Fréttablaðið - 24.10.2006, Side 58
34 24. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
> Pauzuolis á „heimleið“
Handknattleikskappinn Robertas Pauzuolis verður
laus allra mála hjá þýska félaginu Hildesheim um
mánaðamótin og stefnir á að flytja til Íslands, þar sem
hann lék með Selfossi og Haukum með góðum árangri
á sínum tíma. Pauzuolis á íbúð hér á landi og vill setjast
hér að. Hann hefur átt í nokkrum meiðslavandræðum
ytra en er þrátt fyrir það að spila og mun eflaust nýtast
hvaða liði sem er hér á landi. Eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst er hann
ekki búinn að semja
við neitt félag hér á
landi en mun líkast til
standa ýmislegt til boða
á næstu dögum.
Skagamaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson fékk í gær samningstilboð
frá sænska félaginu Norrköping en ÍA og Norrköping höfðu áður
komist að samkomulagi um greiðslu og því er það undir Hafþóri
komið hvort hann taki tilboðinu og fari utan eða spili áfram á
Íslandi.
„Þetta samningstilboð er svipað því sem ég átti von á að fá. Nú er
boltinn hjá mér og ég er óákveðinn í augnablikinu,“ sagði Hafþór
Ægir seinni partinn í gær en hann er staðráðinn í því að spila ekki
áfram með ÍA. Eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá hefur Hafþór
Ægir ákveðið að taka hagstæðu samningstilboði frá Val fari hann
ekki utan en tilboð Vals er ekki síðra en tilboð sænska liðsins, sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins.
„Ég hef ekkert mikinn tíma til að taka ákvörðun en ég mun svara
Norrköping fljótlega. Það verður ekkert farið í að gera gagntilboð.
Annað hvort tek ég þessu tilboði þeirra eða hafna því. Ég held
að það sé ekki hægt að fá betri samning frá slíku félagi en þetta.
Staðan er mjög tvísýn og ég fer ítarlega yfir málið áður en ég tek
ákvörðun,“ sagði Hafþór Ægir, sem vill ekki gera sömu mistök og
margir íslenskir knattspyrnumenn hafa gert.
„Mér finnst allt of margir leik-
menn fara of snemma út og þá
til félaga þar sem þeir fá ekkert
að spila og taka því ekki fram-
förum sem knattspyrnumenn,
sem á víst að vera tilgangurinn.
Ég vil því vanda mig við þessa
ákvörðun og vonandi tek ég
rétta ákvörðun,“ sagði Hafþór
Ægir Vilhjálmsson.
KNATTSPYRNUKAPPINN HAFÞÓR ÆGIR VILHJÁLMSSON: VALIÐ STENDUR Á MILLI VALS OG NORRKÖPING
Það er erfitt að taka ákvörðun
FÓTBOLTI Jörundur Áki Sveinsson,
landsliðsþjálfari kvenna, hefur
gert þriggja ára samning við
Breiðablik en hann mun taka við
kvennaliði félagsins af Guðmundi
Magnússyni, sem sagði nýlega
upp störfum eftir að hafa staðið
uppi með tvær hendur tómar í lok
sumars.
„Ég ætla að reyna að stoppa
lengur hjá félaginu en forverar
mínir,“ sagði Jörundur Áki í gær
en síðustu tveir þjálfarar Breiða-
bliks voru aðeins við störf í eitt ár.
Jörundur Áki þjálfaði Breiðablik
síðast fjögur ár í röð.
„Þetta kom mjög snöggt upp og
í rauninni tók allt ferlið skamman
tíma. Nú er bara að leggjast yfir
hópinn og fara yfir stöðuna. Það
má búast við einhverjum breyt-
ingum á hópnum en hverjar þær
breytingar verða get ég ekki sagt
á þessari stundu. Við munum þó
eflaust reyna að styrkja hópinn
eitthvað,“ sagði Jörundur Áki.
Ásthildur Helgadóttir ætlaði að
spila með Blikum í sumar en hætti
að lokum við og hélt áfram að spila
með Malmö í Svíþjóð þar sem hún
hefur farið á kostum. Lokaleikur
tímabilsins í Svíþjóð er um næstu
helgi og Ásthildur mun ákveða
framhaldið í kjölfarið.
„Það er erfitt að taka ákvörðun
og er að vega og meta hlutina
þessa dagana. Hvort ég eigi að
vera áfram í Svíþjóð eða koma
heim en ég er komin í ákveðin
verkefni heima sem toga í mig.
Svo hefur fótboltinn ráðið lífi
manns hingað til og nú er spurn-
ing hvort það sé kominn tími að
láta eitthvað annað taka við,“ sagði
Ásthildur í gær en hún sagði að
ákveddi hún að vera áfram ytra
kæmi ekkert annað til greina en
að spila áfram með Malmö.
„Þegar ég fór til Svíþjóðar
aftur sagðist ég koma til baka í
Breiðablik. Svo er staðan orðin
þannig að ég hef átt í vandræðum
með bakið á mér sem og hnéð og
mun fara í myndatökur vegna
þeirra meiðsla fljótlega. Staðan er
frekar óljós í augnablikinu. Svo er
ég líka að hugsa um framtíðina en
ég vil ekki eyðileggja skrokkinn í
boltanum. Ég vil geta farið á skíði
og annað þegar fótboltaferlinum
lýkur,“ sagði Ásthildur Helgadótt-
ir. henry@frettabladid.is
Jörundur kominn til Blika
og Ásthildur á leiðinni?
Jörundur Áki Sveinsson er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við
Breiðablik um að þjálfa kvennalið félagsins. Skýrist eftir næstu helgi hvort Ást-
hildur Helgadóttir komi heim og spili fyrir Breiðablik.
JÖRUNDUR ÁKI SVEINSSON Kominn á fornar slóðir í Kópavoginum eftir að hafa þjálf-
að karlalið Stjörnunnar. Hann segir Blika ætla að styrkja hópinn og svo gæti farið að
Ásthildur Helgadóttir sneri heim á leið. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
FÓTBOLTI Spænsku blöðin eru ekki
hrifin af leik Barcelona gegn Real
Madrid á sunnudaginn og Eiður
Smári Guðjohnsen fær ekki góða
dóma fyrir sína frammistöðu í
leiknum. Talað er um að Barce-
lona sakni mjög Samuel Eto‘o og
að Eiður sé ekki að standa undir
þeim kröfum sem til hans eru
gerðar.
Spænska blaðið Mundo Deport-
ivo segir að ekkert hafi komið út
úr Eiði Smára í framlínunni og að
hann hafi fengið sannkallað dauða-
færi til að jafna leikinn fyrir Bar-
celona í fyrri hálfleiknum, eftir
frábæran undirbúning hjá Lionel
Messi. Blaðið segir jafnframt að
Eiði hafi verið réttilega skipt af
velli fyrir Javier Saviola en sú
skipting hafi þó ekki borið árang-
ur, því Real Madrid hafi haft undir-
tökin allan leikinn og unnið sann-
færandi sigur.
Marca tekur í sama streng og
segir að Eiður hafi átt að gera
betur í færinu sem hann fékk í
stöðunni 1-0. Marca segir þó að
Saviola hafi sýnt það og sannað
eftir að hann kom inn á að hann
hafi mun meira að bjóða liðinu en
Eiður Smári, hann sé fljótari en
Eiður og passi mun betur við stíl
Lionel Messi í framlínunni. - dsd
Spænsku blöðin fara ekki fögrum orðum um leik Barcelona gegn Real Madrid:
Eiður Smári fær slæma dóma
EIÐUR SMÁRI Þótti slakur gegn Real
Madrid. NORDIC PHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Stjarnan réð í gær
Kristján Halldórsson sem þjálf-
ara karlaliðsins út þetta tímabil
en Kristján tekur við starfinu af
þeim Sigurði Bjarnasyni og
Magnúsi Teitssyni sem sögðu upp
störfum á dögunum. Það hafði
gengið frekar brösuglega hjá
Stjörnumönnum að finna nýjan
mann en nú er loks orðið ljóst að
Kristján stýrir skútunni til loka
tímabilsins en hann hitti leik-
mennina í gærkvöldi.
„Það er ekkert launungarmál
að umhverfið í Garðabæ er gott
og þetta er spennandi verkefni,“
sagði Kristján í gær en hann
þjálfaði síðast kvennalið FH.
Kristján er þrautreyndur þjálf-
ari og hefur meðal annars þjálf-
að í Noregi og Danmörku.
„Stjarnan stóð sig vel í fyrra
en sofnaði svolítið eftir að hafa
orðið bikarmeistari. Liðið hefur
ekki byrjað vel í vetur en þetta er
langt mót og enn hægt að gera
gott úr vetrinum. Ég hef trú á að
ég geti snúið skútunni við, annars
hefði ég ekki tekið verkefnið að
mér,“ sagði Kristján. - hbg
Langri leit Stjörnunnar að nýjum þjálfara fyrir handboltaliðið lokið:
Kristján ráðinn þjálfari út tímabilið
TENNIS Arnar Sigurðsson, fremsti
tennisspilari okkar Íslendinga, tók
í síðustu viku þátt í atvinnu-
mannamóti sem fram fór í Mexíkó
og komst í átta manna úrslit.
Arnar hóf keppni í 32 manna
úrslitum og sló þá Bandaríkja-
manninn Lester Cook út í þremur
settum; 4-6, 7-5 og 7-5.
Í 16 manna úrslitum mætti
Arnar Cristian Paiz frá Gvate-
mala og sigraði nokkuð örugglega
í tveimur settum, 6-2 og 6-2.
Arnar datt svo út fyrir Max
Raditschnigg frá Austurríki í
þremur settum; 6-4 4-6 og 2-6.
- dsd
Arnar Sigurðsson:
Komst í átta
manna úrslit
KEPPIR GRIMMT Það er nóg að gera hjá
Arnari þessa dagana. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Iceland Express deild karla
KEFLAVÍK-KR 80-91
Stig Keflavíkur: Magnús Gunnarsson 23, Jerma-
in Williams 22 (13 fráköst, 6 varin skot), Sigurður
Þorsteinsson 12, Sverrir Sverrisson 7 (9 fráköst, 6
stoðsendingar), Gunnar Einarsson 6, Halldór Hall-
dórsson 4, Arnar Jónsson 2, Magni Ómarsson 2,
Axel Þór Margeirsson 2.
Stig KR: Tyson Patterson 21 (10 stoðsendingar, 7
fráköst), Pálmi Sigurgeirsson 19, Peter Heizer 15,
Jeremiah Sola 11 (4 varin skot, 5 fráköst), Fan-
nar Ólafsson 10 (11 fráköst), Brynjar Björnsson
3, Skarphéðinn Ingason 5, Darri Hilmarsson 4,
Gunnar Stefánsson 3.
STAÐAN
GRINDAVÍK 2 2 0 178:160 4
KR 2 2 0 174:159 4
NJARÐVÍK 2 2 0 173:165 4
ÍR 2 1 1 171:148 2
ÞÓR ÞORL. 1 1 0 82:79 2
SNÆFELL 2 1 1 146:143 2
HAUKAR 2 1 1 174:183 2
KEFLAVÍK 2 1 1 167:175 2
TINDASTÓLL 1 0 1 88:89 0
SKALLAGR. 2 0 2 168:174 0
FJÖLNIR 2 0 2 135:150 0
HAMAR/SELF. 2 0 2 141:172 0
Sænska úrvalsdeildin
HAMMARBY-ELFSBORG 1-0
Pétur Marteinsson kom inn á á 41. mínútu og
Gunnar Þór Gunnarsson kom inn á á 70. mínútu
í liði Hammarby.
GAUTABORG-KALMAR 0-3
Hjálmar Jónsson sat á varamannabekk Gauta-
borgar allan leikinn.
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR
KÖRFUBOLTI KR-ingar gerðu góða
ferð í Reykjanesbæ í gær og báru
sigurorð af Keflvíkingum, 81-90.
Keflvíkingar byrjuðu leikinn af
miklum krafti en KR-ingar sigu
fram úr og stóðu að lokum uppi
sem öruggir sigurvegarar.
Keflavík skoraði fyrstu tíu
stigin í leiknum í gær og voru
með frumkvæðið framan af
leiknum en KR-ingar höfðu þó
yfir eftir fyrsta leikhluta, 24-26.
KR gerði sér síðan lítið fyrir
og skoraði 13 fyrstu stigin í
öðrum leikhluta og komust í 39-
24. Keflvíkingar náðu þó að
minnka muninn í fimm stig en
aftur tóku KR-ingar kipp og
leiddu í hálfleik með 10 stigum,
34-44.
Þessa forystu létu KR-ingar
aldrei af hendi og Keflvíkingar
komust aldrei nær KR en níu stig.
Keflvíkingar skoruðu 10 síðustu
stigin í leiknum en allt kom fyrir
ekki, sá kafli kom einfaldlega
allt of seint hjá heimamönnum og
sigur KR-inga því staðreynd.
- dsd/óój
Iceland Express deild karla:
Öruggur sigur
hjá KR-ingum
HÖRÐ BARÁTTA Sverrir Þór er hér í
harðri baráttu undir körfu KR-inga.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
FÓTBOLTI Hannes Þór Halldórsson
gekk í gær frá tveggja ára
samningi við Fram. Hannes Þór
er markvörður sem lék með
Stjörnunni í sumar en hann rifti á
dögunum samningi sínum við
Garðabæjarfélagið og var því
frjálst að ræða við þau félög sem
honum sýndist.
Hannes Þór er uppalinn í
Leikni og var mjög sáttur við að
hafa gengið frá sínum málum
þegar Fréttablaðið náði í hann í
gær. „Við vorum bara að ganga
frá þessum málum rétt í þessu.
Ég gerði tveggja ára samning við
Fram,“ sagði markvörðurinn
knái.
Fram hefur leitað logandi ljósi
að markverði frá því að Gunnar
Sigurðsson lagði hanskana á
hilluna á dögunum. Nú virðist
Safamýrarfélagið hins vegar vera
búið að finna lausn á því máli.
Hannes Þór er 22 ára gamall og
hefur leikið með meistaraflokk-
um Stjörnunnar, Aftureldingar og
Leiknis í Breiðholtinu á sínum
ferli.
- dsd
Markvarðamál Framara:
Hannes Þór
til Framara
HANNES ÞÓR Sagði upp samningi
sínum hjá Stjörnunni á dögunum.
FRÉTTABLAÐIÐ