Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 22
greinar@frettabladid.is
R
íkisstjórnin hefur gengið fram af of mikilli hörku
gagnvart landeigendum víða um land í þeirri viðleitni
að skilgreina allt land, sem stjórnvöld telja að eng-
inn geti gert tilkall til, sem ríkiseign. Hugsanlega
var hægt að færa gild rök fyrir því árið 1998, þegar
lögin um þjóðlendur voru samþykkt á Alþingi, að nauðsynlegt
væri að eyða óvissu um mörk eignarlanda. Það réttlætir samt
ekki yfirgang fjármálaráðuneytisins gagnvart fólki í dreifðari
byggðum landsins síðan.
Á föstudag birti fjármálaráðherra í Lögbirtingablaðinu kröf-
ur sínar, fyrir hönd íslenska ríkisins, um þjóðlendur á austan-
verðu Norðurlandi. Er það sjötta landsvæðið sem ráðherra gerir
kröfur í fyrir óbyggðanefnd.
Ólafur Björnsson, lögmaður nokkurra landeigenda, hefur
sagt að nánast ekkert eignarland verði eftir í Suður-Þingeyjar-
sýslu nema láglendissvæði næst bæjarhúsum gangi þessar kröf-
ur eftir. Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps,
sagði í fréttum Útvarpsins í fyrradag að í útlöndum færu menn
í stríð til að vinna lönd. Á Íslandi úrskurðaði ríkið landið bara
þjóðlendur.
Fólkið fyrir norðan er ekki það eina sem hefur þurft að berj-
ast gegn þessum yfirgangi ríkisvaldsins. Bændur í uppsveitum
Árnessýslu, Rangárvallasýslu, Vestur-Skaftafellssýslu og austur
að Hornafirði kostuðu miklu til að verjast áganginum. Og fleiri
bíða átekta á Norður- og Vesturlandi.
Fjármálaráðuneytið hefur jafnvel gert kröfur í jarðir sem
bændur hafa talið eign sína samkvæmt þinglýstum landamerkja-
bréfum. Slík landamerki eiga rætur að rekja allt til ársins 1890
þegar farið var um landið og landamerki skilgreind svo að land-
búnaður gæti risið upp sem sjálfstæð atvinnugrein. Af þessum
jörðum hafa jafnvel verið greiddir skattar og gjöld í ríkissjóð
í áratugi. Samt hefur jarðeigendum verið gert skylt að leggja
fram gögn allt frá landnámi til að sanna eignarhald sitt. Því er
fagnaðarefni að þeir ætli að leita réttar síns fyrir Mannréttinda-
dómstóli Evrópu á þeirri forsendu að jafnræðis og meðalhófs
hafi ekki verið gætt við meðferð málsins.
Sérfræðingar þjóðlendunefndar fjármálaráðuneytisins halda
því reyndar fram að þeim beri skylda til að setja fram ítrustu
kröfur og aldrei megi gefa eftir ríkisland samkvæmt lögum. En
er ekki hægt að fara fram af hógværð? Er ekki nauðsynlegt fyrir
kjörna fulltrúa fólksins að marka hér skýrari pólitíska stefnu í
stað þess að láta hagsmunakarla kerfisins ákveða hversu hart
skuli gengið fram? Það væri að minnsta kosti í anda stefnu
núverandi ríkisstjórnar. Óheft ríkisvæðing lands er það ekki.
Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði og fulltrúi í auðlinda-
nefnd ríkisstjórnarinnar, hefur lýst þeirri hugmynd sinni að
stofna hlutafélög um það sem kallað er þjóðlendur og afhenda
öllum Íslendingum hlutabréf. Séreignarétturinn væri forsenda
verulegs hagvaxtar, sem byggðist meðal annars á uppsöfnun
fjármagns og sérhæfingu. Reynslan sýndi að land í ríkiseign
væri mjög illa nýtt.
Vafalaust er ekki vilji til að ganga eins langt og Ragnar lýsir.
Hins vegar þurfa stjórnvöld að gæta hófs þegar eignarlönd eru
afmörkuð og ríkisland skilgreint. Óþarfi er að ganga fram af of
mikilli hörku gagnvart landeigendum.
Þörf á hógværð
Þegar kosningar nálgast fyllast allir stjórnmálamenn umhyggju
fyrir öldruðum. Fögur orð eru látin
falla um það, hvernig þeir, sem nú
eru að þokast út af vinnumarkaði,
eða sestir í helgan stein, hafi byggt
upp það ríkidæmi, sem skilað hefir
íslensku þjóðinni í röð auðugustu
þjóða heims á hvaða mælikvarða
sem mælt er. Því eigi þeir það skilið
að þeir sem halda um sameiginlega
pyngju þjóðarinnar, hagi forgangs-
röð fjárveitinga þannig að öldruð-
um sé búin aðstaða til að eiga
fagurt og friðsælt ævikvöld.
En þegar til kastanna kemur
verður annað uppi á teningnum.
Þingmenn hafa nær umræðulaust
tekið sjálfa sig út fyrir sviga og
búið sér til lífeyriskerfi, sem er
langt handan þess reynsluheims,
sem almennir borgarar þjóðfélags-
ins þekkja og verða að sætta sig
við. Þeir þurfa ekkert að leggja til
þess, en fá greitt án nokkurra
skerðinga og takmarkana, geta í
sumum tilfellum hafið lífeyristöku
meðan þeir eru í fullu fjöri og
gegna fullum störfum á vegum
vinnuveitanda síns ríkisins.
Þegar til Almannatrygginga var
stofnað var það á þeim grundvelli
að menn væru með sérstökum
greiðslum að skapa sér rétt til
lágmarkslauna í ellinni. Í samning-
um við atvinnurekendur og
ríkisvald féllust svo launþegar á þá
tilhögun árið 1968 að 10% launa
yrðu lögð fyrir í sérstaka sjóði,
lífeyrissjóði, sem kæmu sem
viðbót við ellilífeyri almannatrygg-
inga, svo og örorkulífeyri til
þeirra, sem yrðu fyrir áföllum og
heilsutjóni á lífsleiðinni.
Grundvallarhugmynd almanna-
trygginga var því sú, að menn
sköpuðu sér á lífsleiðinni einstakl-
ingsbundinn rétt til lífeyris eftir að
þeir væru horfnir út af vinnumark-
aði; í almannatryggingunum jafnan
rétt án tillits til mismunandi tekna,
en í lífeyrissjóðunum rétt í
samsvörun við það sem greitt hafði
verið inn.
Illu heilli var horfið frá þessu
prinsippi á síðasta áratug síðustu
aldar, á þeim forsendum að þeir
betur stæðu hefðu ekkert með
þetta fé að gera. Nær væri að gera
betur við þá allra verst stæðu með
því að skerða, eða afnema, bætur
til þeirra sem betur hefði farnast,
og verja því fé sem þannig
sparaðist til að bæta kjör þeirra,
sem ekkert annað hefðu fyrir sig
að leggja. Með þessu var horfið frá
réttarkerfi yfir í ölmusukerfi. Eins
og sveitarlimirnir í gamla daga
þurfa nú lífeyrisþegar að sanna
vesöld sína fyrir yfirvöldum
almannatrygginga til þess að fá
bætur. Og ekki nóg með það. Ef
maki þeirra er í fullu fjöri og á
þokkalegum launum, fellur
rétturinn niður, sem þeir áttu að
hafa skapað sér í almannatrygging-
um. Ennfremur er nú litið á bætur
almannatrygginga og greiðslur úr
eigin lífeyrissjóðum sem samtölu.
Hækki önnur, minnkar hin að sama
skapi. Reyni ellilífeyrisþeginn að
drýgja tekjur sínar með tilfallandi
aukastörfum er lífeyrir hans
skertur að sama skapi. Eina
úrræðið, sem er opið fyrir hann, er
því að vinna svart, sem er sannar-
lega freistandi þegar bæði er þá
hægt að stinga í vasann þeim 40%,
sem annars færu í skatta og
komast hjá skerðingu lífeyris-
greiðslnanna. Það má vera harður
nagli og ólæknandi vinnufíkill, sem
er tilbúinn að fara út á vinnumark-
aðinn eftir sjötugt til þess eins að
halda eftir ca. 15 krónum af
hverjum 100, sem hann þénar.
Yfirvöld leggja oft hart að
þegnunum að spara og leggja fyrir
til elliáranna. Hvar er hvatinn til
þess ef sá sparnaður leiðir einungis
til skerðingar á lífeyri að sama
skapi? Oft virðist hægri hönd
ráðamanna þjóðfélagsins ekki hafa
hugmynd um hvað sú vinstri er að
bauka!
Ekki nóg með það. Með því að
hverfa frá hinni upphaflegu
grunnreglu almannatrygginga um
áunninn einstaklingsbundinn rétt,
yfir í ölmusukerfi, þar sem
bótaþeginn verður að sanna fyrir
yfirvöldum að hann sé „verðugur“
sökum fátæktar, er lagður
grunnurinn að eins konar fjöl-
mennri eftirlaunalögreglu, sem
snuðrar í skattskýrslum fólks og
bankabókum, og krefst endur-
greiðslna á hverjum eyri sem til
hefur fallið utan marka fátæktar-
gildrunnar. Og þá er miskunnar-
laust krafist endurgreiðslu á bótum
frá fyrri árum. Mörgum bótaþeg-
anum á eftir að bregða í brún á
næstu dögum og vikum þegar hann
fær endurkröfubréfin frá almanna-
tryggingum, fyrir að hafa „svikið
út“ greiðslur af almannafé,
umfram það sem stjórnarherrarnir
telja hverjum nægja til að skrimta.
Oft hefur komið til tals á
undanförnum árum að bótaþegar
almannatrygginga verði að stíga
skrefið til fulls til varnar og sóknar
fyrir sína hagsmuni með því að
bjóða sjálfstætt fram til þings og
eignast þannig sína rödd eða raddir
inn á því markaðstorgi sérhags-
munanna sem alþingi er orðið. Ég
fæ ekki betur séð en að sú stund sé
upp runnin, að þeir kanni þennan
möguleika í fyllstu alvöru og verði
til þess reiðubúnir strax á vori
komanda.
Fagurgali og framkvæmdir
Hreinsum til
Samfylkingin hefur nú lokið prófkjörum í öllum kjördæmum. Talsverð endurnýj-
un hefur orðið á framboðslistum, nýtt og
öflugt fólk kemur til liðs við okkur í Suður-
kjördæmi, Suðvestur- og Reykjavíkurkjör-
dæmum og konur eru í baráttusætum í fjór-
um kjördæmum af fimm, þótt vissulega
hefði hlutur þeirra mátt vera meiri.
Mikil umræða hefur verið í Samfylkingunni um
nauðsyn þess að koma böndum á þann mikla auglýs-
ingakostnað sem fylgt hefur prófkjörum. Mikilvæg
skref voru stigin í þessa átt í prófkjörum flokksins. Í
öllum kjördæmum voru einhverjar takmarkanir á
auglýsingakostnaði og í Norðvestur- og Suðvestur-
kjördæmum var hreint bann við auglýsingum fram-
bjóðenda en áhersla lögð á sameiginlega kynningu í
blöðum og á framboðsfundum. Þá var mælst til þess
að frambjóðendur stilltu kostnaði við prófkjörsbar-
áttu sína í hóf. Frambjóðendur tóku þessum tilmæl-
um vel, auglýsingabönn héldu fullkomlega þar sem
þeirra naut við og áttu stóran þátt í því að halda kostn-
aði innan hóflegra marka.
Í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík nam
heildarkostnaður allra frambjóðendanna fimmtán
um 23 milljónum króna, eða 1,5 milljónum
króna á mann að meðaltali. Allir frambjóð-
endur þurfa að skila uppgjöri um kostnað sinn
til kjörstjórnar og sumir hafa þegar birt sín
uppgjör opinberlega. Það er eðlileg krafa að
allir geri það. Samanburðurinn við Sjálfstæð-
isflokkinn er sláandi. NFS flutti þá frétt 30.
október að heildarkostnaður frambjóðenda í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
væri áætlaður 80–90 milljónir króna – tæp-
lega fjórfalt hærri en hjá Samfylkingunni.
Í Sjálfstæðisflokknum er engin krafa um upplýs-
ingagjöf, engar reglur um takmörkun á kostnaði eða
auglýsingum. Þar eru peningaöflin allsráðandi og
altalað er að einstakir frambjóðendur hafi eytt vel á
annan tug milljóna í sína baráttu. Allir sjá hvaða
hömlur slíkt setur efnilegu fólki sem vill hasla sér
völl í stjórnmálum auk þess að opna fyrir óeðlileg
hagsmunatengsl við fjársterka aðila í samfélaginu.
Samfylkingin hefur um árabil barist fyrir gegn-
sæi og upplýsingagjöf um starfsemi og fjármál
stjórnmálaflokkanna, að þeir setji sér opinberar siða-
reglur og opni bókhald sitt svo almenningur geti
treyst því að flokkarnir þjóni aðeins fólkinu í landinu.
Samfylkingin mun halda þessari baráttu áfram þang-
að til búið verður að hreinsa til í stjórnmálunum.
Höfundur er framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar.
HIÐ STÓRFENGLEGA
LEYNDARMÁL HEIMSINS
STEINAR BRAGI
EINKASPÆJARINN
STEINN STEINARR
OG AÐSTOÐARMAÐUR
HANS MUGGUR
RANNSAKA ÆSILEGT
MORÐMÁL Á
SKEMMTIFERÐASKIPI