Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 28

Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 28
Lesendur Fréttablaðsins eru líklega farnir að kannast við þá Jón Bjarka Magnússon og Sigurð Eyþórsson en birtar hafa verið sögur af ferðalagi þeirra um Asíu síðasta árið. Jón Bjarki og Sigurður eru loks komnir heim eftir þrettán mánaða ferðalag og tóku þeir skemmtilegan minjagrip með sér heim. „Gríska grjótið,“ stamar þreyttur Ástrali út úr sér við blaðamann á bjagaðri íslensku og bendir á sjálf- an sig. Gríska grjótið er 27 ára gamall strákur frá Melbourne sem Jón Bjarki og Sigurður pikkuðu upp í Pakistan á ferð sinni um Asíu. Gríska grjótið er viðurnefni sem strákarnir gáfu Ástralanum en réttu nafni heitir hann Robert Xanthopoulos. „Ég er eins langt að heiman núna og er líkamlega mögulegt,“ segir Robert og brosir sposkur en hann kom til Íslands fyrr í vikunni til að heimsækja vini sína þá Jón Bjarka og Sigurð. „Þeir buðu mér að koma hingað,“ segir Robert ánægður. „Við hittumst fyrst í Pakistan og ferðuðumst um landið saman og urðum mjög góðir vinir á þeim tíma. Þegar við hitt- umst fyrst var ég á ferð með öðru fólki en hins vegar voru leiðir okkar um það bil að skiljast þannig ég var heppinn að hitta Jón Bjarka og Sigurð því þeir voru að ferðast í sömu átt og ég.“ Sigurður segir kynni þeirra drengja hafa komið til fyrir nokkra tilviljun. „Við rákumst á Robert nokkrum dögum eftir að við höfðum fyrst hitt hann. Við vorum þá á jeppa, hann orðinn einn, og við áttum eitt sæti laust í jeppanum.“ Strákarnir buðu Róbert eina lausa sætið og var það byrjunin á dásamlegum vinskap. „Maður hittir auðvitað mikið af fólki þegar maður ferðast á þenn- an máta,“ segir Robert. „En í flest- um tilfellum hangir fólk saman í nokkra daga. Það er ekki oft sem það gerist að fólk ferðast svona lengi saman eins og við gerðum og jafn góð vinátta myndast.“ Leið Jón Bjarka og Sigurðs lá landleiðina frá Rússlandi, til Mongólíu, Kína, Víetnam, Kamb- ódíu, Laos, Taílands, Indlands, Pakistans, Írans, Tyrklands, nokk- urra landa í Evrópu og svo aftur heim til Íslands. Robert ferðaðist frá Ástralíu til Kína og landleiðina til Evrópu með viðkomu í Pakist- an, Íran, Tyrkland, Grikklandi, þar sem hann heimsótti ættmenni sín, Makedóníu og Slóveníu svo fátt eitt sé nefnt. Gaman er þess að geta að þetta var fyrsta ferð Roberts út fyrir Ástralíu og óhætt að segja að hann ráðist ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. „Leiðir okkar skildu svo í Íran,“ segir Jón Bjarki. „Þá vorum við búnir að ferðast saman í rúman mánuð.“ Og heimboðið til Íslands kom til með óvanalegum hætti. „Síðast þegar við sáum Robert vorum við allir á leið til Tyrklands frá Íran,“ segir Sigurður. „Við vorum spenntir fyrir því að geta loksins fengið okkur einn bjór saman enda erfitt að komast yfir bjór í múslimaríkjum. Þegar við vorum að stíga upp í lestina þá sneri Robert sér að okkur og sagði: „Strákar, ég verð að vera í Íran aðeins lengur, við fáum okkur bara bjór saman á Íslandi,“ og þar með skildust leiðir.“ Þrír mánuðir liðu þar til Robert kom til Íslands í þeim tilgangi að innheimta bjórinn sem ekki náðist að drekka í Tyrklandi. Robert seg- ist heillaður af landinu þótt það sé heldur kalt. „Hér er kalt, dimmt og fólk djammar mikið. En það er ein- mitt það sem við erum búnir að gera, djamma,“ segir Robert og hlær. „Strákarnir fóru líka með mig til Þingvalla sem var stórfenglegt og einnig skoðuðum við Geysi en ég sá ekki mikið vegna myrkurs,“ bætir Robert við og brosir. „Þetta er endirinn á ferðinni minni. Ég ætla að staldra aðeins við í London og svo fer ég aftur heim til Ástralíu eftir fimm mánaða ferðalag.“ Strákarnir eru allir sammála um að erfitt sé að gera upp á milli minninga úr svo langri ferð. „Eftir- minnilegast fyrir okkur er þegar við vorum í Mongólíu,“ segir Jón Bjarki. „Þetta var í upphafi ferðar okkar. Við þurftum að ná ferju sem var við enda mikillar hásléttu. Við höfðum skamman tíma til að kom- ast yfir sléttuna og notuðum til þess hesta og á stökki brunuðum við eftir sléttunni, öskrandi í áttina að Kína. Frelsið var svo mikið og þetta var ólýsanleg tilfinning.“ Robert hlær og segist ekki treysta sér til að toppa þessa sögu. „En kannski er eftirminnilegast allt fólkið sem varð á leið manns. Það var eitthvað sem ég hafði ekki búist við, að eign- ast jafn góða vini á slíku ferðalagi,“ segir Robert og Jón Bjarki og Sig- urður eru sammála. „Maður hugsar meira um staðina sem maður ætlar að heimsækja og það sem maður mun koma til með að sjá, munka, klaustur og annað,“ segir Jón Bjarki. „En það sem skilur mest eftir sig eru tengslin sem maður myndar.“ Minjagripur frá Pakistan BORGARTÚNI 29 | 105 REYKJAVÍK | ICELAND | WWW.EXIT.IS | TEL. +354 562 2362 | FAX. +354 562 9662 // Sjálfboðastörf Guatemala, Costa Rica, Peru, Indland og Suður Afríka Að vinna að sjálfboðastörfum er krefjandi starf en um leið spennandi tækifæri til þess að kynnast framandi menningu. Allar nýjustu upplýsingar og fréttir á ensku á vefnum reykjavik.com og í blaðinu Reykjavikmag. Líka fyrir þig; lífið, fréttirnar og fjörið á ensku
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.