Fréttablaðið - 24.10.2006, Page 62

Fréttablaðið - 24.10.2006, Page 62
 24. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR38 HRÓSIÐ … 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 Japans. 2 Ian Jeffs. 3 Líkfundarmálinu. TIL SÖLU BENZ 815 L árgerð 2005 m. lyftu Aðeins ekinn 22.000 km. Kassi er 36 rúmmetrar (plywood með LBW). Burðargeta 2.2 tonn. Hestöfl 149. Dieselvél 4249 cc. Uppl. veita Kristján (8992541) eða Andrés (8960599). Til sýnis í Suðurhrauni 12C. LÁRÉTT 2 drykkur 6 bogi 8 verkfæri 9 þrot 11 ónefndur 12 eftirsjá 14 minnkun 16 grískur bókstafur 17 skel 18 keyra 20 tveir eins 21 glufa. LÓÐRÉTT 1 rúm 3 þys 4 sýndu fram á 5 beita 7 frekja 10 viður 13 líða vel 15 boli 16 samstæða 19 frá. LAUSN LÁRÉTT: 2 mysa, 6 ýr, 8 sög, 9 mát, 11 nn, 12 iðrun, 14 rénun, 16 pí, 17 aða, 18 aka, 20 uu, 21 rifa. LÓÐRÉTT: 1 rými, 3 ys, 4 sönnuðu, 5 agn, 7 ráðríki, 10 tré, 13 una, 15 naut, 16 par, 19 af. ... fær Margrét Lára Viðarsdótt- ir, sem lét strax til sín taka í þýsku knattspyrnunni og skoraði í fyrsta leik sínum. FRÉTTIR AF FÓLKI Valgerður Sverrisdóttir utan- ríkisráðherra sker sig úr fríðum ráðherrahópi því bílstjóri hennar er eini kvenkyns ráðherrabílstjórinn. Sigrún Arnardóttir heitir bílstjóri Valgerðar og þykir heldur vígaleg á glæsilegum BMW- jeppa. Ekki er vitað til þess að kona hafi áður verið bílstjóri ráðherra á Íslandi. Nú er hver frambjóðandinn á fætur öðrum að opna kosningaskrifstofu. Flestir leggja þeir talsvert upp úr góðri mætingu og að fá kræsilega ræðumenn. Ágúst Ólafur Ágústs- son, varaformaður Samfylkingar- innar, opnaði kosningaskrifstofu á föstudaginn en gömlu brýnin Margrét Frímanns- dóttir og Jón Baldvin Hannibalsson héldu þar ræður og lýstu yfir stuðningi við Ágúst Ólaf. Þetta vakti ekki síst athygli þar sem opnunin var daginn eftir Kastljósþáttinn þar sem Margrét fór mjög hörðum orðum um Jón Bald- vin vegna hugsanlegrar eftirgrennsl- unar hans á Stasi-tengslum Svavar Gestssonar. Jafnvel þó að búist hafi verið við einhverjum kulda á milli þeirra tveggja eftir Kastljós- þáttinn var ekki annað að sjá en að nokkuð vel færi á með þeim þarna. Heimsókn Harrison Ford til Íslands fyrir helgi vakti að vonum mikla athygli. Sér í lagi þótti athyglisvert að Ford skellti sér á Iceland Air- waves á Nasa en þar reyndu margir gesta að ræða við kappann og fá að taka mynd af sér með honum. Harrison neitaði öllum beiðnum um myndatökur og ein áhugasöm stúlkan fékk þessa skýringu frá Holly- wood-stjörnunni: „Því miður elskan. Ef ég leyfi þér að taka mynd þá vilja allir fá mynd af sér með mér.“ -fgg/hdm Ástralski tónlistamaðurinn Nick Cave er staddur hér á landi í fríi ásamt konu sinni og tveimur börnum. Til Cave og fjölskyldu sást á Sjávarréttarkjallaranum á sunnudagskvöld þar sem þau gæddu sér á íslenskum sjávar- réttum. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kom Cave hingað til lands á föstudaginn og verður hér fram í miðja þessa viku. Rakel Garðarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Vesturports, stað- festi þetta í samtali við Frétta- blaðið og sagði söngvarann og lagahöfundinn hafa tekið ást- fóstri við land og þjóð. „Síðast þegar hann kom hingað gat fjöl- skyldan ekki verið með þannig að þetta var gráupplagt fyrir þau,“ sagði Rakel en Cave hefur verið ákaflega heppinn með veður þótt kalt sé. Samkvæmt heimildum blaðsins fór Cave út á land og dvaldist þar í góðu yfirlæti í sumarbústað en síðast þegar tón- listamaðurinn kom hingað skellti hann sér meðal annars á hestbak og ekki ólíklegt að hann hafi endurtekið leikinn og leyft tví- burunum sínum að kynnast íslenska hestinum. Rakel segir að Cave vinni núna mjög náið með Gísla Erni Garðar- syni en ástralski tónlistarmaður- inn gerði tónlistina við Hamskipt- in sem nú eru sýnd í London við góðar undirtektir. „Þá verður Nick væntanlega mikið hérna því Vesturport undirbýr núna af krafti uppsetningu á leikverkinu Faust sem hann semur tónlistina við,“ segir Rakel. - fgg Nick Cave í fríi á Íslandi NICK CAVE Er staddur hér á landi í stuttu fríi ásamt fjölskyldu sinni. Davíð Steingrímsson, sem er vafalítið einn dyggasti aðdáandi Bítilsins Sir Paul McCartney hér á landi, hefur fylgst náið með stormasömum skilnaði hans og Heather Mills. Fregnir um að McCartney hafi lamið bæði Heather og fyrri eigin- konu sína Lindu hafa farið um eins og eldur í sinu, en Davíð segist ekki trúa neinu illu upp á sinn mann. „Svona kona eins og hún er, skapmikil og með bein í nefinu, hefði hún ekki labbað út úr sambandinu ef hann hefði verið að lemja hana?“ spyr Davíð, sem hefur farið á tíu tónleika með goðinu. „Í hans tón- list eru allir textarnir um ást, hlýju og vinskap og fjöl- skyldu. Ég les mikið á netinu og þar eru að birt- ast viðtöl við vini þeirra og vandamenn og flestir eru á bandi Paul,“ segir hann og bætir við: „Hann er margbúinn að bjóða henni háar fúlgur. Hann er þannig maður að hann vill ekk- ert vera í sviðsljósinu með einkalífið en hún er að reyna að ná athyglinni og leka ýmsu í fjöl- miðla. Þetta er voðalega skrítið og ég held að þessi manneskja hljóti að vera stór- skemmd,“ segir hann og vandar Heath- er ekki kveðjurnar. „Hann er búinn að reyna að leysa þetta jafnóðum en ég held að hann sé búinn að fá nóg núna og nú sé stríðið rétt að byrja.“ Davíð er sannfærður um að McCartney muni ná sér aftur á strik eftir skilnað- inn. „Hann verður mun sterkari en áður. Gera ekki flestir betri tónlist eftir að hafa lent í sorg? Ég er að bíða eftir því og held að það komi sterk plata frá honum næst. Síðasta plata var brilljant en þessi verður ennþá betri,“ segir Davíð. - fb Heather er skemmd og lýgur upp á Paul DAVÍÐ STEINGRÍMSSON Davíð trúir engu upp á uppáhaldstónlistarmann sinn, Sir Paul McCartney. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MCCARTNEY OG MILLS Heather Mills hefur sakað fyrrum eiginmann sinn um að hafa lamið bæði sig og Lindu McCartney. ������������ �������������� �������������� ������� ���������� ���� Kvikmyndin Mýrin sló nánast öll met um helgina en þá sáu hana um sextán þúsund manns. Myndin hefur fengið afbragðs dóma hjá gagnrýnendum en áhorfendur halda vart vatni yfir frammistöðu Theódórs Júlíussonar í hlutverki Elliða, „eins frægasta misindis- manns landsins,“ eins og Erlendur lýsir honum í myndinni. Kvik- myndahúsagestir reka upp stór augu þegar leikarinn breytist í nauðasköllótt villimenni en Theó- dór hefur verið áberandi á hvíta tjaldinu að undanförnu, lék ráð- settan heimilisföður í stuttmynd- inni Góðir gestir eftir Ísold Ugga- dóttur og miðaldra homma í kvikmyndinni Börn. Theódór seg- ist hafa hugsað sig tvisvar um þegar Baltasar leitaði til hans með hann í huga fyrir hlutverkið. „En svo var ekki hægt að sleppa þessu tækifæri, að taka þátt í þessu ævintýri sem Mýrin er,“ segir hann. Theódór segist ekki hafa kynnt sér skuggaheima Reykjavíkur til að komast nær persónu Elliða heldur hafi þetta verið árangur af sameiginlegri úrvinnslu hans og leikstjórans, Baltasars Kormáks. „Elliða er lýst vel í bókinni og ég reyndi að notfæra mér þær lýs- ingar sem mest og svo var ekkert mál að raka af sér hárið,“ segir hann en lætur þess getið að það sé komið aftur. „Ég lét reyndar loka mig inni í klefa til að ná þessari tilfinningu, að vera á bak við lás og slá, sem er óhugnanleg reynsla,“ segir Theódór, sem not- aði líka hléin á milli taka til að vera á bak við luktar dyr fangels- ins. „Ég reyndi að gera hann brjóstumkennalegan enda er Ell- iði ekkert sérstaklega skarpur,“ útskýrir Theódór, sem vonast þó til að hann verði ekki litinn horn- auga af landsmönnum eftir hlut- verkið. „Ég á ekkert sameiginlegt með Elliða, er bæði ljúfur og góður,“ bætir leikarinn við og hlær, reiknar ekki einu sinni með að hann þekkist sem Elliði, svo ólíkir séu þeir í útliti. Þrátt fyrir hina miklu aðsókn er Theódór ekki einn þeirra sex- tán þúsund sem hafa séð myndina, sá bara stuttan bút á litlum sjón- varpsskjá í eftirvinnslunni. „Ég hef verið svo upptekinn við annað en ég ætla að reyna að fara í kvöld,“ segir Theódór. freyrgigja@frettabladid.is THEÓDÓR JÚLÍUSSON: LÉT LOKA SIG INNI Í KLEFA FYRIR TÖKUR Á MÝRINNI Er ekkert líkur Elliða LJÚFMENNIÐ THEÓDÓR Segist ekki eiga neitt sameiginlegt með Elliða, hann sé bæði ljúfur og góður náungi. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR ILLMENNIÐ ELLIÐI Theódór er nánast óþekkjanlegur í hlutverki þekktasta misindismanns Íslands.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.