Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 6
Einhverjar vonir eru
bundnar við það að Íraksnefndin,
sem George W. Bush Bandaríkja-
forseti átti fund með á mánudag-
inn, skili af sér niðurstöðum sem
gætu auðveldað Bush forseta og
þingmeirihluta demókrata að ná
sáttum um breytta stefnu gagn-
vart Írak.
Nefndin ræddi einnig í gær við
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sem nú vill koma í
framkvæmd „heildrænni stefnu“
gagnvart Mið-Austurlöndum þar
sem athyglinni er ekki eingöngu
beint að Írak.
Íraksnefndin hefur frá því síð-
astliðið vor unnið að því að safna
saman upplýsingum um Íraks-
stríðið, kanna hvað hefur farið
úrskeiðis og leita lausna á vand-
ræðunum. Ljóst er þó að nefndin
mun ekki birta niðurstöður sínar
fyrr en í fyrsta lagi seint í þess-
um mánuði, og hugsanlega
aldrei.
Bush forseti hafnaði á mánu-
daginn hugmyndum demókrata
um að byrjað verði að kalla banda-
ríska herinn heim frá Írak innan
hálfs árs. Bush hafði í sumar
hafnað sambærilegum tillögum
frá demókrötum.
Alveg fram að þingkosningun-
um í síðustu viku talaði Bush um
mikilvægi þess að Bandaríkja-
menn þrauki þar til sigur vinnst í
Írak, en demókratar hafa lagt
áherslu á að bandaríski herinn sé
kominn í þvílíkar ógöngur í Írak
að það verði að kalla hann heim
sem fyrst.
Tveir menn veita nefndinni
forystu, þeir James A. Baker,
fyrrverandi utanríkisráðherra,
sem er repúblikani, og Lee Ham-
ilton, fyrrverandi þingmaður,
sem er demókrati.
Íraksnefndin er skipuð jafnt
demókrötum sem repúblikönum,
og Robert Gates, verðandi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, átti
sæti í nefndinni allt þar til í síð-
ustu viku.
Auk demókrata hafa einnig
sumir repúblikanar á þinginu
þrýst verulega á forsetann um að
breyta um stefnu í Írak.
Bush forseti sagði hins vegar
ekki margt þegar hann kom af
fundi sínum með Íraksnefndinni á
mánudaginn. Hann sagðist hafa
átt „góðar viðræður“ með nefnd-
inni og að hann hlakki til að sjá
„áhugaverðar hugmyndir“.
James A. Baker, annar tveggja
formanna nefndarinnar, hefur
talað opinskátt um að hann telji að
Bandaríkin verði að fá bæði Írana
og Sýrlendinga til liðs við sig til
þess að draga úr átökum innan
Íraks. Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, tók í sama streng
í ræðu sinni um utanríkismál á
mánudaginn.
Bush hefur hins vegar ekkert
gefið út á þessar hugmyndir, og
ekkert viljað gefa til kynna um
hugsanlega stefnubreytingu í
Írak, að öðru leyti en því að hann
fékk Gates til þess að verða næsti
utanríkisráðherra í staðinn fyrir
Donald Rumsfeld.
Bush hefur hins vegar jafnan
lagt áherslu á að Bandaríkjamenn
verði að undirbúa Íraka til þess að
taka sjálfir við öryggismálum í
eigin landi.
Bush lætur ekkert
uppi um Íraksmálið
Íraksnefndin hefur síðustu daga átt fundi með George W. Bush Bandríkjafor-
seta, Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og fleiri ráðamönnum. Bush segist
hlakka til að sjá „áhugaverðar hugmyndir“ frá Íraksnefndinni.
Til að koma í veg
fyrir myndun félagslega einsleitra
borgarhverfa á Reykjavíkurborg
að tryggja að hlutfall leiguíbúða á
nýbyggingarsvæðum verði minnst
20 prósent og hlutfall félagslegra
íbúða ekki hærra en 10 prósent.
Borgin á að auka íslenskukennslu
í grunnskólum og hvetja innflytj-
endur til að sækja um störf hjá
borginni. Einnig á að reka annað
Alþjóðahús í austurhluta borgar-
innar.
Þessar tillögur úr nýrri fram-
kvæmdaáætlun í málefnum inn-
flytjenda kynntu Samfylking og
Vinstri græn á blaðamannafundi
í gær. Framkvæmdaáætlunin
hefur verið í vinnslu síðan í sept-
ember en þriðji flokkurinn í
minnihlutanum, Frjálslyndi
flokkurinn, tók ekki þátt í gerð
hennar.
Þau Dagur B. Eggertsson og
Svandís Svavarsdóttir sátu fyrir
svörum eftir fundinn. Spurður
um fjarveru Frjálslyndra svaraði
Dagur að gert hefði verið ráð
fyrir þátttöku þeirra en flokkur-
inn hefði ekki haft tíma til að taka
þátt í starfinu. Svandís áréttaði
að framkvæmdaáætlunin væri í
beinu framhaldi af vinnu fyrr-
verandi meirihlutans og að tíma-
setning fundarins væri því ekki
bein viðbrögð við umræðu síð-
ustu daga.
Þau sögðust bæði vænta góðra
viðbragða frá Frjálslyndum á
fimmtudag þegar áætlunin verð-
ur lögð fyrir borgarráð.
Frjálslyndir tóku ekki þátt
Skipstjóri flutningaskipsins Wilke,
sem er 3.000 tonna og 91 metra langt skip skráð í
Gíbraltar, íhugaði að yfirgefa skip sitt ásamt átta
manna áhöfn aðfaranótt þriðjudags þegar skipið lenti
í vandræðum vegna veðurs og sjólags djúpt suðaust-
ur af landinu. Skipstjórinn hafði samband við
Landhelgisgæsluna um klukkan þrjú um nóttina og
tilkynnti að aðalvél skipsins væri að drepa á sér.
Tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar var þegar
flogið austur á Höfn í Hornafirði og nærstöddum
skipum gert viðvart. Um morguninn var ljóst að
mesta hættan var liðin hjá.
Áhöfn Fokker-flugvélar Landhelgisgæslunnar var
einnig sett í viðbragðsstöðu í Reykjavík til að geta
fylgt þyrlunum ef á þyrfti að halda. Varðskip var sent
áleiðis sem og færeyska varðskipið Brimill sem var
innan færeyskrar efnahagslögsögu en samstarf var
haft við björgunarmiðstöðina í Þórshöfn í Færeyjum
vegna aðgerðanna. Haft var reglulega samband við
skipið fram yfir hádegi í gær og fylgst með ástandinu
um borð. Þegar ljóst þótti að skipið væri úr hættu var
viðbúnaðarástandi létt og þyrlunum tveimur sem biðu
á Hornafirði snúið til Reykjavíkur.
Skipstjóri Wilke áætlaði að koma upp undir
suðausturströnd Íslands á miðnætti og ætlaði að
halda þaðan norður með austurströndinni áleiðis til
Reyðarfjarðar.
Ert þú skráð(ur) hjá heimilis-
lækni?
Finnur þú til þunglyndis í
skammdeginu?
Lögreglan í Reykja-
vík lýsir eftir Ívari Smára Guð-
mundssyni sem
strauk frá fanga-
flutningsmönnum
við Héraðsdóm
Reykjavíkur í gær.
Ívar afplánar 20
mánaða dóm vegna
fíkniefnamála og er
talinn geta verið
varasamur. Ívar er
26 ára gamall og
180 sentimetrar á hæð.
Þeir sem geta gefið upplýsing-
ar um ferðir Ívars eru beðnir að
hafa samband við lögregluna í
síma 444 1000.
Lögregla leitar
að strokufanga