Fréttablaðið - 15.11.2006, Side 84
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér
til hliðar má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
„Það sést varla orðið í
bækurnar í auglýsingum fyrir
endalausum vísunum í
sölutölur: Hæstur hér og
söluhæstur og þarna … Jú,
kannski er þessi metsölupæl-
ing komin út í öfgar.“
Keisara Brasilíu steypt af stóli
AFMÆLI
Í tilefni af því að á morgun er öld liðin
frá fæðingu Einars Sveinssonar, arki-
tekts og húsameistara Reykjavíkur,
mun Pétur H. Ármannsson arkitekt
flytja erindi um ævistarf Einars í
Listasafni Reykjavíkur. „Ævistarf Ein-
ars er mjög merkt og reyndar afar
sýnilegt í borgarmynd Reykjavíkur, ef
maður veit af því,“ sagði Pétur. „Einar
var í raun opinber arkitekt borgarinn-
ar frá 1934 til dánardags. Á því tíma-
bili teiknaði hann flest allar byggingar
sem Reykjavíkurborg byggði,“ sagði
Pétur, en á meðal verka Einars eru
Melaskóli, Laugarnesskóli, Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur, Borgarspít-
alinn og Sundlaugarnar í Laugardal.
„Þetta eru byggingar sem eru sér-
kennandi fyrir Reykjavík,“ sagði
Pétur.
Frá 1934–1949 voru skipulagsmál
borgarinnar líka í höndum Einars.
„Skipulagsdeildin var stofnuð vegna
þess að Einar hafði svo mikið að gera í
öðru,“ útskýrði Pétur. Á þessum árum
spruttu mörg vinsælustu hverfi höfuð-
borgarinnar upp. „Einar skipulagði
Norðurmýrina, Melahverfið, Hlíðarn-
ar, Laugarnes og Vogahverfið. Þessi
hverfi hafa ákveðin sérkenni og Einar
átti stóran þátt í að móta byggingarstíl
á þessum tíma.“
„Mér finnst Melaskólinn eitt hans
allra skemmtilegasta verk,“ sagði
Pétur. „Einar var mjög góður tækni-
maður og vel menntaður í bygginga-
tækni og burðarþolsfræði. Hann fór
yfir burðarþolsútreikninga verkfræð-
inganna og gerði athugasemdir, en það
eru ekki margir arkitektar sem geta
gert það í dag,“ sagði Pétur. Hann telur
þessa kunnáttu hafa gert Einari kleift
að vinna með flóknari, óhefðbundin
form. „Melaskóli er ekki kassalaga
bygging, heldur sveigð, sem gerir
hana miklu erfiðari í byggingu,“ sagði
Pétur, sem segir Einar einnig hafa
verið sérstaklega vandvirkan. „Hann
var óskaplega nákvæmur í efnisvali
og gerði miklar kröfur til iðnaðar-
manna. Enda hafa byggingar hans enst
ótrúlega vel. Hann sýnir fram á að það
borgar sig að vanda vel til bygginga í
upphafi,“ sagði Pétur.
Pétur flytur erindi sitt klukkan átta
annað kvöld. „Mér finnst full ástæða
til að rifja ævistarf Einars upp. Ég
held að fáir átti sig á því hvað einn ein-
staklingur, sem er tiltölulega lítið
þekktur, mótaði mikinn hluta af borg-
inni og því umhverfi sem við þekkj-
um,“ sagði Pétur.
Okkar ástkæri,
Þórður Sigurðsson
frá Akranesi, Blikahólum 12, Reykjavík,
sem lést á Landspítala Fossvogi mánudaginn 6. nóv-
ember, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju í dag,
miðvikudaginn 15. nóvember kl. 14.00. Fyrir hönd
aðstandenda,
Kristín H. Kristjánsdóttir
Þóra Ólafsdóttir Aad Groeneweg
Jón Pétur Jóelsson
Ólafur Þór Jóelsson Lára Óskarsdóttir
,
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Hildigunnur Sveinsdóttir
Miðleiti 5, Reykjavík
lést á Landspítalanum í Fossvogi, aðfaranótt föstudags-
ins 10. nóvember. Útför verður gerð frá Fossvogskirkju
föstudaginn 17. nóvember kl. 13.00.
Eygló Guðmundsdóttir Pálmi Ragnar Pálmason
Björk Guðmundsdóttir Birgir Páll Jónsson
Sveinn Guðmundsson Margrét Þórmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför elskulegrar eiginkonu minnar,
Marólínu Arnheiðar
Magnúsdóttur (Möllu)
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. nóvem-
ber kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk-
aðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Bogi Sigurðsson.
Ástkær faðir, tengdafaðir og afi okkar,
Stefán Hannesson
Hagamel 24, Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 7.
nóvember verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtu-
daginn 16. nóvember kl. 15.00.
Hildigunnur Friðjónsdóttir Guðlaugur Sigmundsson
Ólöf Stefánsdóttir Axel Guðbjörnsson
Jón Kristján Stefánsson Ása Björk Matthíasdóttir
Árni Guðlaugsson
Guðni Hrafn Guðlaugsson
María Kristinsdóttir
Bryndís Dagmar Jónsdóttir
Ásdís Elín Jónsdóttir
Stefán Matthías Jónsson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Ástkær faðir okkar, sambýlismaður,
sonur, bróðir og frændi,
Egill Sigurður Þorkelsson
sem lést fimmtudaginn 9. nóvember verður jarðsung-
inn frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 16. nóvember
kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Samtök sykur-
sjúkra.
Elinóra Inga Egilsdóttir
Pétur Laxdal Egilsson
Kristín Björg Pétursdóttir
Þorkell Snævar Árnason Rakel Egilsdóttir
Georg Þorkelsson Elísabet I. Einarsdóttir
Árni Þorkelsson
Sigðurður Þorkelsson
Auður Rakel Georgsdóttir
Einar Þorri Georgsson
Agnes Rut Georgsdóttir
og aðrir vandamenn.