Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 26
Arctic Trucks stendur í ár fyrir
jeppa- og ferðalagaskóla í húsa-
kynnum sínum að Kletthálsi 3.
Þar geta menn lært undirstöðu-
atriðin í jeppafræðum.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem
Arctic Trucks stendur fyrir slík-
um námskeiðum en nú eru þau
með öðru sniði en áður. Auk bættr-
ar aðstöðu hafa áherslurnar breyst
og í stað þess að einblína á tækni-
þáttinn fá ferðirnar sjálfar og
ánægjan sem þeim fylgir aukið
vægi. „Meðal helstu markmiða
skólans er að hvetja jeppaeigend-
ur til ferðalaga allt árið. Til dæmis
halda margir að á þessum tíma á
haustin sé vertíðin búin,“ segir
Bolli Valgarðsson forsvarsmaður
skólans. „Það eru hins vegar svo
margir staðir sem verða fallegir
þegar snjórinn sker í hálf fjöllin.“
Önnur markmið skólans eru að
hvetja til góðrar umgengni á fjöll-
um, kynna áhugaverða staði, fara í
ferðir, kynna jeppa og tæknina
bak við þá. „Við förum yfir allan
algengasta búnaðinn og öryggis-
mál tengd jeppaferðum,“ segir
Bolli. „Við erum með ýmsan búnað
á staðnum sem fólk getur prófað
og lært að nota. og sem dæmi
sprengjum við dekk og gerum við
það.“
Auk kennslunámskeiða stendur
skólinn fyrir myndakvöldum þar
sem sagt er frá vel heppnuðum
ferðum. Ýmsir sérfræðingar koma
og halda fyrirlestra um til dæmis
jarðfræði, myndatökur á ferðalög-
um, notkunarmöguleika GPS
tækja og margt fleira. „Við erum
ekki að þessu til að græða,“ segir
Loftur Ágústsson markaðsstjóri
Arctic Trucks. „Við viljum miklu
heldur kynna jeppamennsku fyrir
fólki og kenna því að nýta tækin
sem það á nú þegar til fullnustu.
Þess vegna stillum við líka verð-
inu í hóf. Hvert námskeið, sem
tekur eina kvöldstund, kostar á
bilinu 1.000 til 3.500 krónur en á
dýrari námskeiðunum fá þátttak-
endur 120 blaðsíðna Jeppabók
Arctic Trucks.“
Námskeiðin eru ætluð öllum,
hvort sem um reynda fjallamenn
er að ræða eða byrjendur og eina
skilyrðið er áhugi á jeppum og
náttúru Íslands. Hægt er að skoða
þau námskeið sem framundan eru
á www.arctictrucks.is eða www.
jeppar.is og þar er einnig hægt að
skrá sig.
Námskeið í jeppamennsku
Ford S-MAX, fjölnotabíllinn frá
Ford, hefur verið kjörinn „Bíll
ársins 2007“ í Evrópu en niður-
stöður kjörsins voru kynntar
um helgina.
Alls voru átta bílar tilnefndir til
þessa titils og var baráttan hörð í
ár. Aðeins munaði tveimur stigum á
Ford S-MAX (235 stig) og Opel
Corsa sem varð í öðru sæti (233
stig). Í þriðja sæti kom síðan Citro-
ën C4 Picasso (222 stig).
„Við erum himinlifandi yfir að
þessi nýja tegund skuli hafa fengið
það frábæra hrós sem Bíll ársins-
verðlaunin eru, sérstaklega í ljósi
þess hversu margir verðugir keppi-
nautar voru með. Síðan S-MAX kom
á markað fyrr á þessu ári höfum
við verið agndofa yfir viðbrögðum
þeim sem bíllinn hefur fengið, bæði
frá fjölmiðlum og almenningi,“
segir Roelant de Waard, forstjóri
Ford Britain, í fréttatilkynningu
frá Ford.
Verðlaunin Bíll ársins veita sam-
tökin Car of the Year sem eru sam-
tök sjö bílatímarita í Evrópu. Þau
eru: Auto (Ítalía), Autocar (Bret-
land), Autopista (Spánn), Autovisie
(Holland), L’Automobile Magazine
(Frakkland), Stern (Þýskaland) og
Vi Bilägare (Svíþjóð). Dómnefndin
samanstendur af 58 bílablaðamönn-
um frá 22 Evrópulöndum.
Von er á fyrstu eintökunum af
Ford S-MAX hingað til lands í
febrúar á næsta ári.
Ford S-MAX bíll árs-
ins 2007 í Evrópu
Sýnum LMC og FENDT
hjólhýsin árgerð 2007.
Opið virka daga frá 9-18
Víkurverk Tangarhöfða 1
Sími 557 7720 www.víkurverk.is
RAFGEYMAR
Í ÖLL FARARTÆKI
2
5
3
1
/
TA
K
TI
K
8
.1
1
.2
0
0
6
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI