Fréttablaðið - 07.10.2006, Blaðsíða 34
[ ]Góð smáauglýsing á bíl sem ætlunin er að selja á að inni-halda árgerð, tegund, lit, vélarstærð og hve mikið bíllinn er ekinn. Sleppið óþarfa lýsingarorðum og lofyrðum.
Reynsluakstur Lexus GS300
EXE
Lexus GS300 er enginn venjuleg-
ur bíll. Hann lætur svo sem ekki
mikið yfir sér á ytra byrði en
þegar inn er komið og hurðinni
hefur verið lokað verður maður
hálf agndofa af fáguninni og
glæsileikanum. Fyrstu hugsun-
inni sem skýtur niður í kollinn er
að maður hefði þurft að vera
fínna klæddur til að samræmast
leðurklæddum sætunum og
fallega hönnuðum ljósunum.
Undir vélarhlíf Lexus er feyki-
mikið afl. GS300-gerðin er með
3ja lítra V6-vél með háþróaðri
beinni innspýtingu en hana má
einnig fá með 4,3 lítra V8-vél.
Báðar eru vélarnar með sex gíra
sjálfskiptingu en einnig fylgir
raðbundin skipting. V6-vélin nær
hámarki sínu í 249 hestöflum við
6.200 snúninga og 310Nm
hámarkstogi á 3.500 snúningum.
Maður er því aðeins 7,2 sekúndur
frá núll upp í hundrað km/klst.
Bíllinn er sparneytinn miðað við
stærð og afl; eyðir 9,8 lítrum í
blönduðum akstri.
Maður finnur lítið fyrir hrað-
anum á þjóðvegum landsins og
sökum þess hversu þægilegur
bíllinn er í alla staði hentar Lexus
einkar vel til langrar keyrslu. Það
eina sem gæti truflað er óþarf-
lega mikið vegahljóð miðað við
verð bílsins. Fyrir rúmar sex
milljónir býst maður við full-
komnun. Hins vegar skýrist veg-
hljóðið líklega af þeim dekkjum
sem eru undir bílnum en hann er
hægt að fá með 17 og 18 tommu
álfelgum.
Maður fær góða öryggistil-
finningu um borð í GS300. Hann
er útbúinn allt að tólf loftpúðum,
ebd-hemlun, spólvörn, skriðvörn
og aflstýri. Gallinn er helst sá að
rafeindastýrður stýrisgangur
bílsins lætur ekki nógu vel í hönd-
um bílstjórans. Virðist stýrisbún-
aðurinn stundum vilja taka völdin
af bílstjóranum og sækir til ann-
arrar hvorrar hliðar.
Sætin í bílnum eru rúmgóð og
þægileg. Framsætin er hægt að
stilla á alla hugsanlega vegu og
hægt er að vista sína stillingu í
minni. Þá er bæði hægt að stilla
hita og kælingu sætanna. Pláss
fyrir farþega í aftursæti er ekki
yfirgengilegt en þó meira en búist
var við í fyrstu.
Lexus GS300 mætti kalla raf-
knúið himnaríki. Allt er stillan-
legt með rofum. En þrátt fyrir
töluvert takkaflóð er hönnunin
einföld og heildarsvipur mæla-
borðsins ekki yfirfylltur. Stór
hluti rafknúinna takka er allur á
sama stað, haganlega fyrirkomið
til hliðar við stýrið og hægt er að
fela stjórntækin þegar ekki er
verið að nota þau.
Hönnun lýsingar inni í bílnum
er einkar hugvitsamleg. Sérstök
lýsing er á ýmsum hlutum og
hugsað er fyrir öllu. Ljóskastarar
í farþegarými lýsa upp ákveðin
svæði, til dæmis í innri hurðar-
húnum, gírstöng, stýri og í gólfi.
Mælarnir eru sérlega fallegir og
sportlegir. Þá er Optitron-skjár-
inn búinn ECD-birtustilli sem
bætir aflestur mæla. Í mælaborði
er EMV-snertiskjár með öllum
stillingum fyrir útvarp og mið-
stöð auk margs annars, til dæmis
fjarlægðarskynjara sem gerir
það leikandi létt að bakka í þröngt
stæði.
Ein snilldarlausn í GS300 er
lykillausa opnunarkerfið. Með
því að vera með tæki í vasanum
eða veskinu skynjar bíllinn þegar
þú ert nálægt og leyfir þér að
opna bílinn án þess að nota lykil.
Þetta er mjög þægilegt fyrir fólk
með fullar hendur af pokum eftir
verslunarferð.
Lexus GS300 er ekki á allra
færi. Hann er dýr en maður fær
mikið fyrir peningana. Hann er
kannski ekki fyrir fjölskyldur
þessa lands en hentar þeim sem
aðhyllast sérstakan lífsstíl.
solveig@frettabladid.is
Tölvustýrt himnaríki. Falleg hönnun
einkennir mælaborð Lexus GS300.
Stjórnborði spegla, bensínloks og margs
fleira er haganlega fyrir komið á einum
stað. Einnig er hægt að fela stjórnborðið
með því að ýta því upp í mælaborðið.
Glæsilegur lífsstílsbíll
Fótapláss í aftursætum er ekki allt of
mikið en þó meira en maður gerir sér í
hugarlund.
Undir þessari fáguðu vélarhlíf leynist
mikill kraftur.
Óþarfi er að snúa lykli til að koma kagg-
anum í gang.
Optitron-skjárinn sem er búinn ECD-birtustilli sem bætir aflestur mæla.
Lexus GS300 EXE er glæsilegur lúxusbíll. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
REYNSLUAKSTUR
LEXUS GS300 EXE
Vél: 3ja lítra V6 með innspýtingu
4,3 lítra V8
249 hestöfl, 310Nm tog
Hröðun 0-100 km/klst: 7,2 sek
Eyðsla, bl.akstur: 9,8 l/100km
Þyngd: 2.125 kg.
Farangursrými: 0,430 m3
PLÚS:
Kraftur
Glæsileiki og falleg hönnun
Ljósaútbúnaður innan og utan
MÍNUS:
Veghljóð miðað við verð
Stýriseiginleikar
Verð prufubíls: 6.250.000
Jeppadekk
Vagnhöfða 6 • Sími 577 3080
31" heilsársdekk
verð frá kr. 12.900
www.alorka.is
Sendum frítt um land allt!
Við míkróskerum og neglum!
Úrval af stærðum upp í 33"
Opið á laugardögum 9-13
M
IX
A
•
fít
•
6
0
4
9
7
Gabriel höggdeyfar, AISIN kúplingssett, TRISCAN spindilkúlur,
stýrisendar, gormar. Drifliðir, drifliðshlífar, ballansstangir.
Tímareimar, ökuljós, stefnuljós ofl. Sætaáklæði,
sætahlífar á stóla – vatnsheldar fyrir veiðimenn,
hestamenn o.fl. Kerruljós, bretti og nef-
hjól á kerrur. Bílamottur.
Við bjóðum …
Súðarvogi 6 – 104 Reykjavík Sími 577-6400
…farangursstífur í alla bíla!
• Sendibíla • Skuttlur • fjölskyldubíla