Fréttablaðið - 03.11.2006, Page 66
Nú er risin ný Mekka
fyrir Íslendinga í hús-
gagnaleit. Ég er að
sjálfsögðu að tala um
nýja Ikea-risann sem
smellt var niður í mitt
hraunið í Garðabæ.
Ikea er fínt fyrir-
tæki. Ágætis húsgögn
sem flest eru ódýr og svo eru aug-
lýsingarnar þeirra yfirleitt fyndn-
ar. Skemmtileg tilbreyting frá
Orkuveitu-fíaskóinu sem sagði
okkur hvernig við vildum hafa það.
Nýja húsið er líka frábært. Ef
eitthvað kemur upp á, Suðurlands-
skjálfti eða flóð í miðbænum, getum
við flutt alla sem missa heimili sín
til Ikea. Þar fá þeir rúm, salernis-
og eldunaraðstöðu, stofu með sófa-
setti og fullt af heimilisáhöldum. Af
nógu er að taka. Ef annað gos á sér
stað í Vestmannaeyjum getum við
flutt allt heila klabbið inn í verslun-
ina án teljandi vandræða.
Ég hef hins vegar áhyggjur af
álfunum. Ég er enginn fræðingur
en búa þeir ekki í holtum og hæðum
allt í kringum okkur? Við leggjum
lykkjur á vegi okkar svo álfasteinar
fái að standa óhaggaðir og við fáum
fræðinga til að spyrja þá kurteis-
lega hvort við megum færa húsin
þeirra svo þeir verði ekki fyrir
ónæði af völdum framkvæmda
okkar.
Voru álfarnir spurðir hvort þeir
væru tilbúnir að víkja fyrir Ikea?
Búa þeir kannski þarna enn og hír-
ast í kjallara undir öllum húsgögn-
unum? Er hugsanlegt að þeir hafi
mótmælt með því að hlekkja sig við
vinnuvélar og sigla á báti í drullu-
pollinum í grunninum, en þar sem
þeir eru ósýnilegir þá sá þá enginn?
Getur verið að Ikea sé Kárahnjúkar
álfaheims?
Kannski og kannski ekki. Það
getur líka vel verið að enginn álfur
hafi búið í þessu hraunrassgati
nema fáir sem höfðu ekki efni á
neinu betra. Nú fá þeir allir vinnu í
Ikea við að selja ósýnileg sænsk
húsgögn til fínu álfanna úr Elliðaár-
dalnum sem eru grænir af öfund en
fela það bak við hamingjuóskir og
skjall.
Hver getur svarað þessu? Hvar
er Ólafur Liljurós þegar maður þarf
á honum að halda?