Fréttablaðið - 03.11.2006, Side 76
Tryggðu þig fyrir ástarsorg
Ekki er tekið út með sæld-
inni að halda fjölskyldulíf-
inu gangandi í kvikmynda-
borginni Hollywood. Enn
erfiðara virðist vera fyrir
leikkonur að halda hjóna-
bandinu réttum megin við
línuna eftir að þeim hefur
hlotnast æðstu verðlaun
kvikmyndaakademíunnar,
Óskarinn.
Svo virðist sem einhver bölvun hafi
verið lögð á hjónaband þeirra leik-
kvenna sem hljóta styttuna góðu
því á undanförnum tíu árum hafa
sex leikkonur ákveðið að skilja að
skiptum við eiginmenn sína. Ein-
hverjum kann það að koma þannig
fyrir sjónir að leikararnir sem þær
eru giftar þoli illa þá athygli sem
spúsur þeirra fá og ákveði því að
skipta um kvonfang til að ná athygl-
inni aftur.
Mörgum brá í brún þegar til-
kynnt var að Reese Witherspoon og
Ryan Philippe ætluðu að skilja eftir
að leikkonan komst á snoðir um
framhjáhald mannsins síns á töku-
stað í Ástralíu. Aldrei þessu vant
gæti skilnaðurinn orðið henni dýr-
keyptur því hjónakornin fyrrver-
andi skrifuðu ekki undir neinn
kaupmála en Witherspoon er hæst-
launaða leikkona Hollywood og
komast laun Philippe ekki í hálf-
kvisti við þær upphæðir sem Ósk-
arsverðlaunaleikkonan fær fyrir
hverja mynd.
Helen Hunt reið fyrst á vaðið en
hún fékk Óskar frænda fyrir hlut-
verk sitt í As Good as it Gets árið
1998. Hunt giftist manni sínum
Hank Azaria ári seinna en hjóna-
bandið entist ekki árið, þau skildu
árið 2000, aðeins tveimur árum
eftir að styttan góða fékk sinn stað
á hillu fyrir ofan arineldinn.
Bölvunin var hins vegar lögð á
verðlaunin árið 1999 þegar Gwyn-
eth Paltrow grét úr sér augun eftir
að hafa verið útnefnd sem besta
leikkonan í aðalhlutverki í kvik-
myndinni Shakespeare in Love. Viti
menn, hún þakkaði að sjálfsðgðu
unnusta sínum Ben Affleck fyrir
stuðninginn en þau kynntust við
gerð myndarinnar. Skömmu síðar
hættu þau saman enda var þá ferill
Affleck á hraðri niðurleið og hann
þurfti að koma sér í umræðuna á ný
með nýrrri konu. Tveimur árum
síðar mætti Julia Roberts með
Benjamin Bratt í Kodak-höllina,
hirti gripinn fyrir Erin Brockovich
og hálfu ári síðar var ævintýrið úti.
Ekki tók betra við að ári þegar
Halle Berry var kysst blautum
kossi af Adrian Brody en hún fékk
þá Óskarinn fyrir Monster´s Ball.
Berry hafði lengi stutt við bakið á
manni sínum Eric Bennet sem var
yfirlýstur kynlífsfíkill en honum
virtist ganga illa að venja sig af
fíkninni og þau skildu þremur árum
síðar, bölvunin virtist hins vegar
vera í rénun.
Hún blossaði þó aftur upp í fyrra
þegar leikkonan Hilary Swank hlaut
Óskarinn fyrir leik sinn í kvikmynd-
inni Million Dollar Baby eftir Clint
Eastwood. Eitthvað hafði greinilega
gengið á hjá henni og eiginmannin-
um Chad Lowe því þau tilkynntu
nýlega að hjónabandinu væri lokið.
Reese Witherspoon hefur því núna
sannað tilveru Óskarsbölvunarinn-
ar, að engin leikkona skyldi ganga
gift upp sviðið í Kodak-höllinni
þegar tilkynnt verður um hver sé
sú besta í bransanum.
Mál Heather Mills og Sir Paul
McCartney heldur áfram að kom-
ast á forsíður slúðurblaðanna en
eins og flestum ætti að vera
kunnugt um er í uppsiglingu ein-
hver bitrasti hjónaskilnaður síð-
ari ára. Nú eru það upptökur
Lindu heitinnar McCartneys sem
eru mál málanna en á þeim er
hún sögð ljóstra upp leyndarmál-
um hjónabandsins sem enginn
vissi af. Heather Mills er sögð
vilja tryggja það að Paul kaupi
þær ekki dýrum dómum og sjá
svo til þess að þeim verði eytt eða
láti þær hverfa.
Sérfræðingar í Bretlandi telja
að Mills ætli sér að nota upptök-
urnar til að styrkja málstað sinn;
að Paul McCartney hafi beitt eig-
inkonu sína sálugu ofbeldi og
verið fauti í hjónabandi. Paul hafi
síðan haldið þeirri hegðun áfram
þegar hann giftist Mills.
Peter Cox, gamall vinur Lindu,
er með spólurnar í sinni vörslu
en hann og Paul elduðu grátt silf-
ur á sínum tíma og hefur Cox haft
horn í síðu bítilsins frá því að
hann kynntist honum fyrst. Sam-
kvæmt heimildarmanni breska
götublaðsins Daily Mirror er
Heather sögð leita allra leiða til
að fá spólurnar eða afrit af þeim
enda styðji þær við málið hjá
henni. „Heather trúir því að upp-
ljóstranir hennar um hjónaband-
ið eigi eftir að koma heimsbyggð-
inni í opna skjöldu,“ er haft eftir
heimildarmanni í Daily Mirror.
Vill fá spólurnar