Fréttablaðið - 24.10.2006, Page 56
SPLÚNKUNÝ PLATA!
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
Se
ndu
SM
S s
key
tið
JA
RW
F
á
nú
me
rið
19
00
og
þú
gæ
tir
un
nið
ein
tak
!
Vin
nin
gar
er
u R
ude
box
ge
isla
pla
tan
, g
jaf
abr
éf
frá
Tó
nlis
t.is
,
fu
llt
af
öð
rum
ge
isla
plö
tum
og
ma
rgt
fle
ira
9
HVERVINNUR!
[KVIKMYNDIR]
UMFJÖLLUN
Kevin Costner má muna fífil sinn
fegri. Einhver góðhjartaður sjón-
varpsframleiðandi ætti að láta
skrifa handa honum handrit að
sjónvarpsþætti og forða kvik-
myndahúsagestum þannig frá því
að þurfa að horfa upp á enn einn
hryllinginn frá honum. Costner
gæti eflaust leikið rannsóknarlög-
reglumann, kannski í CSI: Alaska.
Nýjasta mynd Costners, The
Guardian, er slík klisja að allt sem
einhvern tímann hefur verið gert í
hetjukvikmyndum kemur fyrir í
henni. Costner leikur Ben Randall,
björgunarsveitarmann sem sting-
ur sér til sunds eftir skipsbrots-
mönnum. Randall er auðvitað sá
besti í faginu, goðsögn en þegar
áhöfn hans deyr í þyrluslysi er
honum falið að þjálfa upp nýja
kynslóð af „sundmönnum“.
Randall beitir að sjálfsögðu nýjum
aðferðum sem mælast misvel
fyrir hjá stjórnendum skólans en
að endingu stendur hann uppi sem
sigurvegari auk þess sem hann
vingast við efnilegasta nemann,
hrokagikkinn Jake Fischer. Saman
takast þeir síðan á við erfið verk-
efni með fyrirsjáanlegum afleið-
ingum. Verða hetjur hafsins.
The Guardian byrjar ágætlega,
hefst á atriði þar sem Costner,
nema hver, sýnir ótrúlegt hug-
rekki. Svo líða tveir og hálfur tími
og ekkert gerist. Costner veður
bara áfram í skít. Hann gengst
upp í því að búa til persónur sem
eru svo miklar hetjur að ef kvik-
myndahúsagestir vissu ekki betur
væri þarna maður sem æti blý í
morgunmat og gæti lyft heilu
fjalli og flogið. The Guardian er
slíkur hryllingur að ástæða er til
að vara fólk við að sólunda fé sínu
eða svo vitnað sé til frægs kvik-
myndarýnis: „Ef ég hefði séð
þessa mynd í farþegaflugvél í
þrjátíu þúsund feta hæð hefði ég
alvarlega íhugað að ganga út.“
Freyr Gígja Gunnarsson
Fiskur á þurru landi
THE GUARDIAN
LEIKSTJÓRI: ANDREW DAVIS
Aðalhlutverk: Kevin Costner og Ashton
Kutcher
Niðurstaða: Ástæða er til að vara fólk við því
að sólunda fé sínu í þennan hrylling. Kevin
Costner ætti að taka sér langt og gott frí.
Hljómsveitirnar Red Hot Chili
Peppers og Gnarls Barkley ætla
saman í tveggja mánaða tónleika-
ferð um Norður-Ameríku í jan-
úar.
Chili Peppers er um þessar
mundir á tónleikaferð um Banda-
ríkin til að fylgja eftir tvöföldu
plötunni sinni Stadium Arcadium
sem kom út fyrr á árinu. Gnarls
Barkley fer í tónleikaferð um
Evrópu á næstunni, sem lýkur í
Dublin 8. nóvember.
Hinn 9. nóvember kemur út
viðhafnarútgáfa af plötu Gnarls
Barkley, St. Elsewhere, en tæp
milljón eintaka hefur selst af
henni í Bandaríkjunum. Með plöt-
unni fylgir DVD-mynddiskur með
fjórum tónlistarmyndböndum og
nokkrum lög af tónleikum, auk 92
blaðsíðna bæklings.
Í tónleikaferð með
Gnarls Barkley
RED HOT CHILI PEPPERS Kaliforníusveitin vinsæla er á leiðinni í tónleikaferð með
Gnarls Barkley.
Önnur sólóplata söngkonunnar
Regínu Óskar, Í Djúpum dal, er
komin út. Upptökustjóri er Barði
Jóhannsson, sem ekki alls fyrir
löngu stjórnaði upptökum á plötum
Bubba Morthens; Ást og Í sex
skrefa fjarlægð frá paradís.
Síðasta plata Regínu Óskar
kom út fyrir ári síðan. „Það var
allt önnur leið farin núna en í
fyrra,“ segir Regína. „Í fyrra hitt-
umst við með hljómsveit og spil-
uðum beint inn. Núna fékk Barði
að vinna meira sjálfur og fékk
ýmsa til að aðstoða á plötunni,“
segir hún.
Á meðal þeirra var franskur
trommari, sem einnig trommaði á
plötum Bubba, franskur gítarleik-
ari, Guðmundur Pétursson, Karl
Olgeirsson og Daði Birgisson.
Margir laga- og textahöfundar
koma jafnframt við sögu, þar á
meðal Védís Hervör, Hrafnkell
Pálsson, gítarleikari úr Í svörtum
fötum, Stefán Hilmarsson, Jóhann
Helgason og Magnús Þór. Sjálf
samdi Regína einn texta á plöt-
unni.
Regína Ósk segir að samstarfið
við Barða hafi gengið rosalega vel.
„Ég held að örlögin hafi leitt okkur
saman. Mig langaði til að fá ein-
hvern sem væri svolítið ólíkur
mér, þannig að við gætum leitt
saman hesta okkar og mæst á
miðri leið. Þegar ég var á fundi
með Eiði útgáfustjóra Senu hring-
ir Barði og segir að það hafi losnað
tími hjá sér. Eiður nefndi það við
mig strax,“ segir hún. „Við náðum
vel saman og erum lík þó svo að
við séum svolítið ólík.“
Útgáfutónleikar vegna plötunn-
ar verða haldnir hinn 1. nóvember
í Borgarleikhúsinu.
Örlögin gripu inn í
REGÍNA ÓSK Söngkonan vinsæla er að gefa út sína aðra sólóplötu.
Íslenska þjóðernið kemur víða við
en mörgum brá þó eflaust í brún
fyrir skömmu þegar Carl, stórvin-
ur Hómer Simpson í teiknimynda-
þáttaröðinni The Simpsons, upp-
lýsti að hann hefði alist upp á
Íslandi. Carl greindi frá þessu í
þætti þar sem flóðljós lýstu upp
Springfield allan daginn og sagði
hann þetta minna sig á
barnæsku sína hér
uppi á Fróni.
Alfræðivef-
urinn wikiped-
ia.org staðfestir
þetta og segir
skýrt og
greinilega að
Carl hafi í það
minnsta fæðst á
Íslandi. Lengi
vel hefur
verið talið
að Carl
væri frá
Cinc-
innati en
það er alls
kostar ekki
rétt. - fgg
Íslendingur
í Simpsons
CARL CARLSSON
Er talinn hafa
fæðst á Íslandi og
á góðar minningar
frá björtum sumar-
nóttum.
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
Topp5.is
M.M.J kvikmyndir.com
EMPIRE V.J.V. Topp5.is
“Ein fyndnasta
gamanmynd ársins”
HJ - MBL
EMPIRE
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM
GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
MÝRIN kl. 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 5.40, 8 og 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 8
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 6 og 8 ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
CRANK kl. 10
ACT NORMAL kl. 10.10
MÝRIN kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20
DEVIL WEARS PRADA kl. 5.40, 8 og 10.20
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 4 og 6 B.I. 7 ÁRA
MONSTER HOUSE ENSKT TAL kl. 3.50 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 5.40, 8 og 10.20
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 8 og 10
GRETTIR 2 ÍSL TAL kl. 3.50
MÝRIN kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 6 og 8
TEXAS CHAINSAW MASSACRE kl. 10 B.I. 18 ÁRA
ALLRA SÍÐUSTU
SÝNINGAR