Fréttablaðið - 15.11.2006, Síða 12

Fréttablaðið - 15.11.2006, Síða 12
 Áhugamenn um ættfræði hafa áhyggjur af áhrifum þess á ættfræðigrúsk ef Íslendingabók verður lokað og hafa sent bréf til Árna Mathiesen fjármálaráðherra og Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur mennta- málaráðherra og mælst til þess að ríkis- stjórn og Alþingi tryggi áframhaldandi rekstur Íslendingabókar, annaðhvort með beinum fjárframlögum eða með því að styðja nokkur stöðugildi. Fimm manns hafa starfað við Íslendinga- bók undanfarin ár, þar af einn í tímabundnu verkefni sem lýkur um áramót. Þremur hefur verið sagt upp þannig að fyrirsjáan- legt er að tveir starfi við verkefnið á næsta ári. Friðrik Skúlason, framkvæmdastjóri Friðriks Skúlasonar ehf., segir að forgangs- verkefni verði að halda gagnagrunni Íslenskrar erfðagreiningar í lagi. Þjónusta við Vestur-Íslendinga hefur verið felld niður og sömuleiðis hefur verið dregið úr símaþjónustu. „Það er ljóst að þetta hefur í för með sér einhverjar breyt- ingar en við munum reyna að halda þessu opnu eins og fjárhagur leyfir. Það er hægt að sinna því nauðsynlegasta, uppfæra nýfædda og nýlátna en þjónustan mun auðvitað minnka,“ segir Friðrik. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra er búin að fá erindi út af þessu máli en vill ekki ræða málið í bili. Vilja tryggja rekstur Íslendingabókar Suður-Afríka er fyrsta ríkið í Afríku sem lög- leiðir borgaraleg hjónabönd sam- kynhneigðra. Þær Bathini Dam- uza og Lindiwe Radebe, sem hafa verið trúlofaðar í eitt ár, ætla sér að verða fyrsta samkynhneigða parið sem nýtir sér þessa heimild. „Ég get ekki beðið,“ segir Radabe, sem er 25 ára. „Það er mikilvægt fyrir okkur að fá þessa viðurkenningu.“ Þjóðþing Suður-Afríku sam- þykkti á þriðjudaginn að samkyn- hneigðir gætu gengið í borgara- legt hjónaband, og byggði þar á ákvæði í stjórnarskrá landsins frá 1996 þar sem bannað er að mismuna fólki á grundvelli kyn- hneigðar. Samkynhneigð- ir mega giftast Yaacoub Sarraf, umhverfisráðherra í ríkisstjórn Líbanons, sagði sig úr stjórninni á mánudaginn. Sarraf er kristinnar trúar en á laugardaginn sögðu fimm sjía-múslímar sig úr stjórninni vegna þess að þeir vilja að mynduð verði ný þjóðstjórn þar sem sjíar fengju meira vægi. „Ég get ekki séð sjálfan mig tilheyra neinu stjórnvaldi þar sem heill trúflokkur er fjarverandi,“ sagði Sarraf. Fjórðungur ríkisstjórnarinnar hefur nú sagt sig úr stjórninni, sem skipuð var 24 ráðherrum. Afsagnirnar gera það að verkum að stjórnin á erfitt með að sitja öllu lengur. Afsögn enn eins ráðherrans Flugfélag Íslands flýgur yfir 100 ferðir í viku til áfangastaða sinna. Þið njótið þess að lesa dagblöðin, fá ykkur kaffi og súkkulaði og áður en þið vitið af eruð þið komin á áfangastað. Ferðin tekur enga stund. Taktu flugið. Pantaðu í síma 570 3030 eða á www.flugfelag.is TÍMINN FLÝGUR flugfelag.is Egilsstaðir 6.990 Ísafjörður 5.990 Akureyri 5.990 Vestm.eyj. 4.490 AKUREYRI FRÁ verð frá: ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 3 49 73 1 1/ 06 Taktu bílinn með þegar framvísað er brottfararspjaldi frá Flugfélagi Íslands. Innifalið: 100 km og kaskó. Bílaleigubíll í heilan sólarhring frá2.499kr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.