Fréttablaðið - 15.11.2006, Qupperneq 46
4
NimbleGen Systems er þjónustu-
fyrirtæki á sviði líftækni, starfar
á alþjóðamarkaði og framleiðir
DNA-örflögur sem notaðar eru í
rannsóknir á sviði líftækni og heil-
brigðivísinda. Fyrirtækið, sem var
stofnað árið 1999 í Bandaríkjun-
um, var lengi vel í þróunarvinnu
og sinnti markaðssetningu einung-
is að litlu leyti. Eftir að virtir vís-
indamenn tóku eftir vörunni, fóru
að nota hana og tala um hana sín
á milli fóru hjólin að snúast og er
NimbleGen nú eitt þeirra fyrirtækja
á þessu sviði sem eru í hvað örust-
um vexti.
NimbleGen hefur starfað á
Íslandi í tæp fimm ár, eða frá því
snemma árs 2002. Fyrirtækið hefur
vaxið jafnt og þétt og árið 2004
varð stjórnendum fyrirtækisins ljóst
að þáverandi húsnæði myndi ekki
standa undir vexti fyrirtækisins.
Ári síðar flutti starfsemin í nýtt og
glæsilegt húsnæði að Vínlandsleið
í Grafarholti. Þar er rúm til heilm-
ikillar stækkunar sem ekki virðist
vanþörf á ef væntingar stjórnenda
um aukinn vöxt rætast.
Í haust náði NimbleGen þeim
áfanga að smíða fimmtíu þúsund-
ustu örflöguna hér á landi. Sigríður
Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri
NimbleGen á Íslandi, segir tals-
verða nákvæmnisvinnu við að gera
eina flögu en í dag séu um hundr-
að flögur smíðaðar á degi hverjum.
„Við höfum stækkað hratt á þessu
sviði að undanförnu. Til marks um
það má benda á að um helmingur
af þessum 50 þúsund örflögum var
smíðaður á síðastu tólf mánuðum,“
segir Sigríður. „Auk þess að smíða
DNA-örflögur, þá starfrækjum við
einnig rannsóknastofu sem sér um
þjónusturannsóknir með örflögu-
tækni og hefur umfang rannsókn-
anna farið vaxandi.“
Starfsmannafjöldinn hefur vaxið
í samræmi við aukningu starfsem-
innar og tvöfaldaðist hann í fyrra.
Hópurinn heldur áfram að stækka
og starfa nú hjá fyrirtækinu á
Íslandi yfir þrjátíu manns og alls
hundrað í fyrirtækinu öllu. Flestir
eru í höfuðstöðvum fyrirtækisins
í Madison-borg í Wisconsin-ríki í
Bandaríkjunum, um sex í Waldkrai-
burg Í Þýskalandi auk þess sem um
tuttugu manns vinna við sölu- og
markaðsstörf víðs vegar um heim.
Þegar leit NimbleGen Systems að
fýsilegum kosti undir rannsókn-
arstofu stóð yfir varð Ísland fyrir
valinu þar sem ýmsir kostir þóttu
fylgja því að halda úti starfsemi
sem þessari hér á landi. Það sem
hafði mest að segja var að ákveð-
in einkaleyfi samkeppnisaðila á
DNA-örflögum eru ekki í gildi hér
á landi og þar með opnaðist svig-
rúm til að smíða örflögur hérlendis
og stunda rannsóknir með örflögu-
tækni. Hins vegar voru ákveðnar
hömlur á útflutningi á örflögunum
og því hefur NimbleGen í mörgum
tilfellum selt bæði flögur og rann-
sóknaniðurstöður í einum pakka.
Tvö fyrirtæki í eigu bandarískra
vísindastofnana hafa orðið til í
tengslum við starfsemi NimbleGen
á Íslandi, Lindgen ehf. og WiCell
ehf., og leigja þau aðstöðu af Nimb-
leGen og nota flögurnar við rann-
sóknir sínar.
Kaflaskil urðu í starfsemi NimbleGen
í haust sem opnuðu fyrirtækinu
fjölmörg ný sóknarfæri. Samn-
ingar náðust við örflögufyrirtæk-
ið Affymetrics sem hefur víðtækt
einkaleyfi fyrir sölu á örflögum.
Við samninginn var hömlum um
útflutning létt af framleiðslunni og
möguleikarnir fyrir frekari vöxt á
alþjóðavettvangi jukust til muna.
Það er eftir sem áður hagkvæmast
að smíða flögur og stunda þjónustu-
rannsóknir á Íslandi, ekki síst vegna
þess að hér er gott framboð af góðu,
víðsýnu og velmenntuðu fólki. Því
sjá stjórnendur fram á mikinn vöxt
hér á landi. Sigríður segir þó sam-
keppnina við útlönd fara harðnandi,
meðal annars hvað varðar rekstrar-
og launakostnað og vegna þess að
hér á landi eru engar aðgerðir af
hálfu stjórnvalda til að auðvelda
fyrirtækjum eins og NimbleGen að
koma undir sig fótunum. Þar að
auki sé aðgangur að fjármagni mjög
takmarkaður. „Það eru fáir fjárfestar
á Íslandi sem hafa áhuga á líftækni-
fyrirtækjum,“ segir hún. Allt fjár-
magn sem fer í starfsemi NimbleGen
kemur erlendis frá, ef frá eru taldir
styrkir frá vísindasjóðum.
Framleiða örflögurfyrir alþjóðamarkað
Sigríður Valgeirsdóttir er framkvæmdastjóri NimbleGen Systems á Íslandi. Fyrirtækið, sem framleiðir DNA-örflögur sem notaðar eru í líftækni-
rannsóknir, hefur margfaldast að stærð frá opnun útibús hér á landi árið 2002.
{ Íslenskur iðnaður }