Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 83

Fréttablaðið - 15.11.2006, Page 83
[Hlutabréf] Hagnaður Vinnslustöðvarinnar nam 87 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 480 millj- ónum króna. Þetta jafngildir 82 prósenta samdætti á milli ára. Hagnaðurinn á þriðja ársfjórð- ungi nam 455 milljónum króna sem er 40 milljónum meira en greiningardeild Kaupþings gerði ráð fyrir. Deildin segir uppgjör félagsins á þriðja ársfjórðungi mjög gott og langt yfir vænting- um. Þá nam velta Vinnslustöðvar- innar á þriðja ársfjórðungi rúmum 1,1 milljarði króna. Framlegð (hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði) var sú hæsta í fimm ár en hún nam tæpum 1,2 milljörðum og jókst um 66,6 prósent. Framlegðin á þriðja ársfjórðungi nam svo 266 milljón- um samanborið við spá Kaupþings um 134 milljónir króna. Vinnslustöðin úr tapi í hagnað Greiningardeild Glitnis hefur upp- fært verðmat sitt á Marel. Hefur verðmatsgengi verið lækkað úr 79 krónum í 75 krónur á hlut og er virði fyrirtækisins nú metið á 27,4 milljarða króna. Nýja verðmats- gengið er 5,1 prósenti undir gengi á markaði og 1,4 prósentum yfir útboðsgengi í hlutafjárútboði félagsins í september. Ráðleggur greiningardeildin hluthöfum að halda bréfum sínum horft til lengri tíma. Markgengi félagsins, það er spá um hvar gengi bréfa í félaginu muni standa eftir sex mánuði, er 80 krónur á hlut. Til samanburðar var markgengi við síðasta verð- mat, sem gert var í september, 84 krónur á hlut. Ástæður þess að verðmatið er lækkað eru meðal annars þær að afkoma þriðja ársfjórðungs var undir væntingum greiningardeild- arinnar. Að auki hefur komið fram áætlun frá Marel um samþætting- arkostnað vegna kaupanna á AEW Delford og Scanvægt og var kostn- aðurinn nokkuð hærri en gert hafði verið ráð fyrir. Verðmat á Marel lækkað Glitnir hefur gefið út í Bandaríkj- unum skuldabréf fyrir 500 millj- ónir bandaríkjadala eða sem nemur 33,5 milljörðum íslenskra króna. Útgáfan fór fram síðasta föstudag, en skuldabréfin eru á gjalddaga í janúar árið 2011. Kjör bréf- anna eru 44 punktum yfir bandarískum millibankavöxt- um (LIBOR). Um er að ræða fyrstu opin- beru skuldabréfaútgáfu bank- ans síðan í febrúar þar sem ekki er um að ræða víkjandi útgáfu. „Á þessu ári hefur Glitnir gefið út tvær opinberar víkjandi útgáf- ur til styrkingar á eiginfjárstöðu bankans en meirihluti annarrar fjármögnunar hefur verið í formi einkaútgáfna. Í lok ágúst til- kynnti Glitnir að bankinn hefði tryggt endurfjár- mögnun fyrir árið 2007. Mikill áhugi hefur verið undanfarið meðal bandarískra fagfjárfesta á skuldabréfum bankans og mun útgáfan nú styðja við frekari vöxt bankans á næsta ári sem og að við- halda sterkri lausafjár- stöðu hans,“ segir í til- kynningu bankans. Útgáfan nú er jafn- framt fyrsta skulda- bréfaútgáfa Glitnis undir nýjum MTN rammasamningi bank- ans um skuldabréfaút- gáfu í Bandaríkjunum. JP Morgan Securities hafði umsjón með gerð rammasamn- ingsins fyrir Glitni, en umsjón með útgáfunni nú höfðu ásamt JP Morgan, Merrill Lynch og Wachovia Capital Markets. Glitnir sækir 500 milljónir dala Engar hömlur á verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Að gefnu tilefni skal það tekið fram og ítrekað að þrátt fyrir nýjar öryggisreglur geta farþegar eftir sem áður keypt allan vökva, krem og aðrar snyrtivörur á frísvæði Flugstöðvarinnar hvort heldur sem þeir eru að fara af landi brott eða koma til Íslands. Allar upplýsingar um verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og nýjar öryggisreglur er að finna á heimasíðu Flugstöðvarinnar www.airport.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.