Fréttablaðið - 03.11.2006, Síða 64
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Aðalheiður Una Sigurbjörnsdóttir
Hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður til heimilis á Kaplaskjólsvegi 56, lést á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli þriðjudaginn 31. október sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Gyða Theodórsdóttir
Gylfi Theodórsson
Hulda Theodórsdóttir
Sigurbjörn Theodórsson
Theodór Theodórsson
Steinar Engilbert Theodórsson
tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
Ástkær, faðir minn, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Jón Gunnar Jónsson
Skarði, Skarðsströnd,
verður jarðsunginn frá Skarðskirkju á Skarðsströnd
laugardaginn 4. nóv. kl. 14.00. Sætaferðir verða frá BSÍ
kl. 9.00 ef næg þátttaka fæst s: 437 1333,
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristinn Jónsson Þórunn Hilmarsdóttir
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur minn, bróðir okkar og
mágur,
Páll Þórðarson
Flétturima 11, Reykjavík,
er látinn og verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
kl. 13.00 miðvikudaginn 8. nóv.
Þórður Pálsson
Elín Þórðardóttir Reinhold Kristjánsson
Steinunn Þórðardóttir Hrafn Bachmann
Aðalsteinn Þórðarson Guðrún Jóhannesdóttir
Kjartan Þórðarson Helga Einarsdóttir
Gunnar Þórðarson Hafdís Kjartansdóttir
Ástkær sambýlismaður minn, faðir, stjúp-
faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
Matthías Ingibergsson
skipstjóri frá Sandfelli, Vestmannaeyjum,
til heimilis að Strandvegi 43a,
Vestmannaeyjum,
andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut þriðjudaginn 31. október. Jarðarförin fer
fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn
11. nóvember kl. 14.00.
Margrét Magnúsdóttir
Karen Matthíasdóttir Brian Lynn Thomas
Jóhann Þórisson Þórný Kristmannsdóttir
Erlendur Þórisson Harpa Kristinsdóttir
Magnús Þórisson
barnabörn, barnabarnabörn, systur og aðrir aðstandendur.
Legsteinar
Kynningarafsláttur af
völdum tegundum
Fjölbreytt úrval
Hagstæð verð
Stuttur afgreiðslufrestur
Petronella S. Ársælsdóttir
Ella frá Fögrubrekku,
sem lést á Landspítala Fossvogi 30.10. 2006, verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7.11. kl. 13.
Börn hinnar látnu
Laufey, Birna Kristín, Kristján og Ásta Gunna
Kristjánsbörn.
Verslunin Rangá í Skipasundi er ein
síðasta kaupmannsbúð borgarinnar,
en hún hefur verið starfrækt undir
sama nafni í 75 ár. Búðina eiga í dag
Sigrún Magnúsdóttir og Agnar Árna-
son, en þau festu kaup á rekstrinum
1971.
„Rangá er kaupmaðurinn á horninu
eins og hann á að vera,“ sagði Agnar.
„Okkur hefur verið líkt við gömlu
kaupfélögin, það er hægt að finna allt
hérna. Við seljum allar algengustu
matvörur og nýlenduvörur, og svo
erum við leikföng og gjafavöru,“ sagði
hann, en Agnar segist sjá eftir kaup-
mannsbúðunum sem hafa verið á
miklu undanhaldi undanfarin ár. „Þetta
er mun persónulegra en stórmarkað-
irnir, maður nær miklu meiri tengsl-
um við viðskiptavinina. Það myndast
hér skemmtilegt samfélag, fólk hittist
í búðinni og gefur sér tíma til að spjalla
og slaka á og njóta þess að hitta kunn-
ingjana,“ sagði hann.
Agnar segist hafa stóran hóp fasta-
kúnna, en þar sem fólk flytjist stöðugt
á milli hverfa séu alltaf ný og ný andlit
að koma í búðina. „Ég þekki marga
með nafni, þá sem hafa verslað hér í
gegnum tíðina. En ég hef ekki bætt
nýju fólki inn í reikningsheftið, það er
bara fyrir þá sem hafa verið hér lengi,“
sagði Agnar, en reikningshald er ein-
mitt hluti gamla sjarmans sem margir
virðast sækja í í síðustu kaupmanns-
búðunum. Agnar er þó bjartsýnn og
segist hafa trú á því að kaupmanns-
búðum fækki ekki frekar. „Ég er að
vona að það sé komið jafnvægi í þetta
núna. Mér finnst alveg vera grundvöll-
ur fyrir rekstri svona búða í dag þó
það sé langt í land ennþá. Fólki finnst
mjög þægilegt að geta hlaupið út í litla
búð og keypt það sem því bráðvantar.
Það er vakning í því að fólk hafi áhuga
á hverfisbúðum,“ sagði hann.
Spurður um hvort hann hafi íhugað
að draga sig í hlé þverneitar hann því.
„Það er ekkert á döfinni að hætta,
þetta er svo gaman. Ég hefði nú ekki
hangið í þessu í öll þessi ár ef þetta
væri ekki svona skemmtilegt,“ sagði
hann og tók undir að margir viðskipta-
vinanna fyndu fyrir nostalgíu í versl-
uninni. „Fólki þykir vænt um þetta og
lætur það óspart í ljós hérna. Það hvet-
ur okkur til að halda áfram. Við megum
hreinlega ekki hætta fyrir viðskipta-
vinunum,“ sagði Agnar.
Stórsigur Lyndons B. Johnson
„Áhorfendur vilja sjá vondu
kallana fá það sem þeir eiga
skilið.“