Fréttablaðið - 15.11.2006, Blaðsíða 64
MARKAÐURINN
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
15. NÓVEMBER 2006 MIÐVIKUDAGUR12
S K O Ð U N
Michael Leiter og Christina
Maslach, prófessorar og sér-
fræðingar á sviði vinnuskipulags
og sálfræði hafa í áratug rann-
sakað starfsþrot og vandamál
á vinnustöðum. Mörg fyrirtæki
hafa litla þolinmæði gagnvart
starfsmönnum sem finna fyrir
starfsþroti og tilhneiging er til
að gera vandamálið persónulegt
frekar en tengt menningu fyrir-
tækis. Þá eru starfsmenn sendir
í námskeið í jóga, tímastjórnun
eða sjálfsstyrkingu.
Slík svör til einstaklinga segja
Leiter og Maslach ekki vera rétt
og skoða þurfi málið í stærra
samhengi. Því stærra sem mis-
ræmi er á milli einstaklings og
vinnu hans, því meiri líkur eru
á að hann finni fyrir starfsþroti.
Sex meginþættir ráða ferðinni
í því misræmi og mikilvægt er
að skoða; vinnuálag, ábyrgð,
umbun, félagsanda, sanngirni
og siðferðisleg gildi innan fyr-
irtækis.
Of mikið vinnuálag er algengt
og slítandi en of lítið álag er líka
slæmt. Margt starfsfólk er undir
annars konar álagi sem tengist
því að sýna tilfinningar sem þeir
bera ekki endilega, s.s. sölumenn
og fólk við aðhlynningu.
Misræmi getur skapast þegar
starfsmenn hafa ekki nógu mikið
vald til að sinna starfi sínu eða
að ábyrgðin er öll á einni hendi.
Misræmi verður líka þegar
skortir umbun, hvort sem um
er að ræða ónóg laun fyrir unna
vinnu eða starfið er ekki metið
af öðru fólki á vinnustað.
Starfsfólk þrífst best í aðstæð-
um þar sem er að finna stuðning,
gleði og góðan félagsanda. Þegar
það skortir verður til misræmi
sem er algengt í fyrirtækjum
sem einangra starfsmenn hvern
frá öðrum og koma í veg fyrir að
þeir geti talað saman. Sanngirni
á vinnustað er mikilvæg og
algengt er að skapist óánægja ef
starfsmaður upplifir að misræmi
er á milli starfsmanna varðandi
kaup og stöðuhækkanir.
Þá getur misræmi á gildum
starfsmanns og fyrirtækis haft
mikil áhrif s.s. ef vinnan felur
í sér hegðun eða verkefni sem
starfsmaður telur vera ólíkt
sínum gildum, s.s. að þurfa að
blekkja eða ljúga til að koma
samning eða sölu í framkvæmd.
Þessa þætti þykir
Maslach og Leiter
verðugt að skoða
áður en starfs-
menn eru send-
ir í námskeið
vegna einkenna
um starfsþrot.
Sif Sigfúsdóttir
MA í mannauðs-
stjórnun.
Starfsþrot - vandi
starfsmanna eða
fyrirtækis?
S T A R F S M A N N A M Á L
Umræða um sóknarfæri Íslands
á sviði fjármálaþjónustu hefur
farið vaxandi á undanförnum
misserum. Áhugaverðar hug-
myndir þess efnis voru viðraðar
í nýútgefnu riti nefndar forsæt-
isráðuneytisins, sem var kynnt í
Þjóðleikhúsinu á föstudag.
Stundum vill loða við hug-
myndavinnu sem þessa, að
hún fari einungis fram innan
þröngs hóps og kynningu henn-
ar sé beint til markhóps sem
er þegar sannfærður um ágæti
málefnisins. Þetta eru engu að
síður markmið og framtíðarsýn
sem koma samfélaginu í heild til
góða. Því er mikilvægt að fram
fari virk og opin umræða um
málefnið. Hugmyndir um Ísland
sem alþjóðlega miðstöð fjármála
eru ekki einungis hagsmunamál
örfárra aðila heldur samfélags-
ins í heild.
ELDMÓÐUR OG METNAÐUR
Viðskiptaráð hefur ávallt verið
hlynnt uppbyggingu alþjóð-
legrar fjármálastarfsemi hér-
lendis og tekið forystuhlutverk
í þeirri umræðu. Í tilefni af
Viðskiptaþingi árið 2005 gaf
ráðið út skýrslu þar sem kynntar
voru hugmyndir um flata og ein-
falda skattlagningu til að bæta
samkeppnisstöðu landsins. Í
skýrslunni er gefin glögg mynd
af þeim ávinningi sem slíkar
breytingar gætu haft í för með
sér. Meðal þess sem var lögð rík
áhersla á er að sníða ýmsa ann-
marka af skattalögum sem varða
fyrirkomulag gagnvart erlend-
um aðilum. Þar væri um mikla
framför að ræða með litlum til-
kostnaði. Helsti Akkilesarhæll
framrásar undanfarinna ára
hefur verið ójafnvægi í inn- og
útstreymi fjárfestinga, en þar
ræður há endanleg raunskatt-
byrði á Íslandi miklu. Framfarir
á því sviði hafa því mikið að
segja um samkeppnisstöðu
okkar til lengri tíma.
Ísland hefur upp á margt að
bjóða. Við erum ung og nýj-
ungagjörn þjóð, full af eldmóði
og metnaði. Efnahagur landsins
hefur styrkst til muna á síðustu
árum og má þar ekki síst þakka
örri framþróun innan fjármála-
geira landsins. Vinnumarkaður
og stjórnsýsla einkennist af
sveigjanleika og skilvirkni auk
þess sem við höfum vel menntað
fólk. Þetta eru allt þættir sem
kæmu tvímælalaust til með að
styrkjast sé unnið markvisst að
áðurnefndri framtíðarsýn. Ef
hugmyndin er að skapa komandi
kynslóðum frjósaman farveg
er um afar gjöfulan áburð að
ræða.
MARKVISS FRAMTÍÐARSÝN
Eitt af best þekktu spakmælum
hagfræðinnar segir að ókeypis
málsverður sé í raun ekki til.
Uppbygging og sókn í átt að
alþjóðlegum fjármálamörkuðum
er líklega það sem kemst næst
því að vera undantekning á þeirri
reglu. Kostnaður við breytingar
til að gera Ísland að ákjósanlegri
höfn alþjóðlegra höfuðstöðva
er hverfandi, en ávinningur-
inn gríðarlegur. Örlítil sneið af
alþjóðlegum fjármálamörkuðum
væri á við brúðkaupstertu sold-
ánsins af Brúnei fyrir lítið land
eins og Ísland. Hér erum við
ekki að tala um ábata fyrir lít-
inn hóp manna, heldur landið í
heild. Skatttekjurnar væri hægt
að nota til ýmissa þarfra verka,
svo sem lægri skattaálagna á
almenning, uppbyggingar bestu
skóla í heimi og reksturs velferð-
arkerfis sem skarar fram úr.
Hagsmunir eru ekki eingöngu
bundnir við vöxt á skattstofnum
því afleidd áhrif af umræddri
framþróun væru fjölþætt. Aukin
fjölbreytni í atvinnuvegum og
vaxandi þörf á menntun krefur
stjórnvöld um hugarfarsbreyt-
ingu í þeim efnum. Aukinn hvati
til framfara á sviði menntunar
skapar grundvöll fyrir jákvæða
og hraða þróun á því sviði, sem
kæmi framtíðarkynslóðum afar
vel. Að sama skapi skilar hag-
vöxtur og kaupmáttaraukning
sér til allra, eins og við höfum
fengið að kynnast á síðastliðnum
áratug.
Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld
og atvinnulífið í heild til að skapa
sér markvissa framtíðarsýn þar
sem hagsmunir heildarinnar eru
hafðir að leiðarljósi. Uppbygging
alþjóðlegrar fjármálastarfsemi
fellur tvímælalaust undir slíka
sýn. Það er von mín að okkur
beri gæfa til að ræða þessar hug-
myndir án fordóma, með það að
leiðarljósi að Ísland standi áfram
í fremstu röð.
Allir njóta ávaxtarins
Halla
Tómasdóttir,
framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs
Íslands.
O R Ð Í B E L G
Í erlendri umfjöllun undanfarinna missera er leiðarstefið risa-
stórt spurningarmerki um hvaðan peningarnir hafi komið. Þeir
sem ekki hafa fylgst með framgangi íslenskra fjárfesta eiga bágt
með að skilja stærðirnar.
Í Markaðnum í dag er farið yfir eina slíka sögu. Kaup Baugs og
annarra fjárfesta á Big Food Group. Fjárfestingin var risastór og
áhættusöm. Verkefnið var ögrandi og Baugur sem leiddi verkefn-
ið lagði allt undir. Í viðtalinu viðurkenna forsvarsmenn félagsins
að fyrirtækið hefði líklega ekki þolað það ef illa færi. Staðan er
önnur nú og dreifing eigna og áhættu meiri en nokkru sinni, svo
ekki sé talað um fjárhagslegan styrk.
Þetta er á margan hátt lýsandi fyrir
áhættusækni sem skilað hefur gríðar-
legum hagnaði. Án áhættu er enginn
ávinningur og mikilvægt að gera grein-
armun á þeim sem eru djarfir og taka
útreiknaða áhættu í rekstri sem þeir
gjörþekkja og hinna sem gera sig seka
um tilviljanakennda fífldirfsku.
Reglan er venjulega sú að menn
verða áhættufælnari eftir því sem
lengra líður á ferilinn. Í upphafi er
allt lagt undir, enda litlu að tapa, en
þegar lengra líður fram þá er meira í
húfi. Þróunin hefur líka verið í þessa
átt. Stærstu fjárfestarnir eru orðnir
vel eignadreifðir og áhætta íslenskra
fjárfesta vel dreifð milli hagkerfa og
atvinnugreina. Tíminn hefur verið vel
nýttur.
Á það hefur margoft verið bent að
þótt illa kunni að fara í einhverjum
verkefna, þá er ferðalagið sem íslenskt
athafnafólk hefur lagt í gríðarlega mik-
ilvægt fyrir samfélagið.
Kaupin á Big Food eru gott dæmi. Þar
var ráðist í gríðarstórt verkefni þar sem
verulegrar hagræðingar og skerpingar
á áherslum var þörf. Slík vinna er afar
krefjandi og erfið og tekist hefur að
snúa rekstri félaganna innan samstæð-
unnar til betri vegar á skömmum tíma.
Ef heldur fram sem horfir þá mun þessi
fjárfesting skila miklu. Sama gildir um
Sterling ef það flugfélag heldur áfram
á þeirri braut sem stefnir í. Slíkt gildir
líka um Bakkavör sem hefur skilað
hluthöfum sínum miklum hagnaði af
djarfri og skuldsettri yfirtöku á Geest.
Ex nihili nihil, úr engu ekkert, er gamalt spakmæli sem gildir
ekki síst um árangur í viðskiptum. Á bak við útrásarárangurinn
er nefnilega gríðarleg vinna, áræði, vilji og metnaður, auk þess
sem menn eru jafnvel tilbúnir að leggja allan árangur sinn undir
þegar verkefnin eru ögrandi og spennandi. Án þessa gerist ekk-
ert.
Peningarnir í íslensku útrásinni koma úr vel heppnuð-
um verkefnum:
Vilji til að taka
skynsamlega áhættu
Hafliði Helgason
Í erlendri umfjöllun
undanfarinna miss-
era er leiðarstefið
risastórt spurning-
armerki um hvaðan
peningarnir hafi
komið. Þeir sem
ekki hafa fylgst
með framgangi
íslenskra fjárfesta
eiga bágt með að
skilja stærðirnar. Í
Markaðnum í dag
er farið yfir eina
slíka sögu. Kaup
Baugs og annarra
fjárfesta á Big Food
Group ... Í viðtalinu
viðurkenna for-
svarsmenn félags-
ins að fyrirtækið
hefði líklega ekki
þolað það ef illa
færi.