
ný því nú standa yfir æfingar á
þriðju þáttaröðinni. Einhverjar
mannabreytingar hafa hins vegar
orðið á hópnum og hafa þær Helga
Braga Jónsdóttir og Elma Lísa
Gunnarsdóttir fengið fasta stöðu
en Brynhildur Guðjónsdóttir verð-
ur ekki með að þessu sinni. Auk
þess hverfur Steinn Ármann
Magnússon af vettvangi auk Bergs
Ingólfssonar en Kjartan Guðjóns-
son verður á sínum stað. Þá munu
Strákarnir, þeir Auðunn Blöndal,
Pétur Jóhann Sigfússon og Sverir
Þór Sverrisson koma til með að
leika í þáttunum. Má því með sanni
segja að Strákar og Stelpur séu
loks komin í eina sæng.
Leikstjórinn Sævar Guðmunds-
son var nýkominn af æfingu með
stelpunum og var að taka á móti
strákunum þegar Fréttablaðið náði
tali af leikstjóranum en hann tekur
við keflinu af Ragnari Bragasyni
sem stýrði síðustu þáttaröðinni.
Sævar hefur að mest unnið við aug-
lýsingar fyrir framleiðslufyrirtæk-
ið Saga Film en vakti fyrst athygli
fyrir æði skrautlegar stuttmyndir
frá Akureyri þar sem uppistaðan
voru hvers kyns áhættuatriði. Hann
hefur nýlokið við að gera sjónvarps-
þáttinn Venna Páer fyrir Skjá einn
og tekur nú við einum vinsælasta
gamanþætti þjóðarinnar. „Auðvitað
eru miklar kröfur gerðar en mér líst
bara vel á þetta,“ sagði Sævar. „Ég
er aðallega spenntur og þetta verð-
ur miklu meiri keyrsla en ég hélt,
mikið efni tekið upp á skömmum
tíma,“ útskýrir leikstjórinn.
Lærifaðir þáttanna, Óskar Jónas-
son, verður ekki langt undan en
hann og Sævar hafa að undanförnu
verið að velja „sketsa“ fyrir þáttinn
og tökustaði. Sævar og Óskar eru
ekki ókunnugir hvor öðurm en þeir
hafa unnið töluvert saman og gerðu
meðal annars tvö áramótaskaup
saman.
Sævar er sagður mikill heiðurs-
maður á heimasíðu Saga Film en
hlær þegar þessi lýsing er borin
undir hann. „Ég er aðallega vinnu-
þjarkur og á það til að gleyma mat-
arhléum í öllum æsinginum,“ segir
Sævar og því greinilegt að stjörnun-
um verður pískrað út á næstu miss-
erum. freyrgigja@frettabladid.is
SÆVAR GUÐMUNDSSON: PÍSKAR STJÖRNUNUM ÚT Á TÖKUSTAÐ
Strákar og Stelpur í eina sæng
STELPURNAR Töluverðar mannabreytingar hafa orðið á hópnum. Brynhildur Guð-
jónsdóttir verður ekki með auk þess sem Steinn Ármann er horfinn á braut.
LÆRIFAÐIR ÞÁTTANNA
Óskar Jónasson verður
Sævari til aðstoðar en
þeir félagar hafa setið
sveittir við að velja
sketsa og töksustaði.
SÆVAR GUÐMUNDSSON Tekur við
keflinu af Ragnari Bragasyni og leikstýrir
þriðju seríunni af Stelpunum.
STRÁKARNIR Þeir Sverrir Þór,
Pétur Jóhann og Auðunn Blöndal
verða Stelpunum innan handar.
1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8