Fréttablaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 95
LAUGARDAGUR 7. október 2006 55
Þar sem við höfum verið að skoða
smekk frægra og vel klæddra
kvenna en nú er tími karlkynsins
kominn því þar leynast nokkrir
vel klæddir karlmenn. Söngvarinn
Jarvis Cocker hefur lengi verið
talinn hafa flottan og tískulegan
fatasmekk. Hann var einn af þeim
fyrstu til að klæðast niðurmjóum
gallabuxum og támjóum skóm
sem síðan hefur verið einn af ein-
kennisbúningum jaðarmenningar-
innar. Það má eiginlega segja að
Jarvis sé einn af stofnendum
treflamenningarinnar
eða „treflanna“ með
litríkum treflum og
flauelsjakkafata-
jökkum.
Jarvis Cocker
skaust upp á
stjörnuhiminnn
með hljómsveit-
inni Pulp og hefur
síðan verið iðinn
við kolann að búa
til tónlist fyrir
sig og aðra.
Tískutákn rokksins
TÖFFARI Svartar niðurmjóar buxur, gyllt
belti, húðlituð skyrta og flauelisjakki er
töffaralegt á Cocker.
SNJÁÐAR Jarvis sést hér á rauða dregl-
inum í snjáðum gallabuxum, grænum
jakka og rauðri skyrtu. Þetta getur ekki
hver sem er leyft sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES.
FLÖSKUBOTNAGLER-
AUGU Jarvis sést hér í
svörtu frá toppi til táar
með gleraugu sem eru
hans einkenni.
KÖFLÓTT Á göngu
í gallabuxum,
ullarjakka og með
köflóttan trefil
sem setur svip á
heildarútlitið.
Þýska hönnunartvíeykið Vikt-
or&Rolf hefur nú gefið frá sér
ilmvatn í fyrsta sinn. Ilmvatnið
ber heitið Flowerbomb eða blóma-
sprengja upp á íslensku. Eins og
nafnið gefur til kynna er ilmurinn
mild blanda af hinum ýmsu blóma-
ilmum sem fengnir eru úr sínu
náttúrulega umhverfi. Með ilm-
vatninu vilja þeir félagar meina
að þeir færi nýja sýn inn í tísku-
heim, þar sem stórfenglegt er það
sama og glæsileiki.
Glasið er bleikt að lit og mjög
dömulegt. Það er öfugt við fram-
úrstefnulega fatahönnun Vikt-
or&Rolf sem þykir mjög áhrifa-
mikil innan tískuheimsins.
Ekki er nóg með að þeir félagar
hafi hafið innreið sína inn á ilm-
vatnsmarkaðinn, í nóvember er
væntanleg lína frá þeim sem seld
verður í sænsku verslunarkeðj-
unni Hennes&Mauritz. Það má því
segja að Viktor&Rolf séu að undir-
búa heimsyfirráð á tískumarkaðn-
um og gaman verður að fylgjast
með þróuninni. - áp
Blóma-
sprengja frá
Viktor&Rolf
VIKTOR&ROLF Þýska hönnunartvíeykið
er með margt í pípunum og var að gefa
út sitt fyrsta ilmvatn.
FLOWER-
BOMB
Ilmvatnið
er í dömu-
legum
umbúðum
sem minna á
gamla tímann.
MESTA ÚRVALIÐ ER Í SKÍFUNNI
-komin í Skífuna
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 · Skífan Smáralind · Skífan Kringlunni · Póstkröfusími 591-5310 · www.skifan.is
skemmtir þér ;)
Nýtt á dvd
Frá leikstjóra Sex & The City og Cold Feet,
með þeim Jennifer Aniston, Joan Cusack
og Frances Mcdormand
2.299 kr.