Fréttablaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 4
4 7. október 2006 LAUGARDAGUR
GENGIÐ 06.10.2006
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
118,8299
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
67,91 68,23
127,49 128,11
86,06 86,54
11,541 11,609
10,21 10,27
9,282 9,336
0,5750 0,5784
100,26 100,86
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
BANDARÍKIN Fylgi Repúblikana-
flokksins hefur dalað nokkuð sam-
kvæmt skoðanakönnunum eftir að
fréttist af ósæmilegri hegðun
bandaríska þingmannsins Marks
Foley gagnvart snúningapiltum á
þinginu.
Demókrataflokkurinn hefur
óspart notað sér málið til þess að
hamra á andstæðingum sínum og
meðal annars krafist þess að
Dennis Hastert, forseti fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings, segði af
sér vegna þess hvernig hann tók á
málinu í upphafi.
Hastert var sakaður um að hafa
reynt að gera lítið úr alvöru þess,
þar sem hann gagnrýndi fyrst og
fremst demókrata fyrir að gera
þetta að fjölmiðlamáli í aðdrag-
anda þingkosninga. Einnig hefur
hann verið sakaður um að hafa
vitað af málinu áður en það komst
í fjölmiðla fyrir viku, en hann neit-
ar því.
Hastert hafnar öllum kröfum
um afsögn, en á fimmtudaginn
sneri hann við blaðinu og segir
Repúblikanaflokkinn taka fulla
ábyrgð á málinu. George W. Bush
Bandaríkjaforseti og fleiri af
áhrifamönnum í Repúblikana-
flokknum hafa lýst yfir stuðningi
sínum við Hastert, þar á meðal
Bill Frist, leiðtogi flokksins í öld-
ungadeild þingsins, og George
Bush eldri.
„Hann á ekki að verða neitt
fórnarlamb,“ sagði James A.
Baker, fyrrverandi utanríkisráð-
herra, í gær.
Málið snýst um að Foley hefur
árum saman sent snúningapiltum
á þingi dónaleg skilaboð í tölvu-
pósti. Hann sagði af sér þing-
mennsku í lok síðustu viku, eftir
að málið komst í hámæli, skráði
sig í áfengismeðferð og hefur
einnig upplýst að hann sé samkyn-
hneigður. Einnig segist hann sjálf-
ur hafa orðið fyrir kynferðislegu
ofbeldi á unglingsaldri.
Siðanefnd fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings samþykkti á
fimmtudaginn að hefja ítarlega
rannsókn á málinu. Nefndin ætlar
að kalla nærri fimmtíu manns til
yfirheyrslu vegna málsins. Marg-
ir þeirra eru þingmenn eða starfs-
fólk þingsins. Rannsóknin mun þó
einkum beinast að því hvernig
ráðamenn á þinginu tóku á málinu,
þegar fyrst fór að fréttast af því,
frekar en að hegðun Foleys sér-
staklega.
Nefndin ætlar að taka sér
nokkrar vikur í að rannsaka málið,
og fullyrðir ekkert um það hvort
rannsókninni verði lokið fyrir
þingkosningarnar, sem haldnar
verða 7. nóvember.
gudsteinn@frettabladid.is
Repúblikanar missa
fylgi vegna hneykslis
Demókratar notfæra sér óspart hneykslismál Marks Foley, sem sagði af sér
þingmennsku fyrir viku. Bush forseti lýsir stuðningi sínum við Hastert, forseta
fulltrúadeildar þingsins, sem demókratar vilja að segi af sér.
SIÐANEFND HEFUR RANNSÓKN Doc Hastings, formaður siðanefndar fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings, skýrði frá því að nefndin ætli sér að rannsaka Foley-málið.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
STJÓRNMÁL Frumvarp um afnám
einkasölu Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins á bjór og léttu víni var
lagt fram á Alþingi í gær. Er þetta
fjórða þingið í röð þar sem frum-
varpið er lagt fram.
Í því er kveðið á um að sveitar-
stjórnum verði falið að veita fólki
eða fyrirtækjum leyfi til sölu bjórs
og léttvíns.
Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálf-
stæðisflokki, er sem fyrr fyrsti
flutningsmaður en Guðrún
Ögmundsdóttir, Samfylkingunni, er
í hópi meðflutningsmanna. Guðrún
kveðst sannfærð um ágæti þess að færa léttvínssöl-
una til einkaaðila. „Þetta er það sem koma skal og er
raunin þegar horft er til vinnulags úti á landi. Þetta
er því aðeins spurning um að taka
stærra skref.“
Guðrún segist ekki óttast að
neysla áfengis aukist, verði sala
bjórs og léttvíns flutt til einkaaðila.
„Ég held að þetta breyti engu,
aðgengið er það mikið hvort eð er.
Drykkjuvenjur hafa breyst eftir að
bjórinn kom, fólk drekkur minna af
sterku víni og þetta er áfram skref í
þá átt.“
Frumvarp til laga sem girða fyrir
auglýsingar á áfengi í skjóli
óáfengra drykkja eða drykkja í
líkum umbúðum og áfengir drykkir,
var einnig lagt fram í gær.
Ögmundur Jónasson hjá Vinstri grænum er fyrsti
flutningsmaður þess. - bþs
Frumvarp um heimild einkaaðila til sölu bjórs og léttvíns lagt fram fjórða þingið í röð:
Þetta er það sem koma skal
GUÐRÚN ÖGMUNDSDÓTTIR vill að
einkaaðilar fái að selja bjór og léttvín.
DÓMSMÁL Nítján ára piltur var
dæmdur í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær fyrir
líkamsárás og fíkniefnabrot.
Pilturinn sló til annars manns
fyrir utan skemmtistaðinn
Glaumbar fyrir rúmu ári með
þeim afleiðingum að sá hlaut
töluverða áverka.
Við handtöku fundust einnig
rúm 15 grömm af amfetamíni í
fórum árásarmannsins. Honum
var gert að greiða fórnarlambi
sínu 120.000 krónur auk vaxta í
skaðabætur. Pilturinn hefur
ítrekað komið við sögu lögreglu
vegna ýmissa brota. - þsj
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Líkamsárás og
fíkniefnabrot
LÖGREGLUMÁL Þrjú innbrot voru
tilkynnt lögreglunni í Reykjavík á
fimmtudag. 17 ára piltur hefur
gengist við tveimur þeirra en
lögreglunni höfðu borist haldgóð-
ar upplýsingar um piltinn í gær
og teljast þau því að mestu
upplýst. Pilturinn hefur ítrekað
komið við sögu lögreglu þrátt
fyrir ungan aldur. Í þriðja
innbrotinu var brotist inn í
raðhús í borginni og stolið þaðan
tölvubúnaði og myndavél. Að
sögn lögreglu mun rannsókn þess
máls halda áfram. - þsj
Þrjú innbrot í Reykjavík:
17 ára braust
tvívegis inn
LEIKSKÓLAMÁL Í könnun sem gerð
var á öllum leikskólum í Reykja-
vík nú um mánaðamótin kemur í
ljós að enn vantar starfsfólk í 83
stöðugildi.
Nú vantar þrjá eða fleiri til
starfa á sjö leikskólum í borginni
en fyrir nokkrum vikum voru
þessir leikskólar sautján talsins.
Flesta vantar til starfa á
leikskólum í Miðbæ, Hlíðum,
Árbæ og Grafarholti.
Á bilinu 36-39 leikskólastöður
hafa verið auglýstar í Fréttablað-
inu síðustu þrjár helgar. - hs
Mannekla á leikskólum:
Vantar áttatíu
starfsmenn
LEIKSKÓLASTARF Enn vantar 83 starfs-
menn á leikskóla í Reykjavík.
FERÐAMÁL Ferðamálaráð Evrópu
og ETAG hafa unnið skýrslu undir
heitinu „Tourism Trends for
Europe“. Í skýrslunni er fjallað
um þá þætti sem líklega hafa áhrif
á þróun ferðamála næstu árin.
Magnús Oddsson ferðamála-
stjóri segir athyglisvert að gert
sé ráð fyrir hækkandi meðalaldri
ferðamanna. Þá er í skýrslunni
gert ráð fyrir að rafrænar dreifi-
og söluleiðir breyti kauphegðun
fólks og ferðatilhögun í framtíð-
inni. Magnús segir að líta beri á
breytingarnar sem tækifæri sem
hægt sé að nýta til aukinna
umsvifa hér á landi. - hs
Ferðaþjónusta:
Hækkandi ald-
ur ferðamanna
FERÐAMENN Gert er ráð fyrir að meðal-
aldur ferðamanna hækki.
Verkfalli lokið
Danskir foreldrar í Árósum önduðu
léttar í gær þegar borgaryfirvöld sam-
þykktu fjárhagsáætlun fyrir næsta ár,
því þá munu leikskólakennarar mæta
aftur til starfa á mánudag eftir þriggja
vikna verkfall. Leikskólakennararnir
og fjölmargir foreldrar voru þó ekki
sáttir, því fjárhagsáætlunin kallar eftir
sparnaði upp á 410 milljónir danskra
króna, sem mun bitna einna harðast
á börnum og öldruðum.
DANMÖRK