Fréttablaðið - 15.11.2006, Síða 42
MARKAÐURINN 15. NOVEMBER 2006 WEDNESDAY10
Ú T T E K T
Baugur tók í síðustu viku við lyklunum í
House of Frasier. Fjárfesting þar sem heild-
arfjármögnunin nam 77 milljörðum króna.
Með Baugi í þessari fjárfestingu eru gamlir
kunningjar sem eiga það sameiginlegt að
hafa selt Baugi rekstur á undanförnum miss-
erum.
HoF er stórt verkefni og markmiðið er að
vekja þennan virðulega risa sem hefur dottað
að undanförunu. Fríska upp á vöruúrval og
framsetningu og auka söluna.
15 ÞÚSUND TÖLVUBRÉF
Enda þótt verkefnið sé stórt er það mun
minna en stærsta fjárfestingarverkefni
Baugs og þá umfangsmestu kaup íslenskrar
viðskiptasögu. Kaupin á Big Food Group. Alls
nam fjármögnun þeirra kaupa 112 milljörð-
um króna. Fyrir réttum tveimur árum unnu
fimm starfsmenn Baugs að þessum kaupum
og luku þeim, ásamt hópi fjárfesta og bönk-
unum Kaupþingi, Landsbankanum og Bank of
Scotland. Flækjustig verkefnisins var mikið.
„Það voru margir sveittir,“ segir Jón Ásgeir
Jóhannesson, forstjóri Baugs. „Það var mikið
í gangi á þessum tímapunkti,“ segir Gunnar
Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga
Baugs í Bretlandi. „Þetta var algjör geðveiki.
Það fóru fimmtán þúsund tölvubréf á milli.“
Það var fleira í gangi. „Við vorum að kaupa
Big Food, MK One, Magasin du Nord og að
setja saman Shoe Studio og Rubicon,“ segir
Jón Ásgeir. Þeir hlæja og hrista hausinn.
„Þetta þótti okkur eðlilegt á þessum tíma,“
segir Gunnar og brosir.
KOMNIR MEÐ EINSTAKT FYRIRTÆKI
Í látlausum skrifstofunum í gamla húsnæð-
inu á New Bond Street voru allir á þönum.
Lögfræðingar með háa pappírsstafla í einu
herbergi og starfsmenn Baugs á þönum með
pappíra á milli herbergja. Andrúmsloftið virt-
ist samt ekkert yfirstressað, en blaðamanni í
heimsókn í desember 2004 varð fljótlega ljóst
að tími fyrir óþarft hjal var enginn.
Verkefnið var gríðarleg ögrun og mál
manna að ef það heppnaðist væru fáar dyr
í fjármálaheimi Lundúna sem ekki stæðu
fyrirtækinu opnar. „Ég held að það gildi, eins
og menn skrifuðu hér í blöð í aðdraganda
House of Frasier-kaupanna, að ef einhver
gæti klárað verkefnið þá væri það Baugur.
Það er orðsporið sem við höfum. Baugur fer
ekki í verkefni nema að ætla sér að klára
það,“ segir Jón Ásgeir. „Það er mjög gott
veganesti. Við erum komin með einstakt fyr-
irtæki hérna. Gæðin á vinnunni og þekkingin
á því sem við erum að fást við er þannig að
bankarnir verða undrandi þegar við leggjum
fyrir þá verkefnin. Þessi þekking er rosalega
mikils virði.“
Hann segir að það sé fyrst núna sem búið
sé að byggja upp nægjanlegan fjölda og þekk-
ingu til að styðja við verkefnin. „Við vorum
náttúrulega alltof fá með alltof mikið.“
ENDURVINNSLA FJÁRFESTA
Fjárfestingargeta Baugs hefur vaxið mikið
og hópurinn sem fjárfestir með þeim stækk-
að. Meðfjárfestarnir eru margir hverjir þeir
sem selt hafa Baugi sín fyrirtæki. „Það er
svolítið sérstakt. Þetta er eins og að kaupa hús
af einhverjum og síðan verði hann besti vinur
manns. Í Big Food-kaupunum var mjög mikil-
vægt að sjá að þessi hópur vann ekki bara vel
saman að því að leysa það flókna verkefni að
kaupa fyrirtækið, heldur einnig þegar menn
tókust á við þá erfiðleika í rekstrinum sem
blöstu við þegar við tókum við félaginu,“
segir Gunnar. „Financial Times kallaði þetta
endurvinnslu á fjármunum hjá Baugi. Þessir
fjárfestar hafa unnið með okkur í verkefnum
sem við leiðum og við höfum einnig komið að
verkefnum þar sem þeir eru í forystu.“
MAGAPÍNUYFIRTAKA
Ástand Big Food var verra en menn bjuggust
Við eigum eftir að landa þei
House of Frasier bættist í hóp fyrirtækja Baugs í síðustu viku. Fyrir tveimur árum vann Baugur að
Kaup þar sem boginn var spenntur til hins ítrasta. „Magapínuverkefni“ segir Jón Ásgeir Jóhanne
tök hefðu getað gert út af við Baug. Hafliði Helgason ræddi um Baug í Bretlandi við Jón Ásgeir o
kvæmdastjóra Baugs í Bretlandi.
„Þetta var
algjör geð-
veiki. Það fóru
fimmtán þúsund
emailar á milli
... Við vorum
að kaupa Big
Food, MK One,
Magasin du
Nord og að
setja saman
Shoe Studio
og Rubicon
... Þetta þótti
okkur eðlilegt
að þessum
tíma,“