Fréttablaðið - 15.11.2006, Síða 38
MARKAÐURINN 15. NÓVEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR6
Ú T L Ö N D
Rússneska flugfélagið Aeroflot,
sem er að stærstum hluta í eigu
ríkisins, hefur frestað kaupum
á 22 Dreamliner-farþegaþotum
frá flugvélasmiðjum Boeing.
Fyrirhugað var að kaupa vélarn-
ar á næstu sex árum. Nú stefnir
í að af kaupum verði ekki fyrr en
eftir að minnsta kosti átta ár.
Að sögn Valery Okulov, for-
stjóra Aeroflot, fékkst ekki fjár-
veiting frá stjórnvöldum vegna
kaupanna og rann samningurinn
því út í sandinn.
Stjórnmálaskýrendur geta
sér þess til að viðræður á milli
Aeroflot og Boeing hafi siglt í
strand eftir að Bandaríkjamenn
ákváðu að setja viðskiptabann
á rússneska hergagnaútflytjand-
ann Rosoboronexport og herþotu-
framleiðandann Sukhol, sem eiga
í viðskiptasamböndum við Írana.
Flugfélagið íhugaði að end-
urnýja flugflota sinn sem sam-
anstendur að mestu af Ilyushin-
vélum. Vélarnar eru komnar til
ára sinna og hafa þær bilað all-
oft.
Aeroflot hefur sömuleiðis
stefnt að því að kaupa 22 Airbus
350 XWB farþegaþotur á árun-
um 2012 til 2013. Okulov benti
hins vegar á að það væri óvíst
hvort af kaupunum yrði þar sem
Airbus ætti við framleiðsluvanda
að stríða og hafi Aeroflot ekkert
heyrt frá fyrirtækinu. - jab
Aeroflot kaupir
ekki Boeing-vélar
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Stjórnvöld í Austur-Afríkuríkinu Kenía eru sökuð
um að gera ekkert til að stöðva fjársvik, skattsvik
og peningaþvættisstarfsemi Charterhous-bankans
í landinu. Umfangið er geysimikið en stór hluti af
svikamyllunni er sagður renna beint í ríkiskass-
ann.
Að sögn breska ríkisútvarpsins eru svikin talin
nema allt að 1,5 milljörðum bandaríkjadala eða
tæplega 102 milljörðum íslenskra króna.
Ríkisútvarpið segir ennfremur að stór hluti af
þessari vafasömu starfsemi bankans renni beint
í ríkiskassann og nemi jafnvel um tíu prósentum
af heildartekjum Afríkuríkisins. Skrúfi stjórnvöld
fyrir svikamylluna getur farið svo að hrikti í stoð-
um efnahags landsins, að sögn BBC.
Útvarpið hefur ennfremur eftir Titus Mwirigi,
fyrrverandi ráðgjafa við bankann, að ekkert sé gert
til að setja svikurunum stólinn fyrir dyrnar. Hann
greindi heimspressunni frá fjárplógsstarfseminni
fyrir tveimur árum og sagði hana gerða með fullri
vitund stjórnvalda. Mwirigi flúði land í kjölfarið og
er nú í felum í Bandaríkjunum.
Amos Kimunya, fjármálaráðherra Kenía, vísar
því hins vegar á bug að stjórnvöld dragi lappirnar
í málinu. Sannleikurinn sé að málinu ljúki senn og
verði hinir grunuðu færðir í hendur réttvísinnar
innan skamms.
Mwirigi sagði hins vegar í samtali við útvarpið
að allir þeir sem hafi rannsakað fjársvikamálið á
vegum bankans hafi ýmist verið fluttir til í starfi
eða flúið land og virðist sem allt sé gert til að
tryggja framgang svikahrappa í Kenía.
Keníastjórn sökuð
um að styðja svik
Stjórnvöld í Kenía eru sögð styðja svikabanka enda renna
tekjur hans beint í ríkiskassann.
Samtök stjórnenda í Danmörku
völdu í síðustu viku Jørgen Vig
Knudstorp, forstjóra danska leik-
fangaframleiðandans Lego, sem
forstjóra ársins.
Danska dagblaðið Börsen segir
rökstuðning samtakanna fyrir val-
inu vera þá að Knudstorp hafi
tekið sér fyrir hendur það ábyrgð-
arfulla starf að standa vörð um
þá þjóðargersemi sem Lego sé.
Þá vinni hann sömuleiðis að einni
erfiðustu hagræðingu í fyrir-
tækjasögu landsins, sem meðal
annars felur í sér að níu hundruð
manns verður sagt upp í Billund í
Danmörku á næstu þremur árum.
Þá segir ennfremur að
Knudstorp, sem er 37 ára og yngsti
forstjórinn til að hljóta titilinn for-
stjóri ársins, hafi unnið gott starf
við endurskipulagningu í rekstri
Lego ásamt ungum stjórnendum
fyrirtækisins, og „siglt fleyinu
yfir á lygnan sjó,“ líkt og segir í
Börsen.
Rekstur Lego hafði verið í járn-
um í nokkur ár þegar Knudstorp
tók við forstjórastarfinu fyrir rétt
rúmum tveimur árum. Lego var
rekið með talsverðu tapi fyrir ári
en Knudstorp tókst með aðhalds-
aðgerðum að snúa tapinu í 2,8
milljarða króna hagnað á fyrsta
fjórðungi ársins.
Fjölmiðlar hafa reyndar gert
sér mat úr endurskipulagningu
Knudstorps, sem fækkað hefur
starfsfólki til að gera fyrirtækið
samkeppnishæfara. Hægt hefur á
framleiðslu á flestum vörum og
eru líkur á að það nái ekki að anna
eftirspurn fyrir jólaverslunina.- jab
Forstjóri ársins vinnur hjá Lego
Bandaríski afþreyingarrisinn
Disney skilaði tvöfalt meiri hagn-
aði á þriðja fjórðungi ársins en á
sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn
nam 782 milljónum banda-
ríkjadala, jafnvirði rúmlega 53
milljarða íslenskra króna, sam-
anborið við 379 milljónir dala,
eða 25,8 milljarða króna, í fyrra.
Hagnaðurinn, sem hefur aldrei
verið meiri, er að mestu tilkominn
vegna góðrar aðsóknar
að kvikmyndum undir
merkjum Disney og í
Disney-garðana.
Þá skilaði annað efni
Disney-risans sömu-
leiðis hagnaði.
Tekjur fyrirtækis-
ins námu 8,8 millj-
örðum dala eða 600,5
milljörðum króna
sem er fjórtán
prósentum betri
afkoma en á sama
tíma í fyrra.
Bob Iger,
forstjóri Disney, segir árið hafa
verið sérstaklega gott enda hafi
afkomumet verið slegið á öllum
sviðum. „Þetta er niðurstaða
ótrúlegrar sköpunargleði hjá fyr-
irtækinu,“ sagði hann.
Þessi fína afkoma hafði hins
vegar slæmar afleiðingar fyrir
gengi hlutabréfa í Disney. Gengið
hefur hækkað um fjörutíu pró-
sent það sem af er
ári og telja fjárfest-
ar ekki innistæðu
fyrir meiri hækk-
unum. Seldu margir
þeirra því bréf sín
og tóku inn hagnað.
Afleiðingarnar urðu
þær að gengi bréfa
í Disney lækkaði um
þrjú prósent daginn
eftir að uppgjörið
birtist í síðustu viku.
- jab
Disney með methagnað
Japanski bílaframleiðandinn
Toyota, sem er næststærsti bíla-
framleiðandi í heimi, ætlar að
spýta í lófana á næstu árum.
Markmiðið er að reisa meðal ann-
ars verksmiðjur í Bandaríkjunum,
á Indlandi og í Kína og ná fimmtán
prósenta markaðshlutdeild á
heimsvísu á næstu fjórum árum.
Toyota seldi 65 milljónir
nýrra bíla á síðasta ári, undir
eigin merkjum, Daihatsu og Hino
Motors, sem tilheyra dótturfé-
lögum. Stefnt er að því að auka
söluna um tólf prósent á næstu
fjórum árum og selja allt að 73
milljónir bíla. Þá er sömuleiðis
horft til þess að sala á bílum
undir merkjum Toyota aukist um
fjórtán prósent á sama tíma en
fyrirtækið seldi rúmar 7,2 millj-
ónir bíla á síðasta ári, sem jafn-
gildir ellefu prósenta markaðs-
hlutdeild á heimsvísu.
Toyota horfir til þess að
auka sölu á nýjum bílum,
mest í Brasilíu,
R ú s s l a n d i ,
Indlandi
og í
Kína,
s a m -
kvæmt upplýsingum frá stjórn
japanska bílaframleiðandans.
Fyrirtækið hefur verið á góðu
skriði síðastliðin ár en búist er
við að Toyota fari fram úr banda-
rísku bílasmiðunum hjá General
Motors við árslok. Gangi það eftir
verður Toyota stærsti bílafram-
leiðandi í heimi.
- jab
Toyota stefnir á stærri hlutdeild
Sala á leikjatölvunni
PlayStation 3 frá Sony
hófst í Japan á laugar-
dag. Tölvurnar dvöldu
ekki lengi í hillum versl-
ana því óþreyjufullir
leikjatölvuunnendur
rifu þær jafnóðum út.
Strax á mánudag voru
þær við það að seljast
upp enda fóru einungis hundrað
þúsund stykki í sölu.
Ástæðan fyrir því að svo tak-
markað magn fór í sölu var galli í
Blu-ray drifi leikjatölvunnar, sem
hamlaði frekari framleiðslu. Sala
á tölvunni hefst í Bandaríkjunum
í næstu viku. Evrópubúar fá hana
hins vegar ekki
í hendur fyrr en í
mars á næsta ári.
Breska dagblað-
ið The Guardian
segir breska for-
eldra óánægða yfir
því að fá leikjatölv-
una í mars enda
hafi margir ætlað
að gleðja börn sín með hörðum
pökkum um jólin. Nokkrir ætla að
ganga svo langt að kaupa tölvuna
í Bandaríkjunum og Japan. Það
er hins vegar erfiðleikum bundið
því Sony hefur lagt blátt bann við
innflutningi á henni á milli heims-
álfa. - jab
PS3 næstum uppseld í Japan