Fréttablaðið - 15.11.2006, Qupperneq 10
Réttu hjálparhönd
Félagsþjónusta Kópavogs óskar eftir að ráða fólk í heimaþjónustu.
Fjölbreytt og gefandi starf með sveigjanlegum vinnutíma.
Heilsdags- og hlutastörf. Kynntu þér kjörin, þau koma á óvart!
Nánari upplýsingar veita þjónustustjórar heimaþjónustunnar í síma 570 1400.
www.kopavogur.is
Meginmarkmið Félagsþjónustu Kópavogs er
að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi
Kópavogsbúa á öllum aldri svo þeir fái
tækifæri til að taka virkan þátt í samfélaginu.
Miele ryksugur
á einstöku tilboðsverði
Tilboð:
Kr. 15.990
Fáanlegir fylgihlutir t.d.:
AFSLÁTTUR
35%
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra og
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra undirrituðu í gær, ásamt
fulltrúum Samtaka kvikmynda-
gerðarmanna, samkomulag til
næstu fjögurra ára um eflingu
íslenskrar kvikmyndagerðar.
Samkomulagið felur í sér að stuðn-
ingur við kvikmyndagerð á Íslandi
eykst úr 372 milljónum á yfir-
standandi ári í 700 milljónir árið
2010.
Í samkomulaginu segir að
stefnt skuli að því að árlega verði
gerðar ekki færri en fjórar leikn-
ar íslenskar kvikmyndir í fullri
lengd og að hlutfall framleiðslu-
styrks úr Kvikmyndasjóði af
kostnaðaráætlun sé 50 prósent í
stað 40 prósenta eins og nú er. Sér-
staka áherslu á að leggja á gerð
barna- og fjölskyldumynda og
stuðningi við stuttmynda- og heim-
ildamyndagerð verður haldið
áfram.
Í samkomulaginu verður lögð
áhersla á öflugan Sjónvarpssjóð
sem ætlað er að efla framleiðslu á
íslenskum þáttaröðum fyrir sjón-
varp og gert er ráð fyrir að í lok
samningstímans verði 125 millj-
ónum varið til slíkra verkefna.
Þorgerður Katrín var hæst-
ánægð eftir að samkomulagið var
undirritað og lýsti því yfir að dag-
urinn markaði tímamót í íslenskri
kvikmyndagerð. „Framtíðin er
björt og við erum að taka stór
skref fram á við. Við erum að
varða veginn svo menningin okkar
skili sér betur til komandi kyn-
slóða. Kvikmyndir, sjónvarps-
þættir og ekki síst heimildamynd-
ir stuðla að því að við eflum okkar
þekkingu og fáum að njóta þess að
horfa á góðar íslenskar myndir.“
Þorgerður leggur einnig áherslu á
að þekkingariðnaðurinn sem teng-
ist kvikmyndagerð eflist við þenn-
an samning.
Baltasar Kormákur hafði orð
fyrir fulltrúum kvikmyndagerðar-
manna við undirritun samningsins
sem hann sagði tímamót í sögu
íslenskrar kvikmyndagerðar.
Kvikmyndaráð sendi í gær frá sér
ályktun þar sem samkomulaginu
var fagnað. Þar segir að greininni
sé tryggt fjármagn og henni gert
kleift að styrkja innviði sína og
stuðla að áframhaldandi þróun
innlendrar kvikmyndagerðar.
Bylting í gerð
kvikmynda
Íslensk kvikmyndagerð verður efld með nýju sam-
komulagi stjórnvalda og kvikmyndagerðarmanna.
Áhersla verður á efni fyrir börn og unglinga.
Rudolp Holton var á
mánudag dæmdur í tuttugu ára
fangelsi í Tampa á Flórída fyrir að
kyrkja eiginkonu sína.
Holton var fangi á dauðadeild en
var látinn laus árið 2003 eftir að
vitni í máli hans viðurkenndu að
hafa logið í réttarhöldum yfir
honum árið 1986. Hann var talinn
hafa myrt hina sautján ára gömlu
Katrina Graddy. Við DNA-rannsókn
kom í ljós að hár sem fannst á
líkama stúlkunnar var ekki úr
Holton.
Frá því að Holton var látinn laus
hefur hann ítrekað komist í kast við
lögin, meðal annars fyrir að berja
konuna sína með golfkylfu.
Tuttugu ára dóm-
ur vegna morðs
Áætlað er að opna nýtt
og stærra flugsafn á Akureyri
næsta sumar. Flugsafn Íslands
áformar að byggja 2.178 fm
safnhús undir starfsemi sína og
er áætlaður byggingakostnaður
150 milljónir króna.
Svanbjörn Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Flugsafnsins,
segir núverandi húsnæði
safnsins við Akureyrarflugvöll
ekki rúma alla þá muni sem
Flugsafnið eigi og því hafi verið
orðið tímabært að byggja stærra
húsnæði.
„Safnið hefur verið mjög
vinsælt og það sem af er þessu
ári hafa um 5.000 manns
heimsótt safnið og er stór hluti
gestanna erlendir ferðamenn.“
Akureyrarbær styrkir
framkvæmdina með framlagi sem
nemur um þriðjungi áætlaðs
kostnaðar. Þá mun menntamála-
ráðuneytið veita styrk til verkefn-
isins að upphæð 37 milljónum
króna.
Flugsafn Íslands samanstendur
af flugvélum og flugvélahlutum
og að þar má sjá flugsögu Íslands
í myndum og texta. „Safnið
spannar alla flugsögu Íslands sem
hófst árið 1919 þegar fyrsta
íslenska flugvélin hóf sig til flugs
en einnig verða á safninu sérsýn-
ingar um íslenska flugkappa. Þá
stendur flugsafnið fyrir flughelgi
einu sinni á ári.“
Jón Sigurðsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, kynnti í gær
frumvarp til laga um tímabundnar
endurgreiðslur vegna kvikmynda-
gerðar á Íslandi. Eldri lög um
endurgreiðslu falla úr gildi um
áramót en með frumvarpinu er
lagt til að þau verði framlengd um
fimm ár. Ráðherra leggur jafn-
framt til að endurgreiðsluhlutfall
verði hækkað úr 12 prósentum í 14
prósent.
Frá árinu 2001 hafa rúmlega
600 milljónir verið endurgreiddar
vegna 33 verkefna erlendra
kvikmyndagerðarmanna hér á
landi.
Verðmæt land-
kynning styrkt