Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Ekki sanngjarnt Ógnarstjórn Rann-
veigar Rist
Sigtryggur Berg Sigmarsson tók
að sér rekstur Aðalvideóleigunnar
á Klapparstíg fyrir tveim mánuð-
um. Leigan er ein sú lífseigasta á
landinu og er ásamt Laugarásvíd-
eó helsta sælkeraleiga höfuðborg-
arinnar. Hún bíður upp á fjöl-
breyttara og „menningarlegra“
úrval en aðrar leigur. Sjálfur skil-
greinir Sigtryggur sig sem mikinn
bíómyndanörd.
„Ég fór alltaf mikið í bíó sem
barn,“ segir Sigtryggur, „en þegar
ég var 13 ára fór ég að sjá fyrir
hvernig flestar myndir myndu
enda eftir svona 10 mínútur. Þá
fann ég hjá mér þörf fyrir að leita
uppi aðeins dýpri myndir og sú
leit rak mig m.a. í Aðalvideóleig-
una þar sem ég var kynntur fyrir
Luis Bunuel og alls konar dóti.“
Það má því kannski segja að Sig-
tryggur sé „kominn heim“.
Hann segir alls konar fólk líta
við í leigunni en einnig sé mikið
um fastagesti sem koma nánast á
hverjum degi. „Jú, það eru margir
sem greinilega meika ekki sjón-
varpsdagskrána,“ segir Sigtrygg-
ur og hlær. „Nokkrir eru í því að
„taka fyrir“ ákveðna leikstjóra og
leigja þá allan katalókinn eftir þá.
Við reynum að sinna þessum hópi
eftir bestu getu og meðal þeirra
leikstjóra sem við höfum verið að
panta inn að undanförnu eru Fass-
binder og Polanski. Svo er líka
alltaf verið að biðja um nýja titla
sem koma ekki út hjá Myndformi
og við reynum að bregðast við því.
Líka reynum við að stíla inn á
kvikmyndahátíðirnar og vera með
myndir sem sýndar voru þar
stuttu eftir lok hátíðanna. Það er
svo stíf dagskrá að reyna að sjá
allt á þessum hátíðum að margir
komast bara ekki yfir það.“
Sigtryggur segir vídeóleiguna
standa vel þrátt fyrir samkeppni
frá ólöglegu niðurhali. „Þeir sem
stunda niðurhal eru aðallega að
taka inn sjónvarpsþætti eins og
Lost og Prison Break, stöff sem
þeir hafa ánetjast. Ég held nú að
fáir standi í því að hlaða niður
Fassbinder.“
Margir sem koma nánast
á hverjum degi
Undir yfirskriftinni „Ný
norræn matargerð“ hafa
Norðurlandaþjóðirnar
sammælst um að efna til
sóknar bæði á heima- og
heimsmarkaði með hreinan
og heilsusamlegan mat að
vopni.
Við athöfn í tengslum við Norður-
landaráðsþing í salarkynnum
danska þingsins í Kristjánsborgar-
höll hafði Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra það hlutverk með
höndum að útnefna svonefnda
sendiherra verkefnisins. Fyrir
Íslands hönd eru það Sigurður Hall
og Baldur Jónsson sem gegna
þessu sendiherrahlutverki.
Verkefninu er ætlað að stuðla að
því að gera matargerðarhefð Norð-
urlandanna hærra undir höfði og
beita henni í kynningu á Norður-
löndum sem heimshluta sem skari
framúr í heiminum.
Þess er skemmst að minnast að
leiðtogar tveggja stórra landa
sunnar í álfunni, Silvio Berlusconi
á Ítalíu og Jacques Chirac í Frakk-
landi, höfðu uppi niðrandi orð um
norræna matargerð. Berlusconi
sagði ótækt að Matvælastofnun
Evrópusambandsins yrði höfð til
húsa í Finnlandi, þar sem maturinn
væri vondur og menn þekktu ekki
einu sinni Parmaskinku. Svo fór
reyndar að stofnuninni var fund-
inn staður á Ítalíu. Chirac móðgaði
bæði Breta og Finna með því að
segja að hvergi væri maturinn eins
vondur og í Bretlandi, nema ef
vera skyldi í Finnlandi.
Jan-Erik Enestam, samtarfsráð-
herra Finnlands sem ásamt Guðna
Ágústssyni talaði við kynningarat-
höfnina í Kaupmannahöfn, minntist
á þessi ummæli Miðjarðarhafs-
landa-leiðtoganna og sagði þau til
vitnis um að ekki veitti af að efna til
þessa kynningarátaks á norrænum
gæðamat. Norræna ráðherranefnd-
in hefur ákveðið að verja sem svar-
ar um 250 milljónum króna til verk-
efnisins á næstu þremur árum.
„Tilgangurinn er að auka sam-
starf landanna í matvælafram-
leiðslu og matreiðslu og jafnframt
að tengja þetta verkefnum á sviði
ferðaþjónustu, heilbrigðis, byggða-
þróunar, menningar, rannsókna og
viðskipta,“ sagði Guðni í ræðu
sinni. Matvæli gegni fjölþættu
hlutverki í efnahagslífinu sem ekki
hafi verið metið að verðleikum og
ýmsir möguleikar á þessu sviði
hafi enn ekki verið nýttir.
Í samtali við Fréttablaðið segir
Guðni Íslendinga vænta mikils af
þessu verkefni, það sé „mjög gott
fyrir okkur, með okkar mikla og
góða hráefni og miklu reynslu í mat-
argerð“. „Ég held að það geti hjálp-
að norrænu þjóðunum í því sameig-
inlega verkefni bæði að halda utan
um sinn heimamarkað en ekki síður
að sækja inn á hinn stóra markað
heimsins með okkar sérstöðu, hrein-
leika og heilbrigði,“ segir Guðni.
Hann telji því „þessa hugsun og
skipun þessara sendiherra, munu
hafa mikla þýðingu fyrir Norður-
löndin og stuðla að því að við getum
verið sameiginlega á sigurför á
heimsvísu.“
Norræn sókn með hreinan og
heilsusamlegan mat að vopniKlárlega
lögbrot
Hollt að sækja námskeið