Fréttablaðið - 03.11.2006, Qupperneq 18
fréttir og fróðleikur
Helstu skjálftasvæðin á Suður- og Norðurlandi
Nítján bjóða sig fram í próf-
kjöri Samfylkingarinnar í
Suðvesturkjödæmi. Flokk-
urinn á nú fjóra þingmenn í
kjördæminu og gefa sautján
kost á sér í fjögur efstu
sætin.
Þrír sækjast eftir fyrsta sætinu,
þau Árni Páll Árnason lögfræð-
ingur, Gunnar Svavarsson, bæj-
arfulltrúi í Hafnarfirði og Þórunn
Sveinbjarnardóttir alþingismað-
ur.
Guðmundur Árni Stefánsson
fór fyrir lista Samfylkingarinnar
í kjördæminu í síðustu kosning-
um og þegar hann hvarf af þingi
varð Rannveig Guðmundsdóttir
oddviti listans. Hún lætur af þing-
mennsku í vor. Þingmennirnir
Katrín Júlíusdóttir og Valdimar
L. Friðriksson gefa kost á sér í
annað og þriðja sæti listans.
Baráttan um fyrsta sætið er
sögð hörð en drengileg og mögu-
leikar frambjóðendanna þriggja
á sigri taldir góðir.
Mikið hefur borið á Þórunni og
Gunnari í flokksstarfinu. Þórunn
hefur setið á þingi í átta ár og
Gunnar í bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar auk þess að vera formað-
ur framkvæmdastjórnar Sam-
fylkingarinnar. Þó að Árni Páll
hafi ekki verið jafn áberandi
hefur hann starfað með Samfylk-
ingunni frá stofnun og fór meðal
annars fyrir mótun stefnu flokks-
ins í Evrópumálum.
Gunnar býr að því að koma úr
Hafnarfirði sem er sterkasta vígi
Samfylkingarinnar. Árni Páll bjó
lengi í Kópavogi og nýtur hugsan-
lega sérstaks stuðnings þar í
krafti þess. Þórunn er hins vegar
úr Garðabæ. Byggðapólitík er
sögð ráða nokkru í kjördæminu
þó að sveitarfélögin séu nánast í
einum hnapp og hagsmunirnir
þeir sömu.
Katrín Júlíusdóttir á í höggi
við Magnús M. Norðdahl, lög-
fræðing ASÍ, og Kristján Svein-
björnsson, bæjarfulltrúa á Álfta-
nesi, um annað sætið. Katrín á
eitt kjörtímabil á þingi að baki en
öll hafa þau tekið virkan þátt í
starfi flokksins.
Valdimar L. Friðriksson settist
á þing þegar Guðmundur Árni
varð sendiherra. Fjórir sækjast
eftir þriðja sætinu, líkt og Valdi-
mar, þau Jakob Frímann Magnús-
son tónlistarmaður, Kristín Á.
Guðmundsdóttir, formaður
Sjúkraliðafélagsins, Tryggvi
Harðarson, fyrrverandi bæjar-
stjóri á Seyðisfirði, og Sandra
Franks varaþingmaður. Líkt og
við var að búast ber mest á Jakobi
Frímanni sem áður hefur tekið
þátt í prófkjörum Samfylkingar-
innar. Sex sækjast svo eftir fjórða
sætinu.
Það vekur athygli hve margir
bjóða sig fram í prófkjörinu. Þátt-
takendur eru jafnmargir og í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík um síðustu helgi þar
sem flokkurinn á níu þingmenn.
Og í prófkjöri Samfylkingarinnar
í Reykjavík, þar sem flokkurinn á
nú átta þingsæti, taka fimmtán
þátt.
Talið er að sú ákvörðun að
banna auglýsingar hafi ráðið
nokkru um hve margir treystu
sér til þátttöku. Frambjóðendur
héldu tvo sameiginlega fundi en
hafa annars háð kynningarstarf
sitt á kosningaskrifstofum, vefn-
um og með heimsóknum í fyrir-
tæki og á opinbera staði.
Í kynningarefni leggja flestir
frambjóðendurnir áherslu á auk-
inn jöfnuð í samfélaginu og það
er raunar rauður þráður í stefnu
alls Samfylkingarfólks fyrir
kosningarnar í vor. Einstaka nefn-
ir sérstök mál en aðeins einn seg-
ist vilja byltingu, það er Jens Sig-
urðsson sem býður sig fram í
fjórða sætið.
Um fjögur þúsund manns eru í
Samfylkingunni í Suðvesturkjör-
dæmi.
Hart sótt að sitjandi þingmönnum
Leiðréttist
ekki sjálft