Fréttablaðið - 03.11.2006, Síða 34
Í lok sumars opnaði verslunin
Frú Fiðrildi á Laugavegi 39 eft-
ir flutning og gagngerar breyt-
ingar. Rómantíkin svífur yfir
vötnum og það er sem ævintýri
líkast að koma í heimsókn til
Frú Fiðrildi.
Vinkonurnar Hrafnhildur Þórar-
insdóttir og Gerða Kristín Lárus-
dóttir höfðu lengi dreymt um að
opna verslun saman. Þegar Frú
Fiðrildi vantaði nýja eigendur fyrir
tilviljun síðasta sumar, voru þær
ekki lengi að hugsa sig um.
Það er eins og að koma inn í
annan heim að fara inn í Frú Fiðr-
ildi og jafnvel eins og að ferðast
aftur í tímann. Þar er heimilislegt
yfirbragð og ævintýralegt úrval af
einstaklega fallegum dönskum
vörum til gjafa og heimilis ásamt
dönsku barnafatalínunni Silke og
Suus. Frú Fiðrildi býður upp á Lis-
beth Dahl-vörurnar sem margir
Íslendingar kannast við frá Dan-
mörku, en einnig merki eins og
Housedoctor og Madam Stoltz. „Við
vildum hafa heimilislegt yfirbragð í
bland við rómantíska fortíðarþrá,“
segir Hrafnhildur brosandi. Búðin
hefur gengið vonum framar og
segja þær vinkonur hana hafa feng-
ið góðar viðtökur frá erlendu ferða-
fólki í sumar. „Það kom kona frá
New York sem rekur þar verslun og
vildi endilega fá Frú Fiðrildi þang-
að,“ segir Hrafnhildur sem var að
vonum ánægð með viðtökur en býst
ekki við útrás Fiðrildisins fyrst um
sinn. „Fólki sem kemur inn segist
líða vel og verða glatt og það finnst
okkur náttúrulega alveg frábært,“
segir Gerða Kristín. Jólavörurnar
eru á næsta leiti og þær Gerða
Kristín og Hrafnhildur hlakka til að
bjóða gestum Frú Fiðrildi upp á
kaffi í jólaösinni. Verslunin er opin
virka daga frá kl. 11.00-18.00, á
laugardögum frá kl.11.00-16.00 og á
löngum laugardegi þann 4. nóvem-
ber frá kl. 11.00-17.00.
Ævintýraheimur Frú Fiðrildi
Hundaræktunarfélag Íslands
stendur fyrir árlegri hunda-
göngu niður Laugaveginn á
morgun á löngum laugardegi.
Á morgun fer fram hundaganga á
vegum Hundaræktunarfélags
Íslands. Þetta er árleg ganga sem
farin er niður Laugaveginn en sú
fyrsta var farin fyrir um fimmtán
árum síðan.
Tilgangur göngunnar er að vekja
athygli á hundum og hundahaldi í
borg. Hundagangan er eins og gefur
að skilja mikið sjónarspil þar sem
hundruð hunda og eigendur þeirra
rölta saman niður Laugaveginn.
Hægt verður að bera augum allar
tegundir hunda. Lögregluhundar
munu leiða gönguna en auk þeirra
munu hundar og eigendur sem starfa
sem sjálfboðaliðar í heimsóknaþjón-
ustu fyrir Rauða Kross Íslands vera
í forystusveit. Skólahljómsveit
Kópavogs slær taktinn fyrir göng-
una sem enda mun í Hljómskála-
garði. Þar sýnir Íþróttadeild félags-
ins hundafimi ásamt fleiri
uppákomum.
Gangan hefst á Hlemmi klukkan
13.
Hundar arka
Laugaveginn
Ný bók
Rósaleppaprjón
í nýju ljósi
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • 552 1890
www.handknit.is
Stærsta töskuverslun landsins
Skólavörðustíg 7, Rvk,
Sími 551 5814
Ný sending af hönskum
MESTA HANSKAÚRVAL
LANDSINS
Verð frá kr. 2.200.-
Langa laugardaga er hægt að
nýta til ýmissa góðra hluta.
Margir nota langa laugardaga til að
kíkja í verslanir, enda eru opnunar-
tímar lengri. Aftur á móti er hægt
að gera sér margt annað til dund-
urs, eins og að kíkja á listasafn eða í
Kolaportið. Heilmikið er af lista-
galleríum og söfnum í bænum, eins
og hið dásamlega Safn á Laugavegi
37 þar sem hægt er að gleyma sér
tímunum saman. Einnig stendur i8
listagallerí við Klapparstíg og
Nýlistasafnið er á Laugavegi 26.
Kaffihúsin eru ófá við Lauga-
veginn og í nágrenni við hann þar
sem hægt er að tylla sér niður eftir
langan dag og fá sér heitt kakó.
Kaffihúsið á Listasafni Reykjavík-
ur er sérstaklega skemmtilegur
staður þar sem útsýni er gott yfir
höfnina og hafið.
List á
laugardegi
2 ára og fjölbreyttari
með hverri árstíð!
Bútasaumsefni,
prjónagarn
og fatnaður.
Vertu velkomin!
Afmælistilboð!
Diza
Laugavegur 44 • S: 561-4000 • www.diza.is
25% afsláttur
3-11. nóvember