Fréttablaðið - 24.10.2006, Síða 12
12 24. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
STJÓRNMÁL Einar Oddur Kristjáns-
son, formaður Ferðamálaráðs,
styður hvalveiðar en skilur
áhyggjur forsvarsmanna fyrir-
tækja í ferðaþjónustu sem telja
veiðarnar geta unnið greininni
skaða. Hann ætlar að verða við
ósk Dags B. Eggertssonar, borgar-
fulltrúa og ráðsmanns, um að
halda fund í Ferðamálaráði og
ræða ástand og horfur. Einar von-
ast til að fundurinn geti orðið á
fimmtudag.
Dagur segir stjórnvöld ekki
hafa haft samráð við hagsmuna-
aðila þegar ákveðið var að hefja
hvalveiðar og undirbúningur sé
allur í skötulíki. „Hundruð fjöl-
skyldna og fyrirtækja sem hafa
lagt í fjárfestingar vegna ferða-
þjónustu um land allt búa nú við
mikla óvissu. Sama er að segja um
útflytjendur vöru og þjónustu sem
eiga mikið undir ímynd landsins,“
segir Dagur.
„Ég hef fullan skilning á
áhyggjum lítilla fyrirtækja í
ferðaþjónustu og það er þörf á að
róa menn og hvetja þá til að taka
þessu af stillingu,“ segir Einar
Oddur, sem engu að síður óttast
ekki að skaði hljótist af. „Ég held
ekki að greinin muni skaðast þrátt
fyrir yfirlýsingar nokkurra öfga-
manna um þessar veiðar okkar.“
- bþs
RANNSÓKN „Í rannsókninni leitaðist
ég við að svara þeirri spurningu
hvað geri starfsmenn trygga gagn-
vart vinnustaðnum,“ segir Linda
Kristmundsdóttir, deildarstjóri
göngudeildar barna- og unglinga-
deildar Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss, sem rannsakaði áhrif
starfsaldurs og menntunar á holl-
ustu starfsmanna geðsviðs LHS.
Linda segir að skipta megi holl-
ustu upp í þrjá hópa; tilfinninga-
bundna hollustu, stöðubundna holl-
ustu og skyldubundna hollustu.
„Tilfinningabundin hollusta er
áhugi og vilji til að starfa. Stöðu-
bundin hollusta tengist því að
starfsmenn séu hollir vinnustað
sínum vegna þess að þeir sjá ekki
möguleika á öðru starfi en skyldu-
bundin hollusta tengist því að
starfsfólki finnst því bera skylda
til hollustu vegna einhvers konar
fyrirgreiðslu sem viðkomandi
hefur fengið frá vinnustaðnum.“
Rannsókn Lindu er MA-ritgerð í
mannauðsstjórnun við viðskipta-
og hagfræðideild HÍ.
Úrtak rannsóknarinnar var 180
manns og svarhlutfallið var 67
prósent, sem jafngildir því að 120
hafi svarað spurningalistanum.
Eins og áður hefur komið fram
sýna háskólamenntaðir starfs-
menn geðsviðs marktækt minni
tilfinningabundna hollustu miðað
við aðra starfsmenn en þess ber að
geta að tilfinningabundin hollusta
hefur mesta fylgni við frammi-
stöðubundna þætti starfsmanna.
Linda segir að niðurstöðurnar
kunni að skýrast af því að háskóla-
menntaðir starfsmenn hafi aðrar
væntingar og kröfur til vinnustað-
arins og séu frekar trúir sinni fag-
stétt en vinnustaðnum.
Niðurstöður rannsóknarinnar
sýndu einnig að það dregur úr
skyldubundinni hollustu eftir því
sem starfsaldurinn hækkar.
Hugsanlega má túlka þessar niður-
stöður á þann veg að starfsmenn
upplifi að þeir fái ekki þá umbun í
starfi sem þeim finnst þeir eiga
skilið. „Það er erfitt að umbuna
starfsmönnum á opinberum stofn-
unum þar sem kjarasamningar eru
bundnir og lítill sveigjanleiki til að
gera betur við einstaka starfs-
menn.“
Linda segir að í ljósi niðurstaðn-
anna megi hugsa sér að auka
tryggð starfsmanna með því að
auka þátt háskólamenntaðra
starfsmanna í veigamiklum
ákvarðanatökum og umbuna þeim
starfsmönnum sem standa sig vel í
starfi og hafi langan starfsaldur.
hugrun@frettabladid.is
Það er erfitt að umb-
una starfsmönnum á
opinberum stofnunum þar sem
kjarasamningar eru bundnir og
lítill sveigjanleiki til að gera betur
við einstaka starfsmenn.
LINDA KRISTMUNDSDÓTTIR
DEILDARSTJÓRI
PRÓFKJÖR Glúmur Baldvinsson
hefur ákveðið að gefa kost á sér í
5.-8. sæti í
prófkjöri
Samfylkingar-
innar í Reykjavík
fyrir alþingis-
kosningarnar
2007.
Glúmur er
með tvö meistara-
próf í alþjóða-
samskiptum og
BA-próf í
stjórnmálafræði
og hagfræði. Þá hefur hann
starfað sem blaðamaður og
fréttamaður í sjónvarpi og
starfaði að neyðar- og þróunar-
aðstoð fyrir Sameinuðu þjóðirnar
í Mið-Austurlöndum, Afríku og á
Srí Lanka.
Í dag starfar Glúmur að
kynningarmálum fyrir Trygg-
ingastofnun Ríkisins. - hs
Prófkjör Samfylkingarinnar:
Gefur kost á sér
í 5.-8. sæti
GLÚMUR
BALDVINSSON
Háskólamenntaðir
sýna minni hollustu
Háskólamenntaðir starfsmenn á geðsviði LSH sýna marktækt minni tilfinn-
ingabundna hollustu við vinnustað sinn en aðrir starfsmenn geðsviðsins. Þá
dregur úr skyldubundinni hollustu eftir því sem starfsaldur hækkar.
VIÐ STÖRF Linda segir hugsanlegt að túlka megi niðurstöður rannsóknar sinnar á þann veg að starfsmenn upplifi að þeir fái ekki
þá umbun í starfi sem þeim finnst þeir eiga skilið. Myndin er úr safni og tengist efni greinarinnar ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GUÐIR HYLLTIR Trúarhátíð stendur
nú yfir í Taívan og var þessi kona að
kveikja á reykelsum við altari kín-
verskra guða í höfuðborginni Taípei
þegar ljósmyndara bar að.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UNGVERJALAND, AP Lögreglu í Búdapest lenti í
gær saman við mótmælendur sem vísað hafði
verið frá torgi við þinghúsið þar sem aðalathafn-
irnar í tilefni af fimmtíu ára afmæli byltingartil-
raunarinnar gegn sovéska okinu fóru fram.
Mótmælendurnir vilja að ungverski forsætis-
ráðherrann Ferenc Gyurcsany segi af sér eftir
að hann viðurkenndi að hafa logið að kjósendum
fyrir þingkosningar í vor sem leið.
Þjóðarleiðtogar víða að, þar á meðal frá
Íslandi, tóku á sunnudag þátt í hátíðardagskrá í
Búdapest, en í gær - þegar rétt 50 ár voru liðin
frá því uppreisnin hófst - lögðu fulltrúar
ungversku ríkisstjórnarinnar og hinir tignu
erlendu gestir blómsveiga að nýju minnismerki
um byltinguna við Kossuth-torg. Síðan fór fram
minningardagskrá í öldungadeild Ungverja-
landsþings. Meðal ræðumanna voru Gyurcsany
forsætisráðherra og Jose Manual Barroso,
forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins.
Barroso sagði byltinguna 1956 hafa „kveikt
kyndil frelsis“ sem þegar fram liðu stundir átti
þátt í að fella alræðisstjórnir í stórum hluta
Evrópu. - aa
50 ára afmælis byltingarinnar í Ungverjalandi minnst í Búdapest:
Minningarathafnir í skugga mótmæla
TÖLVUR Tölvuveira fylgir hluta
þeirra iPod-spilara sem seldir
hafa verið síðan 12. september
síðastliðinn. Apple, sem framleið-
ir tónlistar- og myndbandsspilar-
ana, gaf frá sér tilkynningu á
dögunum þar sem fram kemur að
veira hafi óvart leynst í nokkrum
þeirra spilara sem geta spilað
myndbönd.
Vírusinn heitir RavMonE og
ræðst gegn tölvum með Windows-
stýrikerfið. Talsmenn Apple
segja innan við eitt prósent
þeirra spilara sem seldir hafa
verið eftir 12. september
innihalda veiruna. - sþs
Apple sendir frá sér viðvörun:
Veira í nokkrum
iPod-spilurum
EGYPTALAND, AP Ólöglegur
uppgröftur þjófa varð til þess að
yfirvöld komust á snoðir um 4.200
ára gamalt grafhýsi í Saqqara,
tuttugu kílómetra suður af Kaíró.
Myndletur við inngang grafhýsis-
ins sýnir auga yfir vígtönn og
bendir það til þess að grafhýsið
hafi tilheyrt konunglegum
tannlæknum.
Þjófarnir fundu grafhýsið
fyrir um tveimur mánuðum og
hófu uppgröft. Þeir virðast ekki
hafa tekið eftir myndletri sem
sýnir snáka og krókódíla, en það
merkir að á grafhýsinu hvíli
bölvun. Þjófarnir voru allir
gripnir og fangelsaðir. - tg
Fornminjaþjófar:
Grafhýsi tann-
lækna finnst
INNGANGUR GRAFHÝSISINS Hinsti
hvíldarstaður þriggja múmía.
NORDICPHOTO/GETTY IMAGES
Formaður Ferðamálaráðs verður við ósk ráðsmanns um fund vegna hvalveiða:
Óttast ekki orð öfgamanna
DAGUR B.
EGGERTSSON
EINAR ODDUR
KRISTJÁNSSON
LINDA KRIST-
MUNDSDÓTTIR
UPPREISNAR MINNST Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, sést hér fjórði frá
vinstri í hópi þjóðarleiðtoga
á Kossuth-torgi í Búdapest í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ATVINNUMÁL Hlutfall kvenna sem
sitja í stjórnum fyrirtækja og
gegna stjórnarformennsku er 22
prósent og hefur verið nánast
óbreytt frá árinu 1999. Kemur
það fram í tölum sem Hagstofan
hefur tekið saman yfir fram-
kvæmdastjóra, stjórnarformenn
og stjórnarmenn í fyrirtækjum.
Á sama tímabili hefur fyrir-
tækjum með konur sem fram-
kvæmdastjóra fjölgað úr 15,4
prósentum árið 1999 í 18,2
prósent árið 2005. Flestar konur
eru framkvæmdastjórar í
fyrirtækjum sem eru með innan
við tíu starfsmenn og starfa við
verslun og þjónustu. - sdg
Stjórnendur í fyrirtækjum:
Konur rúmlega
tuttugu prósent
Berlín fær ekki fjárstuðning
Þýski stjórnlagadómstóllinn í Karls-
ruhe hefur úrskurðað að borgarsjóður
Berlínar, sem skuldar sem svarar
um 5.200 milljörðum króna, sé ekki
nógu illa staddur til að eiga tilkall
til sértækrar fjárhagsaðstoðar úr
sambandsríkissjóðnum. Borgarstjór-
inn Klaus Wowereit hafði fært rök
fyrir slíkum stuðningi með vísan til
þess að fjárhagsvandinn ætti rætur í
sameiningunni eftir fall múrsins.
ÞÝSKALAND
SVEITARSTJÓRNIR Þór Vigfússon á
bænum Straumi vill að bæjar-
stjórn Ölfuss banni allt æfinga-
og kennsluflug yfir Árbæjar-
hverfi þar í sveitarfélaginu. Þór
hefur einnig sent bæjaryfirvöld-
um í Árborg bréf varðandi
málefni flugvallarins á Selfossi
og mikið ónæði af flugumferð um
völlinn. Hann hefur enn fremur
lagt fram kæru hjá sýslumannin-
um á Selfossi varðandi brot á
heimilisfriði. Þá hafa íbúar á
bænum Vogi í Ölfusi einnig
kvartað til bæjarstjórnarinnar
vegna ónæðis af flugumferðinni.
Bæjarstjórn Ölfuss ætlar að leita
upplýsinga um málið hjá Flug-
málastjórn. - gar
Þór Vigfússon á Straumi:
Vill banna flug
SELFOSS Flugumferð er sögð valda
ónæði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA