Fréttablaðið - 15.11.2006, Qupperneq 25
Ingvar Helgason hefur byrjað
jólaslaginn: 100.000 króna
gjafabréf með öllum nýjum
bílum.
Desember er erfiður mánuður fyrir
bílaumboð og bílasala og ekki bætir
úr skák almennt minnkandi sala og
aukin samkeppni.
Bílaumboðin fara hvert sína leið í
sinni markaðssetningu og hefur
Ingvar Helgason riðið á vaðið í jóla-
vertíðinni. Þeir bjóða nú 100.000
króna gjafabréf í Smáralind með
hverjum nýjum bíl og 75.000 króna
bréf með hverjum notuðum bíl.
Ingvar Helgason fer með umboð
fyrir Subaru, Nissan, Opel, Saab
eða Isuzu.
Jólaslagurinn hafinn
Rússneski neminn Alexey
Bykov sigraði á dögum í al-
þjóðlegri hönnunarkeppni með
hugmynd sinni að framtíðarbíl
fyrir Audi.
Bíllinn líkist meira hestvagni en
framtíðarbíl en Alexey segir að
það hafi verið ætlunin. Bíllinn er í
grunninn tveir öxlar sem inni-
halda allan vél- og tæknibúnað.
Milli öxlanna eru tvær sætisplöt-
ur sem byggðar eru þannig að þær
geta tekið hvaða form sem er, allt
frá farþegasætum til hólfa fyrir
flutninga.
Bílnum er stýrt með stýripinna
sem staðsettur er milli sætanna
svo það skiptir ekki máli hvoru
megin ökumaður situr, hann getur
alltaf stjórnað bílnum. Það eru
góðar fréttir fyrir örvhenta.
Audi framtíðarinnar
Yfirvöld í Singapúr hafa sett
reglur þess efnis að bannað sé
að yfirgefa landið í bíl nema
bensíntankurinn sé fullur sem
nemur þremur fjórðu.
Þetta er gert til að sefa stjórnvöld í
nágrannaríkinu Malasíu. Þar er
bensín niðurgreitt af ríkinu og því
lítrinn mun ódýrari en í Singapúr.
Íbúar Singapúr hafa lengi nýtt sér
þessa staðreynd, skroppið yfir
landamæri á næstu bensínstöð og
látið fylla á bílinn, yfirvöldum í
Malasíu til sárrar gremju.
Nú er þetta ekki lengur hægt því
ný lög kveða á um að bílar verði að
vera með bensíntankinn nær fullan,
eða sem nemur 3/4 hluta, er þeir
yfirgefa landið. Fólk ber sig hins
vegar eftir björginni og er flest
búið að eiga við bensínmæla þannig
að þeir sýn alltaf 3/4 tank, þó svo að
hann sé næstum tómur.
Furðuleg bensínlög
Japanar halda áfram að taka
yfir bandarískan bílaiðnað.
Nú hyggst Nissan fá bita af
kökunni.
Fregnir herma að Nissan áætli að
taka yfir verksmiðjur Ford og GM
í Bandaríkjunum sem lagðar hafa
verið niður. Nissan nýtir nú þegar
þær verksmiðjur sem þeir eiga til
fullnustu og eygja hér tækifæri að
nýta sér slæmt gegni keppinausta
sinna sér til framdráttar.
Á næstu fimm árum áætlar
Ford að loka sextán verksmiðjum
og GM neyðist að öllum líkindum
að fylgja í kjölfarið en sölutölur
síðasta árs voru langt undir vænt-
ingum.
Japönsk innrás í Bandaríkin
Réttarhálsi 2,
110 Reykjavík
Gúmmívinnustofan
587 5588
www.gvs.is
mán.-fös. 8-18
laugardaga. 9-13
Hjólbarðahöllin
530 5700
Fellsmúla 24,
108 Reykjavík
www.hollin.is
mán.-fös. 8-18
laugardaga. 10-14
566 8188
Bæjardekk
Langatanga 1a,
270 Mosfellsbær
mán.-fös. 8-18:30
laugardaga. 9-15
555 1538
Dekkið
Reykjavíkurvegi 56,
221 Hafnarfjöði
mán.-fös. 8-18
laugardaga. 10-14
Ægisíðu 102,
107 Reykjavík
HjólVest
552 3470551 1968
Þjónustustöð Esso
Geirsgötu 19,
101 Reykjavík
431 1777
Hjólbarðaviðgerðin
Dalbraut 14,
300 Akranesi
mán.-fös. 8-18 mán.-fös. 8-18
laugardaga. 10-14
mán.-fös. 8-18
laugardaga. 9-13 Forðumst biðraðir
KOMDU
Á STAÐINN
EÐA PANTAÐU
TÍMA Í SÍMA
2
5
0
3
/
T
A
K
T
ÍK
1
9
.1
0
.’
0
6
Vertu tilbúinn
á réttu dekkjunum