Fréttablaðið - 15.11.2006, Side 11
Búddistafélagið á Íslandi
hélt hátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur
um helgina. Taílensk kona, Was-
ana Maria Thaisomboon, vildi
leggja sitt af mörkum og hafði
handgert flögg og barmmerki
handa börnunum og vildi kynna
taílensk-íslensk vinasamtök sem
hún vill stofna og orðabók sem
hún hefur unnið.
Hátíðin um helgina er haldin
einu sinni á ári, á fullu tungli í
nóvember. Kjartan Borg, ræðis-
maður Taílands, segir að hátíðin
sé þakkargjörð til vatnsins. Þetta
sé fjölskylduhátíð sem nú hafi
verið haldin í annað sinn í Ráðhús-
inu. Maria mætti í Ráðhúsið dag-
inn fyrir hátíðina, talaði fyrst við
ræðismanninn og svo búddamunk-
inn og fékk leyfi til þess að gefa
það sem hún hafði búið til.
Maria stillti upp dótinu sínu en
þegar hún mætti til hátíðarinnar
daginn eftir hafði það verið tekið
niður og sett til hliðar. Þegar hún
óskaði eftir skýringum fékk hún
litlar sem engar skýringar, aðeins
sagt að þetta væri „pólitík“ og að
hún væri ekki búddatrúar.
Maria er bæði sár og reið og
telur að sér og gestum sínum hafi
verið sýnd lítilsvirðing. Hún telur
hugsanlegt að ástæðuna megi
rekja til viðtals í DV um helgina.
Þar kemur fram að hún hafi orðið
fyrir misnotkun af hálfu tann-
læknis fyrir tveimur árum.
Pramaha Prasit, forstöðumað-
ur Búddistafélagsins, segir að
Maria hafi fengið leyfi til að kynna
nýtt taílenskt-íslenskt vinafélag
og hún hafi fengið sérstakt horn
til þess. Hún hafi getað dreift
bæklingum sínum á hátíðinni.
Taílensk kona var útilokuð
Bæjarstjórn Vestur-
byggðar íhugar nú hvort rétt sé að
auglýsa félagsheimilið Fagra-
hvamm til sölu. Eigendur Hótels
Látrabjargs hafa óskað eftir því
að kaupa eða leigja Fagrahvamm
sem mun vera afar lítið nýttur.
Eftir að hafa fengið álit lögmanns
og skýrslu um ástand hússins
segir Ragnar Jörundsson bæjar-
stjóri skynsamlegast að auglýsa
félagsheimilið til sölu með
kvöðum á nýja eigendur um að
sinna endurgjaldslaust samfélags-
legum skyldum á borð við opið
hús einu sinni á ári, þorrablót og
árshátíð íbúa í gamla Rauðasands-
hreppi.
Íhuga sölu
Fagrahvamms
Flest umferðaróhöpp
í Reykjavík urðu á gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar á síðasta ári, að því er
fram kemur í skýrslu Sjóvár
Forvarnarhúss.
Tólf einstaklingar slösuðust á
þessum gatnamótum á síðasta ári
í 67 tjónum sem var örlítil
fækkun á tjónum frá árinu áður.
Á síðustu sex árum hafa rúm 520
tjón orðið á þessum gatnamótum
og rúmlega 200 einstaklingar
hafa slasast.
Í skýrslunni er fyrirhuguðum
mislægum gatnamótum á mótum
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar fagnað.
520 tjón á síð-
ustu sex árum
30 manna hópur
listamanna sem kallar sig
Hrafntinnuriddarana hefur kært
hrafntinnubrottnám úr Hrafn-
tinnuskeri sem nota á til að klæða
Þjóðleikhúsið að utan. Hann
krefst þess að þeim 50 tonnum
sem þegar hafi verið brottnumin
verði skilað aftur á sinn stað sem
fyrst.
Í fréttum sjónvarps í gær
sagði Guðrún Gísladóttir leikkona
að farið hafi verið fram á að leyfi
sem Umhverfisstofnun veitti
Línuhönnun til brottnámsins
verði fellt úr gildi. Auk þess er
krafist að fyrirhuguð vinnsla á
hrafntinnunni verði stöðvuð
þangað til niðurstaða fæst í
kærumálið.
Vilja skila
hrafntinnunni
Breytt skipulag
mæðraverndar gerir ráð fyrir
því að heilbrigðar þungaðar
konur sæki mæðravernd til
nærliggjandi heilsugæslustöðva
en konur sem skilgreindar hafa
verið með áhættuþætti sækja
mæðravernd til LSH þar sem
sérhæft eftirlit fer fram.
Gert er ráð fyrir því að
heilbrigðar konur njóti þjónustu
ljósmóður og læknis á sinni
heilsugæslustöð þar sem lögð er
áhersla á samfellda þjónustu.
Þá verður starfið á heilsu-
gæslustöðvunum eflt enn frekar
og mun njóta stuðnings Mið-
stöðvar mæðraverndar.
Þungaðar konur
á heilsugæsluna