Fréttablaðið - 15.11.2006, Síða 2
Germar Rudolf,
rúmlega fertugur Þjóðverji,
hefur verið framseldur frá
Bandaríkjunum til Þýskalands
þar sem hann hefur verið dreginn
fyrir dóm, ákærður fyrir að
afneita helförinni.
Rudolf á yfir höfði sér fimm
ára fangelsi verði hann fundinn
sekur, en hann hefur meðal
annars fullyrt að þýskir nasistar
hafi ekki drepið neina gyðinga í
útrýmingarbúðunum í Auschwitz.
Rudolf hlaut 14 mánaða
fangelsisdóm í Þýskalandi árið
1995, flúði til Bandaríkjanna og
sótti þar um pólitískt hæli, en var
synjað.
Á yfir höfði sér
fimm ára dóm
Áætlað er að
snjóflóðavarnir við Bolungarvík
kosti um 750 milljónir króna og
taka muni tvö til
þrjú ár að reisa
þær.
Þetta kom
fram á kynningar-
fundi umhverfis-
ráðuneytisins sem
haldinn var á
Bolungarvík í
síðustu viku.
Samkvæmt
áhættumati sem
kynnt var fyrir
fjórum árum er
verulegur hluti Bolungarvíkur á
snjóflóðahættusvæði. Til þess að
tryggja öryggi íbúa bæjarins eins
og kostur er hafa verið gerðar
tillögur um varnaraðgerðir sem
felast í um 700 metra löngum
þvergarði og átta keilum ofar í
fjallinu. Varnargarðurinn verður
18 til 22 metra hár.
Kostnaður við
snjóflóðavarnir
750 milljónir
Vörubíll valt á
hliðina í Lágmúlanum í Reykjavík
í gær. Vörubíllinn var að hífa
gifsplötur við verslun Bræðranna
Ormsson skömmu fyrir hádegi
þegar ein af undirstöðum hans
gaf sig og hann valt. Hvorki
bílstjóra né vegfarendur sakaði,
að því er fram kom á Vísi.
Vörubílar með krönum voru
notaðir til að hífa bílinn aftur á
hjólin og tók um hálfan annan
klukkutíma að rétta hann við. Bíll-
inn var mikið skemmdur eftir
veltuna en var þó hægt að aka
honum burt. Bílveltan varð á
háannatíma í umferðinni.
Undirstaða
vörubíls gaf sig
„Stór hluti af lausninni á
Íraksvandanum liggur ekki innan
landamæra Íraks heldur utan
þeirra,“ sagði Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, í ræðu um
utanríkismál sem hann flutti á
mánudagskvöld.
Hann kynnti síðan metnaðarfull
áform stjórnar sinnar varðandi
Mið-Austurlönd, en tók jafnframt
fram að það væri misskilningur að
þau áform snerust um að fá
ráðamenn í Íran og Sýrlandi til
þess að taka upp breytta stefnu.
„Þvert á móti, við ættum að byrja
á Ísrael/Palestínu. Það er kjarninn.
Síðan ættum við að ná framförum í
Líbanon,“ og þannig koll af kolli.
„Það sem er að gerast í Mið-
Austurlöndum núna er ekki flókið.
Það er einfalt,“ sagði Blair og fór
síðan að tala um Íran, sagðist
skilja vel að Íranar séu í raun og
sann dauðhræddir við Bandaríkin,
en sá ótti sé með öllu ástæðulaus.
Bandaríkin ætli sér ekkert að
ráðast með hervaldi á Íran.
Vandinn sem stafi af Írönum sé
hins vegar sá að þeir „nota
þrýstipunkta í þessum heimshluta
til að leggja stein í götu okkar. Þeir
hjálpa öfgafyllstu öflunum í
Hamas í Palestínu, Hezbollah í Líb-
anon og sjía-herflokkum í Írak“.
Bretar verði því að vinna með
Bandaríkjamönnum og öðrum Vest-
urlöndum að því að létta þrýstingn-
um af þessum stöðum, hverjum á
fætur öðrum. Það sé eina leiðin og
það muni taka langan tíma að fara
þá leið, heila kynslóð.
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
SUBARU LEGACY GL
Nýskr. 05.05 - Sjálfsskiptur - Ekinn 26þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
2.180
.000.
-
Göngubrúin frá
Sogavegi yfir í Skeifuna er ófær
eða illa fær fötluðum á rafskutl-
um, fólki í hjólastólum og fólki
með barnavagna og kerrur. Þegar
komið er upp á brúna þurfa veg-
farendur að komast upp snarbratt-
ar tröppur.
Halla Arnardóttir býr í Smá-
íbúðahverfinu, nánast við hlið
Hagkaupa í Skeifunni. Hún á
stundum erindi í Hagkaup og
aðrar verslanir í Skeifunni og þarf
að komast yfir brúna með barna-
vagn. Hún segir tröppurnar algjör-
ar „skaðræðiströppur“.
„Ef ég er með barnavagninn
þarf ég að taka á mig krók og labba
upp á Grensásveg því ég kemst
ekki upp tröppurnar með hann,“
segir hún.
Halla hefur rætt um tröppurn-
ar við aðra vegfarendur sem vilja
nota brúna, gamalt fólk með
innkaupakerrur, fólk í hjólastól-
um og á rafskutlum og dagmæður
með kerrur og vagna. Allt er
þetta fólk sammála um að það
kemst illa eða ekki um tröppurn-
ar. Ramparnir dugi ekki nógu vel.
„Ef fólk er með barnavagn á leið
niður tröppurnar þarf þrjá til, einn
heldur á barninu og tveir halda á
vagninum niður,“ segir Halla.
Ólafur Stefánsson, deildar-
stjóri hjá Reykjavíkurborg, segir
að þetta hafi verið skoðað en ekki
fundist ásættanleg lausn.
Ramparnir að brúnni hafi verið
látnir duga. Það lengi leiðina að
brúnni en eigi að teljast fullnægj-
andi fyrir fatlaða.
Skaðræðiströppur á brúnni
Ýmsu var ábóta-
vant við lögreglurannsókn á
óhappi sem varð við Hótel Nordi-
ca á Suðurlandsbraut í lok ágúst
að sögn Þrastar Heiðars Þráins-
sonar, 34 ára Skagamanns.
Þá keyrði svartur BMW Þröst
niður fyrir utan KB banka og
Hótel Nordica við Suðurlands-
braut. Ökumaður stakk af vett-
vangi. Um tuttugu mínútum síðar
var tekin lögregluskýrsla af
Þresti á slysadeild Landspítal-
ans, en Þröstur var þá með heila-
hristing og slæm beinbrot og láð-
ist að geta þess að keyrt hefði
verið á sig.
Daginn eftir
slysið ræddi lög-
reglumaður við
Þröst í síma og
segist þá hafa
athugað með
myndavélar á
Hótel Nordica,
en þær hafi
engu náð. Þröst-
ur biður hann þá
að athuga
myndavélar KB
banka, sem eru talsvert nær slys-
stað en hinar. Lögreglumaður
hafi tekið dræmlega í beiðnina.
Þær upplýsingar fengust í
bankanum að lögreglan hefði
ekki haft samband til að spyrja
um upptökurnar, hvorki í útibú-
inu né í tölvudeild, fyrr en 2. okt-
óber, rúmum mánuði eftir slysið,
en þá var búið að taka yfir upp-
tökurnar. Lögreglan hefur stað-
fest þetta. Þröstur segir að tveim-
ur vikum síðar hafi annar
lögreglumaður viðurkennt í sím-
tali að lögreglan hafi gert „tækni-
leg mistök“ við rannsókn slyss-
ins.
Þröstur segir það ótrúlegt
sinnuleysi hjá lögreglu að hafa
ekki kannað upptökurnar meðan
þær voru til. Að lögreglan hafi
trassað að rannsaka eina mögu-
lega sönnunargagnið í máli sínu,
þrátt fyrir að hann hafi beðið sér-
staklega um að það yrði gert.
Samkvæmt lögreglunni í
Reykjavík fékk rannsókn málsins
eðlilega meðferð. „Því miður
reyndust upptökur ekki tiltækar
þegar eftir þeim var leitað, en ég
held að menn hafi reynt að bregð-
ast við eftir bestu getu,“ segir
Ómar Smári Ármannsson, yfir-
lögregluþjónn í Reykjavík.
Þröstur hefur verið óvinnufær
síðan hann slasaðist, en hann tví-
viðbeinsbrotnaði, sleit liðband og
skekkti hryggjarliði og herðablað
í slysinu og þurfti að græða í öxl
hans stálplötu. Hann var ótryggð-
ur. Þröstur leitar enn vitna og
biður þau að gefa sig fram við
lögreglu. Slysið varð klukkan
19.31 og bíllinn var af eldri gerð-
inni með vindbrjót (spoiler) á
skottinu.
Ökumaður á svört-
um BMW stakk af
Maður á reiðhjóli var keyrður niður hjá KB banka við Suðurlandsbraut í lok
sumars. Hann sakar lögregluna um sinnuleysi sem hafi valdið því að öryggis-
myndavélar bankans voru ekki skoðaðar. Er óvinnufær og fær engar bætur.
Lögreglan í
Hafnarfirði vinnur að rannsókn á
tildrögum banaslyss sem varð á
Reykjanesbraut er bifreið var
ekið á steyptan klossa.
Pólverji á þrítugsaldri lést í
slysinu en tveir félagar hans
sluppu með minni háttar meiðsl.
Þeir hafa verið úrskurðaðir í
farbann og hafa stöðu sakborn-
ings, meðal annars vegna
rannsóknar á mögulegu mann-
drápi af gáleysi.
Að sögn Kristjáns Ó. Guðna-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns
miðar rannsókn málsins meðal
annars að því að upplýsa hver ók
bifreiðinni þegar slysið varð.
Tildrög slyssins
rannsökuð
Er verið að féfletta okkur,
Runólfur?