Fréttablaðið - 15.11.2006, Síða 72
7,6% 11 1,9%
Stoðtækjafyrirtækið Össur hélt
kynningu á verðlaunuðum raf-
eindastýrðum gervifæti í lok
síðustu viku.
Fóturinn vakti mikla athygli
enda þótti rúmskynjun og eig-
inleikar fótarins standa manns-
huganum langtum framar.
Kynningin var hin veglegasta
og líkt og góðum gestgjafa
sæmir var boðið upp á sætmeti.
Viðstaddir mauluðu því súkkul-
aðimola sem þeim stóðu til boða
á kynningunni.
Kaldhæðinn og meinfýsinn
veislugestur líkti hins vegar
súkkulaðimolunum við það að
boðið væri upp á kandís á bið-
stofu tannlæknis. Mikil sykur-
neysla ásamt öðrum slæmum
neysluvenjum getur nefnilega
leitt af sér sykursýki tvö, sem
líka nefnist áunnin sykursýki. Í
verstu tilvikum geta þeir sem af
henni sýkjast lent í því að missa
útlim.
Eins og kandís
hjá tannlækni
B A N K A H Ó L F I Ð
„Auðveldara en ég hélt“
Me› flátttöku á E*TRADE í gegnum Landsbankann b‡›st einstaklingum möguleiki á
a› n‡ta sér beint og millili›alaust áhugaver› fjárfestingartækifæri.
Kynntu flér máli› á landsbanki.is e›a hringdu í síma 410 4000.
ALLT AÐ
10%
SPARNAÐUR
Viðurkenning Orkuseturs
EGO fær sérstaka viðurkenningu fyrir tölvustýrða
mælingu og loftjöfnun á hjólbörðum á öllum stöðvum.
Reynslan sýnir að réttur loftþrýstingur getur sparað
eldsneytisnotkun um allt að 10%
auk þess að auka öryggi í umferð.
Sigurður Ingi Friðleifsson,
framkvæmdarstjóri Orkuseturs.
Upplýsingasskjár sem sýnir valinn
og mældan lotfþrýsting í pundum
Loftþrýstingur ákveðinn með
stjórntökkum.
ATH. Velja skal loftþrýsting sem
framleiðandi bifreiðar mælir með.
Ódýrt eldsneyti + ávinningur!
EGO er við: Fellsmúla, Hæðasmára, Salaveg, Smáralind, Stekkjarbakka og Vatnagarða!
ÖRYGGI
Á ÖLLUM
EGOSTÖÐVUM
Í VETUR!EGO býður viðskiptavinum sínum ekki aðeins ódýrt
eldsneyti, heldur líka aukið öryggi með nýjum rúðuvökvadælum og nýjum
loftjöfnunarbúnaði á öllum stöðvum. Það kemur sér vel í vetrarfærðinni.
Nýi búnaðurinn auðveldar þér að fylgjast með loftþrýstingi, fínstilla
hann og jafna með það að markmiði að ökutækið sé sem best búið
undir akstur við misjafnar aðstæður og ójafn þrýstingur valdi ekki óþarfa
eyðslu. Þannig getur þú bæði sparað eldsneyti og aukið öryggi þitt
og farþeganna.
Þín er ábyrgðin – þinn er ávinningurinn!EasyJet, annað stærsta lág-gjaldaflugfélag Evrópu, er á
miklu flugi þessa dagana. Gengi
hlutabréfa félagsins hefur hækk-
að nær samfellt frá því í vor, um
svipað leyti og FL Group losaði
um sautján prósenta hlut sinn.
Hluturinn kostaði í gær um 570
pens og hefur því hækkað um
70 prósent eftir að FL Group fór
út! Rekstur EasyJet er í mikl-
um blóma þrátt fyrir hækkandi
eldsneytisverð og önnur áföll.
Skilaði félagið nærri sautján
milljarða króna hagnaði fyrir
skatta á síðasta rekstrarári sem
lauk í september. Það var 56 pró-
senta aukning á milli ára.
EasyJet í
skýjunum
Eins og greint er frá hér að
framan völdu Samtök stjórn-
enda í Danmörku Jørgen Vig
Knudstorp, forstjóra danska
leikfangaframleiðandans Lego,
sem forstjóra ársins.
Óvíst er hvort foreldrar og
börn þeirra víða um heim eru
sammála valinu enda hefur Lego
hagrætt svo mikið í rekstri að
fyrirtækið annar ekki eftirspurn
og má gera ráð fyrir að gömlu
góðu Legokubbarnir leynist í
færri pökkum um þessi jól en
undanfarin ár.
Því má ætla að í hugum von-
svikinna foreldra og barna hljóti
Knudstorp svipaðan sess um
hátíðirnar og Trölli sem stal jól-
unum í bókunum víðfrægu eftir
dr. Seuss.
Nýr Trölli?